Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Vandi stjórnar- andstöð- unnar er að henni hefur ekki tekist að sýna fram á að mikil þörf sé á henni við stjórn- völinn. Barnafjöl- skyldur í Reykjavík kjósa tæp- lega Sam- fylkinguna vegna lof- orða þeirra um „fjöl- skyldur í forgang“. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Kosningabaráttan fyrir komandi alþingiskosningar er ekki til þess fallin að efla áhuga fólks á stjórn-málum. Lýsandi dæmi um þetta eru umræðuþættir í fjölmiðlum með frambjóðendum sem tala afar formúlukennt og eru svo óspennandi að það kostar andlegt átak að fylgjast með þeim til enda. Svo virðist sem íslenskir stjórnmálamenn hafi ekki neitt sér- stakt fram að færa, allavega skortir þá sannfær- ingarkraft í kosningabaráttunni. Þeir tönglast á ósannfærandi frösum sem kjósendur hafa heyrt ótal sinnum áður og eru að mestu hættir að taka mark á. Það vantar hressileika í þessa kosningabaráttu og sannfærandi málflutning. Stjórnmálabarátta á að vera öflug og inni- haldsrík en nú er aðallega boðið upp á loforð sem kjósendur vita fullvel að verða ekki upp- fyllt. Orð stjórnmálamannanna hljóma því eins og máttleysislegt mjálm. Undantekning frá því er garg og gól frá frambjóðendum Sósíal- istaflokksins og Flokki fólksins. Sá hávaði á víst að sannfæra kjósendur um að þarna séu öflugir fulltrúar alþýðunnar á ferð. Fólk með sterka réttlætiskennd sem ofbjóði kaldlyndi og græðgi kapítalistanna sem öllu ráða. Með þeirri aðferð að öskra sem hæst má sjálfsagt hala inn einhver atkvæði. Kosningarnar virðast aðallega snúast um það hvort fólk vilji áframhaldandi ríkisstjórnar- samstarf eða ekki. Vandi stjórnarandstöðunn- ar er að henni hefur ekki tekist að sýna fram á að mikil þörf sé á henni við stjórnvölinn. Það er ekki nóg að segja fólki að tími sé til að breyta bara til að breyta. Í þessu pólitíska andleysi verður ekki annað séð en að Framsóknarflokkurinn hafi hitt á slagorð sem endurspeglar andrúmsloftið hvað best: „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“ Þar opinberast fullkomlega innihaldsleysið og málefnadeyfðin sem stjórnmálaflokk- arnir sýna í kosningabaráttunni. Framsóknar- flokkurinn velur að segja það hreint út: Kjósið okkur – af því bara. n Afsökun forsetans Margt gott má segja um forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson. Hann er hins vegar of gefinn fyrir að stökkva á rétttrúnaðarvagninn. Dæmi um það er þegar hann baðst afsökunar á því að hafa notað orðið fáviti. Hann notaði orðið í merkingunni bjáni. Ekkert er að því. Enda botna fjölmargir alls ekkert í þessari afsök- unarbeiðni hans. n Af því bara Snemma á síðasta ári samþykkti meirihlutinn í Reykja- víkurborg enn eina skerðinguna á grunnþjónustu við borgarbúa, nefnilega varanlega breytingu á opnunar- tíma leikskóla borgarinnar. Með breytingunni var opnunartími og þar með svigrúm leikskóla stytt um hálfa klukkustund, eða til 16.30. Vegna háværra mót- mæla, meðal annars frá vinstrisinnuðum fyrrverandi ráðamönnum, um það að um mikla afturför væri að ræða sem kæmi verst niður á einstæðum foreldrum, útivinnandi konum og láglaunafólki, var ákvörðuninni slegið á frest. Þegar heimsfaraldur skall á notaði meiri- hlutinn hins vegar tækifærið og innleiddi skerðinguna, en á þeim grundvelli að um væri að ræða ráðstöfun vegna faraldursins. Skálkaskjól veirunnar kom því að góðum notum en skemmst er frá því að segja að opn- unartíminn var aldrei færður í upphaflegt horf og stóð því óbreyttur án tillits til tilslakana í samfélaginu. Nú dynja kosningaloforð Samfylkingarinnar á okkur eins og við séum stödd í gjafaþætti Oprah Winfrey. Samfylkingin boðar „betra líf fyrir fjölbreyttar fjöl- skyldur“ og „stóraukinn stuðning við barnafjölskyldur“ í formi hærri barnabóta – „endurreisn stuðningskerfis fyrir barnafjölskyldur á Íslandi“. Við barnafjölskyldur í Reykjavík gætum hugsanlega notað hærri barnabætur til þess að greiða fyrir barna- pössunina sem brúar bilið síðdegis vegna skertrar þjónustu á leikskólum borgarinnar. Við gætum ef til vill notað hærri barnabætur til þess að greiða hærra dagvistunargjald fyrir tímabilið frá fæðingarorlofi og til tveggja ára aldurs. Börnin okkar komast nefnilega ekki fyrr að í leikskóla í Reykjavík þrátt fyrir að Sam- fylkingin hafi lofað okkur því þrennar sveitarstjórnar- kosningar í röð; á annan áratug. Barnafjölskyldur í Reykjavík kjósa tæplega Samfylk- inguna vegna loforða þeirra um „fjölskyldur í forgang“. Þær þekkja nefnilega metnaðar- og virðingarleysi hennar fyrir barnafólki og vita að loforðin þeirra eru, eins og svo oft áður, orðin tóm. n Betra fjölskyldulíf … bara ekki í Reykjavík! Diljá Mist Einarsdóttir hrl., aðstoðar- maður utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra og skipar annað sæti á lista XD í Rvk-N arib@frettabladid.is bth@frettabladid.is Teningur Kosningaprófin tröllríða nú öllu þar sem enginn veit hvað hann á að kjósa, nema amma sem kýs alltaf það sama. Kosningavitinn er vísast til að staðsetja hyster- ískar skoðanir landans einhvers staðar á milli Miðflokksins og Pírata. Kosningapróf RÚV er einnig góður mælikvarði fyrir utan að frambjóðendurnir sjálfir eru iðulega aðeins 85 prósent sammála sjálfum sér. Leiðin að hinni fullkominni niðurstöðu er að kaupa tíu hliða Dungeons & Dragons-tening, skrifa á hann bókstafi f lokkanna og kasta þangað til það kemur niðurstaða sem veldur ekki ógleði. Íslensk iðjusemi Ótrúlegt atvik gerðist eftir slys í Lágmúlanum í gær þegar öku- maður bifreiðar ók niður unga konu á rafmagnshlaupahjóli við bílastæði. Fólk þyrptist að til að stumra yfir konunni. Það tók hana smátíma að koma sér á fætur. Þegar spurt var hvort hún vildi að kallað yrði á sjúkrabíl, neitaði hin hnarreista hetja og steig aftur á hjólið. Hún sagðist ekki hafa tíma til að standa í neinu veseni. Hún væri að verða of sein í vinnuna. Eftir sat hópur sem velti fyrir sér hvort um væri að ræða erkidæmi um íslenska iðjusemi og hvort það væri okkur sem þjóð til framdráttar eða ekki … n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.