Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Stundum líður manni eins og allt sé einhvern veginn verra en það var fyrir ekki svo löngu. Samt eru hlut- irnir hægt og rólega að verða betri. Innan skamms verður gengið til kosninga og þar munu samfélags- miðlar venju samkvæmt spila stórt hlutverk. Sjálfur á ég nokkra vini sem eru þessa dagana að sækja um vinnu hjá íslensku þjóðinni. Þannig er einn góður vinur minn, sem nú er í framboði, allt í einu farinn að móðgast fyrir hönd einhverra hópa af því að allt of fáir ráðherrar mættu á einhvern viðburð. Aðrir sýna myndir af heimsóknum og fundar- höldum. Það er stór ákvörðun að stíga skrefið og bjóða sig fram. Hvergi er lögmálið um framboð og eftir- spurn skýrara og fyrir jafn opnum tjöldum. Sú tilhugsun að taka þetta skref frammi fyrir alþjóð og jafnvel mistakast ber vott um hugrekki og dug. Við eigum því að vera þakklát fólki úr þeim fjölmörgu flokks- framboðum sem nú bjóða sig fram að það skuli skuli leggja þetta á sig. Það á líka við um frambjóðandann sem fer óstjórnlega í taugarnar á þér. Lýðræði er ekki sjálfgefið. Samfélagsmiðlar hafa batnað mikið undanfarin ár eftir að hafa spilað alltof stórt hlutverk í kosningum víða um heim með til dæmis falsfréttum og lýðskrumi. Nú getum við séð hvað flokkarnir eyða miklu í auglýsingar á til dæmis Facebook og Instagram sem er mikilvægt aðhald. Mikilvægasta og ánægjulegasta breytingin er samt sú að nafnlausar áróðurssíður sem dreifðu óhróðri um stjórn- málafólk hafa ekki sést fyrir þessar kosningar. Vonandi verður það svo áfram. Slíkar persónuárásir eiga aldrei að líðast, því annars er hætta á að næst þegar við kjósum verði eftirspurn eftir frambjóðendum meiri en framboðið. n Kosningar 21 Haustið er tími framkvæmda Klárum verkið saman!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.