Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 14
Það er ekki sjálfsagt að geta sótt sér hreint drykkjar- vatn eða heitt vatn til hús- hitunar í næsta nágrenni eins og víða er hægt á Íslandi. Vísinda- garðar HÍ í Vatns- mýrinni eru gott dæmi um blómlegan og vaxandi vettvang slíkrar samvinnu, sem hefur nú þegar skilað miklu til samfélags- ins. Heildartekjur á ársnema 2019 6 5 4 3 2 1 0 Danmörk Noregur Svíþjóð Finnland Háskóli Íslands Samtals m.kr. Háskóli Íslands í samanburði við hin Norðurlöndin 5,5 4,8 4,6 3,7 2,9 4,6 Háskólamenntun, rannsóknir og nýsköpun hafa fært Íslendingum meiri hagsæld og öryggi en nokkurn gat órað fyrir þegar Háskóli Íslands var stofnaður af fátækri þjóð með stórar hugsjónir árið 1911. Lífslíkur og kjör almennings hafa stórbatn- að og tækifæri til menntunar og símenntunar margfaldast. Háskólar eru enda vettvangur frjálsrar þekk- ingarleitar, skapandi hugsunar og menntunar nýrra kynslóða. Þeir hafa snerpu og kjark til að breytast í ljósi nýrra viðfangsefna og ryðja þannig brautina. Háskóli Íslands hefur allt þetta að leiðarljósi. Hann er breiður alhliða háskóli sem leggur kapp á að þjóna margvíslegum þörfum íslensks samfélags og atvinnulífs. Á síðustu tveimur áratugum hefur skólinn komist í hóp fremstu rannsókna- háskóla heims og hefur sá árangur fært okkur tækifæri til samstarfs við bestu rannsóknastofnanir og háskóla austan hafs og vestan. Sterk alþjóðleg staða HÍ er staðfest með röðun hans á helstu matslista yfir fremstu háskóla heims. Það skapar ótal tækifæri fyrir nemendur og kennara skólans auk þess að laða fremstu vísindamenn heims til samstarfs. Þessi staða er forsenda þess að íslenskt samfélag fái notið alls þess besta sem alþjóðlegt fræða- samfélag býður. Háskóli Íslands hefur á undan- förnum árum sett sér skýra stefnu um þróun eigin starfs og fylgt henni markvisst eftir. Í nýrri stefnu háskólans fyrir árin 2021–2026, sem samþykkt var í júní, er lögð áhersla á að takast á við brýn viðfangsefni samtímans. Einnig er lagt kapp á að bjóða fjölbreyttar leiðir til náms, hágæða kennslu og öflugt samfélag nemenda og kennara. Aðkallandi áskoranir framtíðarinnar, sem m.a. má rekja til aukinnar alþjóða- væðingar, umhverfis- og loftslag- svárinnar og fjórðu iðnbyltingar- innar, kalla á framsæknar lausnir sem byggjast á nýjustu þekkingu og þverfræðilegri nálgun og sam- starfi. Þróun háskóla á næstu árum mun skipta sköpum fyrir getu sam- félaga til að takast á við þau flóknu úrlausnarefni sem heimurinn stendur frammi fyrir. Mikilvægt er að háskólar geri nemendum kleift að spreyta sig á raunhæfum verkefnum í takt við tímann. Fróðleiksþorsti þeirra eykst við að sjá nýja þekkingu verða til, ekki síst þegar þeir eiga sjálfir þátt í öflun hennar. Aukin áhersla á nýsköpunar- og frumkvöðlastarf með þátttöku nemenda stuðlar að skarpari sýn á þeirra eigin styrk og færni í að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Innan Háskóla Íslands er afar frjór jarðvegur fyrir nýjar hugmyndir sem leiða til nýrra tækifæra. Þetta á raunar almennt við um háskóla en ýmsar lausnir við COVID-19 voru t.d. fyrst mótaðar í háskólum og urðu síðan að bóluefnum í þróun- ardeildum fyrirtækja. Það er vegna slíkra sameiginlegra markmiða sem fyrirtæki og háskólar leggjast saman á árarnar. Samstarf okkar í HÍ við atvinnulífið er gríðarlega mikilvægt og gagnvirkt. Vísinda- garðar HÍ í Vatnsmýrinni eru gott dæmi um