Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 40
Mér finnst hvíld í því að setjast niður, skrifa niður hugsanir mínar og hugleiðingar, og það gerir mér líka gott. Tjáning er bók eftir Gunnar Kvaran sellóleikara og geymir hugleiðingar um tónlist, trú og tilveru, ásamt ljóðum. kolbrúnb@frettabladid.is „Ég hef lengi dundað við að skrifa og var ekkert að hugsa um útgáfu. Svo fór ég að lesa eitt og annað af þessu efni fyrir vini mína sem sögðu að þetta yrði að koma út. Þanig að ég ákvað að safna þessu efni saman þótt ekki væri nema fyrir mig, fjöl­ skylduna og vini. Svo fór þetta alla leið og kemur nú út hjá Skruddu,“ segir Gunnar. Heilandi máttur Hann segist tengja trú við tónlist og tónlist við trú. „Ég er mjög trúaður, nota bænina mikið og spila oft trú­ arlega tónlist. Í allri stórri tónlist er mikill boðskapur og oft boðskapur sem er trúarlegs eðlis. Boðskapur um fegurð, frið og kærleika. Tökum Bach sem dæmi. Tónlist hans er oft skipt upp í trúarlega tónlist og veraldlega tónlist. Hinar stóru passíur hans eru trúarlegar en þegar ég spila svítur hans finnst mér trúarmátturinn og trúarandi meistarans einnig skína þar í gegn. Bach var mjög trúaður og skrifaði undir handrit sín: Guði einum til dýrðar. Það er stórbrotið þegar maður eins og Bach gerir þetta. Það sýnir viðhorf hans og hversu auð­ mjúkur hann hefur verið gagnvart alheiminum og hinum himnesku öflum. Í mínum huga er tónlist og trú nátengd. Mér finnst það svo aug­ ljóst í tónlistinni sem ég hef verið svo heppinn að geta leitað til allt mitt líf.“ Hann segir tónlistarmenntun afar mikilvæga í uppeldi barna og verndandi fyrir þróun og þroska þeirra. „Ég er búinn að kenna í ára­ tugi og sé svo greinilega að þau börn og ungmenni sem ég hef kynnst fara ekki út af sporinu. Það er eins og vernd sé yfir þeim. Þess vegna segi ég að það sé heilandi máttur í tónlist.“ Ljóð og myndir En af hverju finnur maður sem helg­ að hefur sig tónlist nánast allt sitt líf svo sterka þörf hjá sér til að skrifa? „Þetta er þörf sem ég hef ekki getað losað mig undan. Mér finnst hvíld í því að setjast niður, skrifa niður hugsanir mínar og hugleiðingar, og það gerir mér líka gott. Þetta er kannski líka eitthvað genetískt. Einar H. Kvaran var langafi minn og pabbi, Ævar Kvaran leikari, gaf út bækur með efni sem hann hafði f lutt í útvarpi, samdi útvarpsleikrit og þýddi bækur.“ Í bókinni eru á þriðja tug ljóða og umfjöllunarefnin tengjast oft tónlist. Þarna eru til dæmis ljóð um Beethoven, Schubert, Chopin og Shostakovítsj. Bókin er hinn fal­ legasti gripur en myndir í henni eru eftir Pál frá Húsafelli, sem er góður vinur Gunnars. n Boðskapur um fegurð, frið og kærleika Ég hef lengi dundað við að skrifa, segir Gunnar Kvaran. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK kolbrúnb@frettabladid.is Sjón, Andri Snær Magnason, Kristín Eiríksdóttir, Guðrún Eva Mínervu­ dóttir og Eiríkur Örn Norðdahl koma fram á Bókamessunni í Gautaborg 23.–26. september næst­ komandi. Ljóðlist, umhverfismál, áhrif rafvæðingar á samtöl rithöfunda og félagsleg sjálf bærni eru meðal þeirra þema sem íslensku höfund­ arnir taka fyrir. Sjón mun koma fram í Rum for poesi þar sem hann mun f lytja ljóð sín en hann kemur fram ásamt þeim Margaret Atwood, Mara Lee og Ukon. Sjón tekur einnig þátt í tveimur öðrum málstofum þar sem hann fjallar um skáldsögur sínar. