Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 16
Tilfinningin eftir þetta mót er fyrst og fremst vonbrigði. Mér finnst ég tæknilega jafn góður og Rajabov sem ég tapaði fyrir. kristinnpall@frettabladid.is HANDBOLTI Ef spá fyrirliða, forráða- manna og þjálfara fyrir komandi tímabil á Íslandsmótinu í handbolta rætist verða það tvö sigursælustu lið Íslands, Framkonur og Valskarlar, sem vinna Íslandsmeistaratitilinn næsta haust. Tímabilið karlamegin hefst í kvöld en fyrsta umferðin í kvennadeildinni hefst um helgina þar sem Íslandsmeistaravörn Akur- eyringa hefst á heimavelli gegn ÍBV. Búist er við mikilli spennu á milli tveggja sigursælustu liða kvenna- boltans ef marka má spána þar sem Fram fékk 127 stig og Valur 126 stig. Í 81 árs sögu Íslandsmótsins hafa þessi tvö lið unnið 39 Íslandsmeist- aratitla sín á milli, þar af Framkonur 22 sinnum. Í karlaf lokki voru f lestir sam- mála um að Valsmönnum tækist að verja Íslandsmeistaratitilinn. Takist Valsmönnum að verja titil- inn verður það 24. Íslandsmeistara- titillinn í sögu karlaliðs Vals en næst sigursælasta liðið, FH, er með sextán Íslandsmeistaratitla. n Spá Val og Fram meistaratitlunum Ragnhildur verður í lykilhlutverki hjá Fram í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Guðni Þór Einarsson er hættur störfum sem þjálfari kvennaliðs Tindastóls í fótbolta en feykir.is greinir frá þessu. Guðni Þór hefur þjálfað Tindastól frá 2018 en hann stýrði liðinu upp í 1. deild ásamt Jóni Stefáni Jónssyni á fyrsta tímabili þeirra.Tindastóll komst svo upp í efstu deild í fyrsta skipti í sögunni haustið eftir. Þar stöldruðu Stólarnir stutt við þar sem liðið féll á dögunum. „Ég vil þakka leikmönnum og meðþjálfurum kærlega fyrir frá- bæra tíma. Ég vil þakka þeim stjórnarmönnum sem hafa sýnt mér traust, kvennaráði fyrir frá- bært samstarf og stuðningsmönn- um fyrir frábæran stuðning,“ segir Guðni Þór í samtali við Feyki. n Guðni Þór hættur hjá Tindastóli hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Knattspyrnudeild ÍBV tilkynnti í gær að Helgi Sigurðsson hefði óskað þess að láta af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins að tímabilinu loknu. Helgi hefur þjálfað liðið síðustu tvö keppnistímabil en undir hans stjórn komst liðið upp í efstu deild á dögunum. Fram kemur í yfir- lýsingunni að Helgi vilji búa nær fjölskyldu sinni og hyggist f lytja á höfuðborgarsvæðið. „Eftir tvö ár sem þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍBV hefur Helgi Sigurðsson óskað eftir að hætta með liðið eftir yfirstandandi keppnistímabil.“ n Helgi hættir að tímabilinu loknu Frá keppni í hnefaleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnpall@frettabladid.is HNEFALEIKAR Erlendir fjölmiðlar birtu í gær bréf sem Christophe De Kepper, meðlimur í stjórn Ólympíu- nefndarinnar, sendi Alþjóðahnefa- leikasambandinu um að umbóta væri kraf ist á starfsemi sam- bandsins ef hnefaleikar ættu að vera meðal íþrótta á Ólympíuleik- unum í París árið 2024. Alþjóðlega hnefaleikasambandið, AIBA, kom ekki að skipulagningu hnefaleika- keppninnar á Ólympíuleikum eftir að ákvörðun var tekin árið 2019 um að útiloka AIBA frá skipulagningu. Meðal þess sem Ólympíunefndin var ósátt við voru starfshættir Gafur Rakhiov, þáverandi forseta hnefa- leikasambandsins, en hann steig frá borði árið 2019. Sambandið hefur um árabil verið sakað um spillingu sem hafi leitt til fjárhags- legra vandamála ásamt fjölmörgum öðrum vandamálum. „Þegar litið er til þess hversu mörg vandamál eru enn til staðar var ákveðið að fara í ítarlega útttekt á starfsemi Alþjóðahnefaleikasam- bandsins til þess að hægt sé að taka ákvörðun til framtíðar. Í ljósi þess vill Ólympíunefndin lýsa yfir áhyggjum og ítreka að staða hnefa- leika á Ólympíuleikunum í París 2024 og næstu Ólympíuleikum er í hættu ef ekki verður gripið til aðgerða í tæka tíð,“ segir meðal ann- ars í bréfinu. n Óvíst með framtíð hnefaleika á Ólympíuleikunum 16 Íþróttir 