Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 1
1 8 2 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 6 . S E P T E M B E R 2 0 2 1 Bálfarafélagið endurvakið Boðskapur Gunnars Tímamót ➤ 18 Menning ➤ 24 Cotton candy og Moon drops vínber! Pssst ... takmarkað magn Safarík vínber eru best núna! Mmm ... VIÐSKIPTI Hlutabréfaverð hefur lækkað síðustu daga meðal ann- ars vegna þess að auknar líkur eru á að vinstristjórn taki við. Sveinn Þórarinsson, greinandi hjá Lands- bankanum, segir að nýjasta skoð- anakönnun Maskínu virðist hafa hrint lækkunum af stað. „Óvissan snýr að […] hvað mis- munandi stjórnarmyndanir muni leiða af sér,“ segir Valdimar Ármann hjá Arctica Finance. SJÁ SÍÐU 6 Fjárfestar óttast vinstristjórn Valdimar Ármann, for- stöðumaður hjá Arctica Finance Félag íslenskra bifreiðaeig- enda segir sterkt samband milli okur iðgjalda, engrar verðsamkeppni trygginga- félaga og fádæma góðrar afkomu félaganna. Kunnugleg gífuryrði, segja Samtök fjár- málafyrirtækja. bth@frettabladid.is NEYTENDUR Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hafa greinaskrif framkvæmdastjóra Samtaka fjár- málafyrirtækja (SFF), viðbragð við skrifum Félags íslenskra bifreiðaeig- enda (FÍB) um það sem félagið kallar okur tryggingafélaga, leitt til form- legrar kvörtunar sem lögmaður FÍB hefur sent Samkeppnisstofnun. FÍB telur að SFF hafi með ólögmætum hætti tekið að sér hagsmunagæslu fyrir tryggingafélögin. Hagsmuna- gæslan kunni að hamla frjálsri samkeppni sem skaði neytendur og sé brot á samkeppnislögum. SFF telja sig ekki hafa brotið lög, enda sé samtökunum frjálst að fjalla um tryggingamarkaðinn, þau hafi ekki dregið taum tiltekinna fyrirtækja. Baksaga málsins er að FÍB stað- hæfði að á undanförnum sex árum hefðu iðgjöld bílatrygginga hækkað um 44 prósent en verðlagsvísitala hefði á sama tíma hækkað um 17 prósent. Slysum í umferðinni hefði á tímabilinu fækkað verulega. „Tryggingafélögin græða á tá og fingri eins og viðskiptafréttir bera með sér. Kemur auðvitað ekki á óvart, viðskiptamódelið er skot- helt: Engin verðsamkeppni, stöðug hækkun iðgjalda, minnkandi kostn- aður og velþóknun stjórnvalda,“ segir FÍB. Þá segir félagið, sem gætir hags- muna um 18.000 félagsmanna, að söfnunarsjóðir tryggingafélaganna belgist út vegna oftekinna iðgjalda. Félagið segir enn fremur að iðgjalda- hækkanir á bílatryggingum séu komnar út yfir allt velsæmi. Á sama tíma hafi tryggingafélögin mörg undanfarin ár kynnt fádæma góða afkomu. Iðgjöld bílatrygginga séu að jafnaði tvöfalt hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og er ekki um það deilt. Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda- stjóri SFF, brást við þessum skrifum FÍB í svargrein sem hefur birst bæði á visir.is og á heimasíðu samtak- anna. Þar segir hún FÍB nota kunn- ugleg gífuryrði um okur og vafa- sama viðskiptahætti. Valdar tölur úr opinberum gögnum séu notaðar til að styðja við þær fullyrðingar en samtökin geri athugasemdir við framsetninguna. Í tilfelli tryggingafélaga segja SFF að laun skipti miklu máli þegar kemur að fjárhæð bótagreiðslna. Laun séu lögð til grundvallar við mat á þeirri tryggingavernd. Á fyrr- nefndu tímabili hafi laun hækkað um 59 prósent. Þá bendir Katrín á að viðgerðar- kostnaður bifreiða hafi hækkað um 36 prósent og því sé ekki bara hægt að horfa til vísitölu neysluverðs þegar rýnt sé í verðhækkanir trygg- ingafélaga, launaþróun á Íslandi skipti einnig gríðarmiklu máli. n Segja hækkanir út yfir allt velsæmi Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB Svæði við hraunjaðarinn í Nátthaga voru rýmd eftir að hraun fór að renna þar niður á nýjan leik þegar virkni tók sig upp í eldgosinu eftir níu daga hlé. Þegar og ef Nátthagi fyllist og hraunið fer að flæða yfir kverkina sem ljósmyndarinn stendur á mun það flæða áfram niður að Suðurstrandarveginum og taka hann í sundur. Óvíst er hversu langan tíma það mun taka. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.