blómlegan og vaxandi vettvang slíkrar samvinnu, sem hefur nú þegar skilað miklu til samfélagsins. Samstarfið leiðir jafn- framt til þróunar starfsnáms, nýrra námsleiða, öflugs doktorsnáms og fæðir af sér sameiginlegar rann- sóknir og þróun hugmynda, vara eða þjónustu sem aftur leiðir af sér ný störf og jafnvel ný svið iðnaðar. Það er lykilatriði að íslenskt Háskólamenntun bætir lífskjör okkar allra Á degi íslenskrar náttúru er við hæfi að minnast á hvað íslensk náttúra þýðir fyrir okkur sem hér búum. Náttúran er stórkostleg og svipmikil á Íslandi, hún er alltum- lykjandi og til hennar sækjum við lífsviðurværi okkar og nútíma- þægindi. Hérna spilar jarðfræðin stóran þátt í myndun og mótun landsins með eldvirkni og gliðnun, jöklum og vind- og vatnsrofi. Norð- læg hnattstaða, einangrun eyjunn- ar og sú staðreynd að stutt er síðan ísaldarjökullinn huldi landið gerir það að verkum að hér eru færri tegundir margra lífveruhópa en gengur og gerist á sambærilegum breiddargráðum. Vegna þessa hefur samkeppni á milli tegunda verið minni en ella sem skapað hefur skilyrði fyrir landnemateg- undir til að laga sig að f leiri vistum og búa við fjölbreyttari búsvæði en annars væri. Gott dæmi um þetta er þróun fjögurra ólíkra gerða bleikju í Þingvallavatni. Náttúran er jafnframt uppspretta gæða sem við mennirnir njótum góðs af, m.a. hreint, kalt og heitt vatn og raf- magn sem við teljum sjálfsagðan hlut, en er í raun vandmeðfarinn munaður á forsendum náttúrunn- ar. Án þeirrar þjónustu sem nátt- úruleg vistkerfi veita okkur yrði fótunum kippt hratt og örugglega undan samfélögum manna og lífs- háttum. Þjónustu vistkerfa má skipta í afurðir og auðlindir sem við nýtum beint frá náttúrunni, s.s. að upplifa og njóta náttúrunnar á andlegan hátt og rækta þannig menninguna, og starfsemi og ferla í vistkerfum sem t.d. binda koltvísýring, ala af sér byggingarefni og fæðu, hreinsa eiturefni úr umhverfinu og búa til heilnæmt loft og vatn. Menningar- tengd þjónusta felur í sér tækifæri til útivistar og menntunar en starf- ræn þjónusta vistkerfa felur m.a. í sér frævun plantna, hringrás nær- ingarefna og f lóðvarnir votlendis. Slakt náttúrulæsi Það er ekki sjálfsagt að geta sótt sér hreint drykkjarvatn eða heitt vatn til húshitunar í næsta nágrenni eins og víða er hægt á Íslandi. Standa þarf vörð um náttúrulega starf- semi vistkerfa og þjónustu þeirra og umgangast af virðingu. Þetta vísar til allrar náttúru Íslands, svo sem vistkerfa í sjó, í ferskvatni og á þurrlendi. Það er okkur lífsspurs- mál að vistkerfin virki á þann hátt sem náttúran skapaði með sínum lífverum og lífrænu og ólífrænu ferlum sem einkenna þau. Það er auðvelt að rífa niður og eyðileggja en erfitt og tímafrekt að byggja frá grunni og endurheimta. Mikil- vægt er að fræðsla um gangverk náttúrunnar sé vönduð og öf lug og má í því sambandi vitna til orða Guðmundar Páls Ólafssonar, nátt- úrufræðings og -verndara, um að „fólk verndar aðeins það sem það elskar, það elskar aðeins það sem það þekkir og það þekkir bara það sem því er kennt“. Ísland hefur undanfarið komið töluvert slakar út en nágranna- þjóðirnar í náttúrulæsi barna Á degi íslenskrar náttúru Isabel Alejandra Diaz forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands háskólakerfi sé samkeppnishæft um starfsfólk og nemendur. For- senda þess að Háskóli Íslands nái að halda áfram sókn sinni á næstu árum og auka þannig