16. september 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2021 FIMMTUDAGUR Hinn 18 ára gamli bardaga- maður Mikael Leó Aclipen þreytti frumraun sína í MMA á heimsbikarmóti áhuga- manna. Mikael Leó er svekkt- ur yfir árangri sínum sem var þó glæsilegur, bronsverðlaun. hjorvaro@frettabladid.is BARDAGAÍÞRÓTTIR Mikael Leó Aclipen keppti í fyrstu MMA-bar- dögunum á ferli sínum á dögunum þegar hann hreppti bronsverðlaun á heimsbikarmóti áhugamanna sem fram fór í Prag í Tékklandi. Þar sigraði Mikael Leó sterkan Úkraínumann í frumraun sinni í MMA, lagði síðan Slóvaka að velli áður en hann laut í lægra haldi fyrir Otabek Rajabov frá Tadsíkistan sem er ríkjandi Evrópumeistari og ósigr- aður sem áhugamaður í MMA. „Tilfinningin eftir þetta mót er fyrst og fremst vonbrigði. Mér finnst ég tæknilega jafn góður og Rajabov sem ég tapaði fyrir en hann var ferskari en ég í bardaganum okkar. Þá nýtti hann sér reynsluna og náði betra jafnvægi í því að vera yfirvegaður þegar þess þurfti og herja á mig þegar ég var ekki nógu vakandi,“ segir Mikael Leó um sína fyrstu bardaga í MMA. „Það tók mig smá tíma að venjast því að berjast í minna búri en ég er vanur þegar ég er að æfa og keppa hjá Mjölni. Svo var ég kannski full rólegur þegar út í bardagana var komið og ég þarf að æfa mig í að ná betra jafnvægi í því að vera í meiri keppnisgír, vera meira vakandi og sækja af meiri krafti þegar færi gefst,“ segir hann enn fremur. „Þetta var aðeins of mikið annað- hvort eða, það er að vera afslappað- ur og fara svo beint yfir í bardaga- ham. Svo þarf ég að spara orkuna betur, en ég fann það alveg í þriðja bardaganum að tankurinn var ansi tómur og Rajabov var með mun meiri orku,“ segir Mikael Leó. Fer í hefndarhug til Kasakstan „Andstæðingar mínir á heimsbikar- mótinu eru bara á pari við þá sem ég æfi með hjá Mjölni tæknilega að mínu mati en þeir eru hins vegar betri í því að nýta sér veikleika mína og svo hafa þeir vopn sem æfinga- félagar mínir hafa ekki. Æfingafélagar mínir vita svo af styrkleikum mínum og reyna ekki að fara með mig í gólfið eða ná hengingartaki svo dæmi séu tekin. Þessir andstæðingar voru hins vegar f ljótari að fara í aðgerðir og stundum var ég að bregðast við eftir að ég var kominn í vonda stöðu í stað þess að bregðast við áður en sótt er að mér,“ segir þessi 18 ára bardagamaður. „Ég hef keppt í blönduðum bar- dagalistum, brasilísku jiu jitsu, glímu og boxi og þar hef ég öðlast færni í öllum þeim þáttum sem þarf að hafa í vopnabúrinu til þess að standa sig vel í MMA. Þetta er hins vegar spurning líka um að vita hve- nær maður á að beita hvaða vopni og hversu fast eigi að sparka og kýla. Ég fer reynslunni ríkari í komandi mót,“ segir hann. „Eftir að hafa hvílt mig eftir erf- iða bardaga og ferðalagið í tvo daga byja ég aftur að æfa af fullum krafti fyrir næstu verkefni og vinna í því sem ég þarf að bæta. Ég stefni að því að taka þátt í heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Kasakstan í nóvember. Ég þarf að fara yfir það með Mjölnis- mönnum hvort það sé mögulegt, út frá kostnaði og utanumhaldi. Þar verður Rajabov á meðal kepp- enda og ég get ekki beðið eftir því að mæta honum aftur. Það er þægilegt að vita hvar ég stend í samanburði við þá sem eru að taka þátt á þessum mótum. Að finna það að ég sé tækni- lega jafn góður, get notað sömu vopn og vita hvað ég þarf að bæta til þess að vinna þá er frábært. Fram undan eru æfingar og mikil vinna við að halda áfram að bæta mig tæknilega, líkamlega og andlega fyrir næsta mót,“ segir Mikael Leó. n Mikael Leó sneri heim vonsvikinn þrátt fyrir brons í frumraun sinni Mikael Leó Aclipen stefnir hátt í MMA og var ekki sáttur við árangur sinn á heimsbikar- mótinu en hann kom heim með bronsverð- launapening um hálsinn. MYNDIR/ÁSGEIR MARTEINNSSON Mikael hafði betur í fyrstu tveimur bardögum sínum. Þegar í þriðja bardagann var komið var orkan orðin lítil.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.