Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 41
BÆKUR Drottningin sem kunni allt nema ... Gunnar Helgason og Rán Flygenring Útgefandi: Mál og menning Fjöldi síðna: 32 bls. Brynhildur Björnsdóttir Gunnar Helgason og Rán Flygenring þarf ekki að kynna fyrir lesendum barna- og unglingabóka. Gunnar hefur sent frá sér hverja metsölu- bókaröðina á fætur annarri þar sem fjallað er um líf barna og unglinga af óvenjulegri næmni og gáska. Rán Flygenring hefur verið myndhöf- undur fjölda bóka auk þess sem hún skrifaði og myndaði verðlaunabók- ina Vigdísi – bókin um fyrsta konu- forsetann. Þegar þau leggja saman er sannarlega von á góðu og í þetta sinn eru það yngstu lesendurnir sem fá að njóta. Við fylgjumst með viðburðaríkum degi í lífi Bambalínu drottningar og Kalla aðstoðarmanns hennar (sem glöggir meðlesendur mínir voru sannfærðir um að væri vélmenni). Verkefni dagsins hjá þeim er að opna formlega nýjan leikskóla og þangað þurfa þau að komast þrátt fyrir ýmsar hindranir. Bambalína leysir allan vanda og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna enda kann hún allt. Nema eitt ... Það er alltaf einhver galdur í bókum Gunnars Helgasonar, eitt- hvað sem rígheldur við efnið, eitt- hvað ekta og jarðtengt sem nýtur sín vel hér ásamt ráðlögðum dag- skammti af galsa og glettni fyrir yngstu lesendurna. Þegar hann er að auki kominn í samstarf við myndhöfundinn Rán Flygenring þá getur útkoman ekki verið annað en skemmtileg. Samspil sögu og mynda er eins og best verður á kosið, myndirnar lýsa orðunum en bæta jafnframt við söguna og veita tækifæri til að leita að undirtexta, öðrum sögum, nýjum sjónarhornum sem gerir að verkum að bókina er gaman að lesa saman aftur og aftur. Í verki af þessum toga er ómögulegt að sjá hver er höfundur framvindu sögunnar heldur er eins og hún verði til í sífellu, í frjóu og skemmtilegu samtali höfundanna sem skilar sér svo dæmalaust vel til lesenda. Bambalína drottning á ef laust eftir að auðga samverustundir barna og þeirra sem lesa fyrir þau og er einnig með letri sem hentar vel til fyrstu lestrarskrefa nýrra lesenda.n NIÐURSTAÐA: Skemmtileg bók til að lesa fyrir, lesa með og lesa sjálf. Að geta allt BÆKUR Sjálfsævisaga Alice B. Toklas Gertrude Stein Þýðing: Tinna Björk Ómarsdóttir Fjöldi síðna: 377 Útgefandi: Una útgáfuhús Kolbrún Bergþórsdóttir Hin fræga bók Gertrude Stein, Sjálfs- ævisaga Alice B. Toklas, er loksins komin út á íslensku, þökk sé þýðand- anum Tinnu Björk Ómarsdóttur og hinum metnaðarfullu útgef- endum Unu útgáfuhúss. Rithöfundurinn Gertrude Stein er fræg fyrir setning- una Rós er rós er rós er rós. Á vinnustofu hennar í París komu listamenn saman og Stein segir frá þeim í þessari frægu bók. Gertrude Stein skrifaði bókina á sex vikum og hún kom út árið 1933. Bókin er skrifuð í orðastað Alice B. Toklas, ástkonu Gertrude Stein, og þar er nokkrum sinnum tekið skýrt fram að Stein sé snillingur. Hún er sannarlega ekki eina persóna bókarinnar sem sögð er vera snillingur, þær eru allnokkrar. Hér stíga fram á svið heims- frægir listamenn: Picasso, Matisse, Hemingway og Scott Fitzgerald, svo ein- ungis örfáir séu taldir upp. Hér úir og grúir af skemmti- legum persónulýsingum og jafn skemmtilegum slúðursögum. Bókin er fyndin og skemmtileg, sem bendir til að Stein hafi haft mikla skemmtun af að skrifa hana. List- unnendur munu njóta þessa að lesa hana umfram aðrar því hér er listalíf í forgrunni. Þarna eru óborganlegar sögur eins og af þeim ríg sem ríkti milli Picasso og Matisse. Lesandinn er allan tímann meðal skapandi fólks og vill stöðugt vita meira um það. Stein lætur það ekki eftir honum, í frásögn sinni er hún á ferð og flugi og kafar ekki djúpt í sálarlíf persóna, en hún er þó alltaf skemmtileg. Sagan er sögð frá sjónarhóli Alice en hin yfirþyrmandi persónuleiki Stein er allan tímann ráðandi. Hún yfirtekur sögusviðið og dágóður hluti bókarinnar fjallar um skrif hennar og hugmyndir um stíl. Þetta er bók fyrir alla sanna list- unnendur. n NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtileg og hugmyndarík sjálfsævisaga sem allir listunnendur ættu að njóta. Með skapandi fólki BÓNUS NETTÓ KRÓNAN FLY OVER ICELAND LÖÐUR OPIÐ ALLA DAGA kl. 10–19 Á FISKISLÓÐ 39 MARK AÐURINN ER LÍK A Á NETINU: W W W.FORL AGID. IS | GJÖF F YRIR ALL A SEM KOMA 1.490 kr. 990 kr. 1.990 kr. 1.490 kr. 990 kr. 990 kr. 990 kr. 990 kr. 690 kr. 690 kr. ALDREI BETRA VERÐ! HÁTT Í 5.000 TITLAR ENDA- LAUST ÚRVAL NÆG BÍLA- STÆÐI FIMMTUDAGUR 16. september 2021 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.