hagsæld á Íslandi er að fjármögnun skólans sé á pari við það sem tíðkast ann- ars staðar á Norðurlöndum. Yfirlýst opinber vísinda- og tæknistefna fyrir 2020–2022 kveður á um að auka gæði háskólastarfs og efla fjár- mögnun háskólanna á Íslandi þar til hún verður sambærileg við háskóla á Norðurlöndum árið 2025. Íslensk- ir háskólar standa norrænum samanburðarskólum enn langt að baki þegar kemur að fjármögnum eins og fram kemur á meðfylgjandi mynd. Þar má sjá að meðalframlag á hvern háskólanema hér á landi er 2,9 m.kr. en á Norðurlöndum er meðaltalið 4,6 m.kr. Hérlendis fær hver nemi því um 1,7 m.kr. lægra framlag. Ekki nægir að standa vörð um það sem áunnist hefur, heldur þarf að sækja fram af krafti. Nauðsynlegt er að forgangsraða í þágu háskóla- stigsins á næstu árum og setja okkur til jafns við samanburðarlöndin. Það er grundvallaratriði að vinna upp fjárhagslegan aðstöðumun með bættri fjármögnun á komandi kjör- tímabili í samræmi við Vísinda- og tæknistefnu. Hver króna sem sett er í háskólakerfið er vel nýtt, en erlendar og innlendar úttektir hafa ítrekað staðfest að Háskóli Íslands er afar skilvirkur og vel rekinn. Styrkja verður innviði Háskóla Íslands til þess að tryggja honum samkeppnishæfni í alþjóðlegu umhverfi og áframhaldandi sér- stöðu. Grunnfjármögnun skiptir hér höfuðmáli, ekki síst þegar kemur að rannsóknum, sem hafa ótvírætt gildi í sjálfu sér, auk þess sem þær dýpka námið og eru und- irstaða bættrar kennslu. Háskóla- menntun bætir lífskjör og henni fylgja iðulega hagnýtar uppgötvanir í ólíkum fræðigreinum. Rannsóknir í háskólum leiða til nýrra starfa, fyrirtækja og jafnvel heilla nýrra iðngreina. Þekkingin sem verður til innan háskólanna er því án vafa traustasti gjaldmiðill framtíðarinn- ar. n Dr. Ragnhildur Guðmundsdóttir sérfræðingur samkvæmt PISA-könnununum og verður að bæta úr því með öflugri kennslu í náttúrufræðum. PISA- könnunin metur hversu færir nemendur eru í að takast á við hugmyndir og málefni sem tengj- ast vísindum á ígrundaðan hátt. Mikilvægi slíkrar vísindalegrar færni hefur aldrei verið brýnni en nú á tímum, ekki síst vegna aukins aðgangs að fjöl- og samfélagsmiðl- um og misvísandi upplýsinga um hamfarahlýnun og heimsfaraldur kórónuveirunnar. Það er sannar- lega lífsspursmál fyrir þjóð sem byggir að stórum hluta sitt viður- væri á náttúrunni að þegnar lands- ins séu læsir á land sitt og náttúru. Náttúruminjasafn Íslands hefur það hlutverk að miðla fræðslu til skóla og almennings og sinnir fræðslu í náttúrufræðum fyrir öll skólastig, frá leikskólum til háskóla. Við tökum með ánægju á móti almenningi og skólahópum á sýningunni Vatnið í náttúru Íslands í Perlunni, þar sem fræðast má um ferskvatnið sem auðlind, líf- ríki þess og sérstöðu Íslands í þeim efnum. Nú styttist einnig í að Nátt- úruminjasafnið eignist sínar eigin höfuðstöðvar, á Seltjarnarnesi, þar sem boðið verður upp á veglegt sýningarhald og þjónustu við skóla. Stefnt er að opnun árið 2023. Þema þeirrar sýningar verður að líkind- um hafið og styður staðsetningin frábærlega við það, Bakkatjörn, fjaran, ströndin og Atlantshafið allt um kring. Flutningur Nátt- úruminjasafnsins í nýjar höfuð- stöðvar, Náttúruhús í Nesi, felur í sér veglega viðbót við náttúru- fræðikennslu í landinu og er það von okkar að það ef li náttúru- og vísindalæsi nemenda og almenn- ings. n 14 Skoðun 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.