Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Page 18

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.09.1979, Page 18
ALÞINGI BÆTIR SUMUM 3% SKERÐINGU ✓ ✓ VERÐBOLGUSKRUFAN Það geisar víðar verðbólga en á íslandi. f ísrael var verðbólg- an 37% árið 1977 og um 50% árið 1978. Ásgarði þótti því fróðlegt að fá í hendurnar grein eftir Yerucham Meshler, en hann er framkvæmdastjóri Alþýðu- sambands ísrael. Eftirfarandi er þýtt og endursagt úr þessari grein, sem er skrifuð í mars á þessu ári og birt í málgagni Alþjóðasambands frjálsra verka- lýðsfélaga: Frjálshyggjuleiðin í lok október 1977, nokkrum mánuðum eftir kosningasigur sinn, samþykkti Likud-ríkis- stjórnin (stjórn hægri flokka) efnahagslega viðreisnaráætlun. Nokkru áður hafði hún hafnað tillögum alþýðusambandsins um að verkalýðshreyfingin, ríkis- stjórnin og atvinnurekendur gerðu með sér samkomulag sem tæki til verðlags, skatta og gróða til þess að hægja á verðbólgunni svo skjótt sem auðið væri. Þess í stað byggði ríkisstjórnin stefnu sína á klassiskri frjáls- hyggju, en helsti talsmaður hennar um þessar mundir er Milton Friedman, prófessor við háskólann í Chicago. Helsti burðarás þessarar stefnu er að ríkið hafi sem minnst afskipti af efnahags- og þjóðmálum. Það er ekki nóg með að þessi hugmyndafræði sé með öllu ó- framkvæmanleg undir þeim sér- stöku kringumstæðum, sem eru í ísrael, heldur hefur henni ver- ið hafnað í flestum vestrænum löndum. í anda þessarar stefnu setti ríkisstjórnin gengið á ffot og stefndi á 50% gengissig, af- nam gjaldeyrishömlur (gjaldeyr- issmyglurum til óblandinnar ánægju) og hækkaði virðisauka- skattinn úr 8% í 12%. Helsta vandamálið var að stöðva verðbólguna, sem var 37% á árinu 1977, en ríkis- stjórnin hellti olíu á verðbólgu- bálið. 50% gengissig ísraelska pundsins var orðið 90% áður en fyrsta ár efnahagsviðreisnarinn- ar var liðið. Helstu fórnarlömbin eru eins og venjulega, þegar svona stend- ur á, launafólk og lífeyrisþegar á meðan auðugir eignarmenn mata krókinn. Krafa um vítitölukerfi Alþýðusambandið fékk því framgengt, að kaupgjaldsvísi- tölukerfið var endurbætt, nýir samningar með nokkrum grunn- kaupshækkunum voru gerðir fyr- ir árin 1978—79, og ríkisstjórn- in skrifaði undir sex mánaða verðstöðvun á helstu nauðsynja- vörum, þjónustu og sköttum. Þannig hefur tekist að halda kaupmætti verkamanna í horf- inu. Ríkisstjórnin telur hins vegar almenning hafa allt of mikið fé handa á milli — umframeftir- spurnin sé höfuðvandinn. Við segjum hins vegar að vandinn felist ekki í of háum launum, það séu eignamenn, gjaldeyris- braskarar og allir þeir er nærast á verðbólgugróðanum, sem hafi of mikið handa á milli. En í stað þess að ráðast á þá, ætlar ríkisstjórnin að minnka opinber útgjöld og fyrst er lagt til atlögu við heilbrigðisþjónustu fyrir hina fátækustu. Þetta getum við á engan hátt samþykkt. Helstu kröfur okkar varða annars kaupgjaldsvísitöluna, skatta, verðlag, skipulagningu landbúnaðar og iðnaðar, hús- næðismál, atvinnuöryggi, trygg- ingar og aðgerðir til að örva framleiðni. Verðbætur á laun verða að koma tvisvar á ári og ef verð- bólgan er meiri en 36% á ári 18 ASGARÐUR

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.