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl tekur þátt í málstofunni Varför behöver författare träffas? þar sem rætt verður um mikilvægi samtals í sköpun. Kristín Eiríks­ dóttir mun ræða um skáldsögu sína, Elín, ýmislegt. Einnig tekur hún þátt í samtali við guðfræðinginn og prestinn Lenu Sjöstrand um verkið í annarri málstofu. Guðrún Eva Mínervudóttir tekur þátt í málstofu ásamt danska höf­ undinum Hanne Höjgaard Viemose þar sem sjónum verður beint að því hvernig aðalpersónur í skáldsögum þessara norrænu höfunda birtast í nútímasamfélagi. Bók Andra Snæs Magnasonar, Um tímann og vatnið, hefur farið sigur­ för um heiminn, verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál. Andri Snær tekur þátt í tveimur málstofum sem báðar taka umhverfismál fyrir. Hægt verður að fylgjast með dag­ skránni á heimasíðu messunnar. n Fimm íslenskir höfundar á Bókamessunni í Gautaborg Andri Snær og Guðrún Eva verða meðal íslenskra höfunda í Gautaborg. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bók Andra Snæs Magnasonar, Um tímann og vatnið, hefur farið sigurför um heiminn, verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál. BÆKUR Umfjöllun Þórarinn Eldjárn Útgefandi Vaka Helgafell 160 síður Björn Þorláksson Aðdáendum Þórar­ ins Eldjárn líður líkt og jólin séu komin í hvert sk ipti sem skáldið sendir frá sér bók. Unnendur smásagna hans eru ekki síst fjölmargir. Fáir ef nokkrir búa yfir eins mikilli færni til að tækla knappan stíl sem jafnan vísar út fyrir sig. Og nú er hægt að kætast yfir enn einu smásagna­ safninu, hinu áttunda frá Þórarni. Ritið ber heitið Umfjöllun og geymir átta sögur. Uppbygging sagnanna og hin tálgaða húmoríska orðfimi eru tveir hæfileikar sem njóta sín vel í Umfjöllun. Framvinda kemur gjarnan á óvart og verður stundum kostuleg. Þarna er glaðværð og þarna er hlýja. Kannski munu sögurnar höfða misvel til lesenda og kannski munu þær höfða betur til miðaldra og eldra fólks en hinna yngri. Sá sem hér skrifar hló með andköfum þegar fjallað var um ekkil sem lendir í óvæntu ævintýri á gamals aldri. Sögupersónur bókarinnar eru margar hverjar komnar af léttasta skeiði og er það vel. Persónugalleríið er þannig ákveðin tilbreyting frá upphafningu æskunnar. Þórarinn hefur pælt af nokkurri djörfung í því hvað felist í því að eldast. Kynlíf gamals fólks verður sem dæmi eðli­ legasti hlutur í heimi í bókinni, sem það er, þótt sumum kunni að þykja ógn­ vænleg tilhugsun! Ein­ hver verður að skrifa um svoleiðis og þá er Þórarinn réttur maður á réttum stað. Virðing, hlýja, látleysi, skortur á stælum en bull­ andi kímni. Stundum dálítið töfraraunsæi. Kannski eru fáir Þórarni fremri í for­ vitnilegum sjónar­ hornum. Stundum teygja sögurnar sig inn á svið absúrd­ isma. Aðrar sögur tifa áfram í lógík sinni eins og vel stilltar klukkur. En hvað er skáldið heilt yfir að skrifa um í þessari bók? Í viðtali við Fréttablaðið fyrir skemmstu sagði Þórarinn að hann hefði tekið eftir því þegar hann leit yfir sögurnar að þær fjölluðu allar um eitthvað. Þannig er Þórarinn og þannig eru sögur hans. Húmor og lítil­ læti í senn. Ég hafði unun af því að lesa þessa bók. Og bókarkápan er dásemd. n NIÐUSTAÐA: Margt kemur á óvart í smásögum Þórarins þar sem húmor höfundar nýtur sín. Kynlíf gamlingja og eitthvað annað Gagnrýnandinn er hæstánægður með nýja bók Þórarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 24 Menning 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.