Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Mér fannst þessi kergja brjótast svo skýrt fram í deilum um skipulags- mál. Þar sem einhvern veginn Gísli Marteinn og Dagur B. Eggertsson eru satanistar sem eru að eyðileggja Reykja- vík. toti@frettabladid.is „Ég er náttúrlega staddur í svona kannski einni martröðinni sem er kveikjan að þessu verki, sem er skutla og sækja-stundin í Reykja- vík,“ segir Dóri DNA, þegar honum hefur tekist að tengja símann sinn við bílinn, um leikritið Þétting hryggðar, sem Borgarleikhúsið frumsýnir í kvöld. „Ég er að sækja í félagsmiðstöð í Vesturbænum og keyra niður í miðbæ í píanótíma. Einhvern veginn á sporbaug um Reykjavík í bílastæðaskorti á Laugaveginum,“ heldur rithöfundurinn og víninn- flytjandinn áfram og dregur aðeins úr martraðarfullyrðingunni áður en hann snýr sér að raunverulegri grunnhugmynd leikritsins. Þétting hryggðar, sem Una Þor- leifsdóttir leikstýrir, fjallar um fjóra Reykvíkinga; húsmóður úr Hlíðun- um, arkitekt úr Vesturbænum, ungl- ing úr Breiðholti og iðnaðarmann úr Grafarvogi, sem af öryggisástæðum eru læst inni í fundarherbergi á borgarskrifstofunum í Borgartúni og deila um skipulagsmál, Domino’s og hverjum sé raunverulega hægt að kenna um allt sem er að. Drullan hömruð „Grunnhugmyndin að þessu er bara þetta gríðarlega menningarstríð sem er í gangi og þetta stóra ósætti í samfélaginu,“ segir Dóri, sem lítur á verkið sem óð til netsamskipta og dilkadráttar á netinu. „Kannski er þetta út af samfélags- miðlum eða kannski leyfðu sam- félagsmiðlar okkur bara að afhjúpa hvað við erum í raun og veru rosa- lega ósammála um allt. Ég ætla að segja svolítið háfleygt og tilgerðar- legt við þig en hlustaðu nú: Mig langaði að taka alla drulluna sem er í gangi. Hvort sem það heitir Covid eða Metoo eða hvað. Mig langaði bara að taka nútímann með allri sinni drullu og fara með hann inn á verkstæði, stálsmiðju, og berja þennan nútíma eins og stál þangað til úr yrði barið hjarta úr stáli.“ Dóri telur blasa við að þetta menningarstríð sæki frumkraft sinn til hneykslunarfíknar og gangi út á að finna endalaust eitthvað til að æsa sig yfir. „Finna eitthvað til að stuðast yfir. Finna einhvern annan sem var gert út á. Móðgast, kúgast. Móðgast fyrir hönd þeirra sem gætu hafa móðgast. Móðgast fyrir hönd þeirra sem voru sakaðir um að móðga annan. Satanistar á hjólum Við höfum aldrei verið jafn brot- hætt. Aldrei nokkurn tímann, og þetta verk er tilraun til þess að hlæja að þessu öllu saman,“ segir Dóri og bætir við að gríninu fylgi um leið til- raun til þess að tengja fólk saman. „Mér fannst þessi kergja brjótast svo skýrt fram í deilum um skipu- lagsmál. Þar sem einhvern veginn Gísli Marteinn og Dagur B. Eggerts- son eru satanistar sem eru að eyði- leggja Reykjavík með því að fylla hana af reiðhjólum og vögnum til að ferja fólk um,“ segir Dóri og bætir við að úr hinni áttinni heyrist aðeins tilfinningarök og upphróp- anir. „Rannsóknarvinnan var ekki bara að lesa skítakomment á net- inu þar sem ég las líka bækur á borð við The Death and Life of Great American Cities eftir Jane Jacobs og Mannlíf milli húsa eftir Jan Gehl. Þetta eru kannski svona grundvall- arrit nútíma borgarskipulags og þar bara áttar maður sig á því að borgar- skipulag er töluvert ljóðrænni hug- mynd en ég átti von á svona í grunn- inn. Við þurfum að búa nálægt hvert öðru svo við missum ekki samband- ið við hvert annað. Og það er þétting hryggðar. Því um leið og við þéttum byggðina þá þéttum við hryggðina og þá finnum við lyktina af matnum sem nágranninn eldar og við heyrum lætin í honum þegar hann hlustar á Nýdönsk á laugardögum, en þetta er allt gert af því okkur líður kannski best í kringum hvert annað.“ Sítengd og sambandslaus Dóri víkur síðan að þeirri glötuðu þversögn að „á öld þar sem við erum einhvern veginn búin að samtengja okkur að fullu með samfélagsmiðl- um þá virðumst við um leið hafa misst sambandið við hvert annað.“ Ætla má að boðskapur verksins sé vel til þess fallinn að æra óstöð- uga á netinu, en er Dóri tilbúinn til þess að lenda í hakkavél samfélags- miðlanna fyrir að leyfa sér að eyma óþverrann sem þar kraumar? „Að sjálfsögðu er ég ekkert tilbú- inn í það. Það er enginn tilbúinn í það. En veistu hvað? Þetta er ekki árás. Þetta er bara verk um fjórar persónur sem eru lokaðar inni á aðalskrifstofum Reykjavíkurborgar af öryggisástæðum, en það fjallar líka um einangrun og þessa til- finningu sem varð til í Covid þegar maður sat eftir einn inni hjá sér með ekkert nema þær ákvarðanir sem maður hafði tekið í lífinu.“n Öll heimsins heitasta drulla „Þetta er alvöru leikhús og þetta er klassískt leikverk undir áhrifum frá amerískum leikritum og leikritahefð. Mig langaði bara að gera klassískt leikhús og langaði ekkert að finna upp hjólið.“ FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Sítengdir en sundraðir Reykvíkingar takast hart á. MYND/BORGARLEIKHÚSIÐ Dóri DNA kemst í leikriti sínu, Þétting hryggðar, að þeirri niðurstöðu, eftir lestur skítakommenta á netinu og bóka um arkitektúr, að mennskan spretti upp úr þeirri þéttingu hryggðar sem næst með endalaust umdeildri þéttingu byggðar. 28 Lífið 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ SIR ARNAR GAUTI L Í F S T Í L S Þ Á T T U R LÍFSSTÍLSÞÁTTUR SIR ARNAR GAUTI Lífsstílsfrömuðurinn Arnar Gauti snýr aftur með sína þriðju þáttaröð af þessum geysivinsæla lífsstílsþætti. Fylgstu með alla fimmtudaga kl. 20.00, bara á Hringbraut. 3. ÞÁTTARÖÐ FIMMTUDAGA KL. 20:00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.