Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 23
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, fylgdist með máli Mjólku gegn Mjólkursamsölunni á sínum tíma en Mjólkurbúið Kú, sem var arftaki Mjólku, var félagsmaður í FA á tímabili. „Við létum okkur málið varða og studdum á þessum tíma með ýmsum hætti við viðleitni Kú til að veita Mjólkursamsölunni sam- keppni og opna markaðinn,“ segir hann. Ólafur telur engan vafa leika á því að niðurstaða Samkeppnis- eftirlitsins um samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar árið 2014 hafi vakið athygli á þeirri mjög svo óheilbrigðu stöðu sem fyrirtækið hafði á íslenskum mjólkurmarkaði og ýtti á það að gera breytingar á viðskiptaháttum sínum. „Haustið 2014 lýsti MS því þannig yfir að framvegis myndi fyrirtækið selja öllum hrámjólk á sama verði. Ári síðar hafði fyrirtækið frumkvæði að því að lækka verðið á hrámjólk, með það að yfirlýstu markmiði að ýta undir nýsköpun í mjólkur- iðnaðinum. Það var sömuleiðis jákvætt skref. Dómur Hæstarétt- ar staðfesti með mjög skýrum og eindregnum hætti að MS er ekki heimilt að misbeita markaðsráð- andi stöðu sinni. Hins vegar vantar enn mikið upp á að eðlilegt sam- keppnisumhverfi ríki í mjólkur- iðnaði á Íslandi,“ bendir Ólafur á. Mun þessi dómur Hæstaréttar skipta máli fyrir bændur og neyt- endur? „Við getum sagt að hann dragi ákveðna línu að því leyti að MS getur ekki tekið upp fyrri hætti varðandi verðlagningu á hrámjólk og að mismuna framleiðendum mjólkurvara, sem ekki eru í eigna- tengslum við MS. En hann raskar ekki í grundvallaratriðum óheil- brigðu samkeppnisumhverfi á mjólkurmarkaðnum. Bændur hafa til dæmis ekki raunverulegt val um það hverjum þeir selja mjólkina sína,“ segir Ólafur en FA hefur beitt sér fyrir því að samkeppnislög gildi um alla geira atvinnulífsins, án undantekninga. „Hagsmunaaðilar í landbúnaði knýja nú mjög á um að stjórnvöld útvíkki undanþágur frá samkeppnislögum, þannig að þær gildi jafnframt fyrir kjötafurða- stöðvar, en við teljum að fyrirtæki í þeim geira eigi að lúta eftirliti samkeppnisyfirvalda eins og öll önnur. Núgildandi samkeppnislög veita þeim heimild til samruna og samstarfs að uppfylltum skilyrðum á borð við þau að neytendur njóti góðs af ávinningnum. Ef menn treysta sér ekki til að starfa innan slíks ramma er tilgangurinn alveg áreiðanlega ekki að skila neyt- endum því sem þeim ber.“ Eru einhver atriði sem þú vildir að yrðu færð til betri vegar til að auðvelda samkeppni í mjólkur- iðnaði hér á landi? „Við höfum lagt áherslu á þrennt. Í fyrsta lagi þarf að afnema undanþágu mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum. Í öðru lagi ætti MS að selja frá sér fram- leiðslueiningar til að ýta undir raunverulega samkeppni. Í þriðja lagi þurfa tollar á mjólkurafurðir að vera með þeim hætti að þeir ýti undir samkeppni. Við höfum undanfarið vakið athygli á því að annars vegar einokunarstaða MS og hins vegar gífurlega háir tollar á mjólkur- og undanrennudufti leiða af sér að innlendir matvæla- framleiðendur, sem þurfa að nota mjólkurduft í framleiðslu sína, eru í raun þvingaðir til að skipta við eitt fyrirtæki, MS. Um leið selur Mjólkursamsalan erlendum keppi- nautum þessara fyrirtækja duftið á helmingi lægra verði. Þannig er fyrirtækjum enn á ný mismunað og samkeppnisstaða innlends matvælaiðnaðar sködduð, allt til að vernda þetta eina fyrirtæki fyrir heilbrigðri samkeppni. Svona mál eru með ýmsum hætti í nágranna- löndum okkar en jafnvíðtækar undanþágur frá samkeppnis- reglum og mjólkuriðnaðurinn nýtur hér þekkjast ekki. Tollar eru líka hvergi í OECD hærri en á Íslandi.“ Margir eru á þeirri skoðun að einokunarstaða MS í mjólkur- iðnaði geti komið í veg fyrir öfluga nýsköpun í greininni. Ólafur er sammála því. „Samkeppnin er alltaf drifkraftur nýsköpunar. Það þarf bæði að efla samkeppnina innanlands og greiða leið inn- fluttra afurða að íslenskum markaði til að hvetja menn til að gera betur, í þessari grein eins og öðrum.“ n Samkeppni er drifkraftur nýsköpunar Félag atvinnurekenda hefur beitt sér fyrir því að samkeppnislög gildi um alla geira atvinnulífsins, án undantekninga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Dómur Hæstarétt- ar staðfesti með mjög skýrum og ein- dregnum hætti að MS er ekki heimilt að misbeita markaðsráðandi stöðu sinni. Ólafur Stephensen Hálfdán Óskarsson, fram- kvæmdastjóri mjólkurfram- leiðslunnar Örnu í Bolungar- vík, segir að þau hjá Örnu fagni aukinni samkeppni í íslenskum mjólkuriðnaði. „Það hefur lengi nánast bara verið Mjólkursamsalan á þessum mark- aði en við höfum lengi verið stærsti aðilinn á markaði fyrir utan hana. En við fögnum aukinni samkeppni hvaðan sem hún kemur, sam- keppni eflir mann bara í að gera betur,“ segir hann. Aðspurður hvaða áhrif barátta Mjólku hefur haft á samkeppnis- umhverfið í mjólkuriðnaði og á Örnu segir Hálfdán að barátta Mjólku hafi í raun ekki haft mikil áhrif á þau. „Við erum stofnuð árið 2013 og þá var Mjólka hætt starfsemi. Þessi kærumál gerðust fyrir þann tíma. Þegar við byrjuðum á markaði var annað fyrirkomulag í gangi en áður. Við kaupum mjólkina beint af Auðhumlu en ekki af Mjólkur- samsölunni. En svo fellur dómur árið 2018 eða 19 þar sem er staðfest að Mjólkursamsalan þurfi að starfa undir samkeppnislögum eins og allir aðrir. Sá dómur er auðvitað mjög góður fyrir okkur,“ segir hann. „Eins og það lítur út gagnvart okkur þá erum við bara í sam- keppni við Mjólkursamsöluna og aðra sem eru á mjólkurmarkaði og einbeitum okkur að því sem við erum að gera,“ segir Hálfdán þegar hann er spurður hvort það séu ein- hver atriði sem hann vildi að yrðu færð til betri vegar til að auðvelda samkeppni á mjólkurmarkaði. „Á meðan Mjólkursamsalan kemst ekki upp með að nýta sér yfirburði, þeir eru náttúrlega markaðsráðandi fyrirtæki á markaðnum, þá bara störfum við í þessu samkeppnisumhverfi eins og það er hverju sinni.“ n Við í Örnu fögnum aukinni samkeppni Hálfdán Óskarsson segir samkeppni efla mann í að gera betur. MYND/AÐSEND Við fögnum auk- inni samkeppni hvaðan sem hún kemur. Hálfdán Óskarsson kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 16. september 2021 FÖGNUM FRELSINU SA MK EPPNI LIFI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.