Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 2
Háskólagarðar við Nauthólsveg formlega opnaðir Hverfandi sumarsólin skein á gesti við opnun nýrra Háskólagarða í Öskjuhlíðinni í gær þar sem rúmlega 250 íbúðir og herbergi fyrir nemendur Háskólans í Reykjavík voru tekin í notkun. Ragnhildur Helgadóttir, nýráðinn rektor, sagði að mikið gleðiefni væri að geta loksins opnað garðana. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR RENAULT EXPRESS NÝR Fyrir kröfuharða fagaðila BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is 5 ÁRA ÁBYRGÐ! Renault Express Dísil (5,1 l/100 km*), beinskiptur, Verð: 2.733.870 kr. án vsk. Verð: 3.390.00 kr. *Drægni miðast við uppgefnar tölur framleiðanda samkvæmt nýjum WLTP staðli um drægni í raunvegulegum aðstæðum. Dóra María Lárusdóttir, sem varð Íslandsmeistari með Val á dögunum, spilar með nokkrum stelpum sem voru ekki fæddar þegar hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val. Það er stundum gert grín að henni fyrir orðanotkun í klefanum. benediktboas@frettablaid.is FÓTBOLTI Dóra María Lárusdóttir varð Íslandsmeistari með Vals- konum á dögunum í áttunda skiptið. Aðeins Vanda Sigurgeirsdóttir er með f leiri Íslandsmeistaratitla í kvennaknattspyrnu. Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val 13. júlí 2001 og síðan eru þeir orðnir 269 talsins og mörkin orðin 94 í deildinni. Alls hefur hún spilað á ferlinum 333 leiki fyrir Val og skorað 118 mörk auk 114 landsleikja þar sem hún skoraði 18 mörk. Í liði Vals í dag eru meðal annars Ída Marín Hermannsdóttir, sem var ekki fædd þegar Dóra spilaði fyrsta leikinn sinn í meistaraflokki. Vara- markvörðurinn Katla Tryggvadóttir er fædd 2005 en þá var Dóra búin að vera í tvö ár í landsliðinu. Svo er Arna Eiríksdóttir, sem kom í heim- inn 2002 og viðurkennir að Dóra sé sín helsta fyrirmynd þegar kemur að fótboltanum. Þegar Valur varð Íslandsmeistari árið 2008 fékk Arna einmitt mynd af sér með goðinu sem hún spilar núna með. Dóra hefur einmitt fylgst vel með öllum Eiríksdætrum enda mamma þeirra, Guðrún Sæmundsdóttir, goð- sögn í kvennaboltanum. „Þær systur eru allar mjög góðar í fótbolta en mjög ólíkar. Þær eru eins og ég, upp- aldar í 108 en foreldrar okkar eru Valsarar og við eltum þá,“ segir Dóra. Hún segir að þær geti komist eins langt og Hlín, sem er þegar farin að láta að sér kveða í atvinnumennsku og íslenska landsliðinu. Dóra, sem er 36 ára og var að klára sitt tuttugasta tímabil í efstu deild, segir að sér líði vel og hún sé ekkert að spá í hvort hún sé hætt eða ekki. „Ég upplifi mig oft sem mikið aðhlátursefni í klefanum. Þær stelp- urnar hlæja að mér eins og ég að mömmu minni fyrir orðanotkun og annað. Ég er alltaf að reyna að vera hipp og kúl en með misjöfnum árangri,“ segir Dóra María. Hún bendir á að hún sé eldri en pabbi einnar stelpu í liðinu og sé hætt að reyna að skipta sér af tón- listinni í klefanum. „Það er fullt af spennandi hlutum í gangi. Valur er með geggjað lið núna og að komast í riðlakeppni meistaradeildarinnar er raunhæfur möguleiki. Mér fannst tímabilið í fyrra svo- lítið leiðinlegt með öllum þessum Covid-stoppum en ég sagði nú ein- hvern tímann að það væri erfitt að finna tímapunkt til að hætta, hvað þá þegar vel gengur. Sjáum til,“ segir Dóra María.n Búin með tuttugu tímabil og átta Íslandsmeistaratitla Dóra María fagnar með þeim Örnu og Málfríði Eiríksdætrum, samherjum sínum, en þær hafa litið upp til hennar síðan þær fögnuðu með henni litlar stúlkur árið 2008. Sú þriðja er Snædís Logadóttir. MYNDIR/FÓTBOLTI.NET Þær stelpurnar hlæja að mér eins og ég að mömmu minni fyrir orðanotkun og annað. Dóra María Lárusdóttir arnartomas@frettabladid.is REYKJAVÍK Að minnsta kosti tveim- ur húsum í leikskólanum Ægisborg hefur verið lokað eftir að mygla fannst þar á bæ. DV greindi fyrst frá. Á foreldrafundi sem fór fram í fyrradag barst í tal að myglan væri mögulega tilkomin vegna skorts á drenlögnum. Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir síðan framkvæmdum lauk á leik- skólanum, kostnaður hverra hljóp á tæplega hundrað milljónum króna. Samkvæmt útboðsgögnum var drenlögn ekki hluti af framkvæmd- unum. Myglumál hafa verið áberandi í skólum Reykjavíkur að undan- förnu en líkt og Fréttablaðið greindi frá var Fossvogsskóla lokað í kjölfar mikillar myglu og rakaskemmda. n Ægisborg lokað vegna myglu arnartomas@frettabladid.is TÆKNI Hraði niðurhals á Íslandi er næstbestur allra ríkja heims, eða um 191 megabit á sekúndu. Þetta kemur fram í mælingum breska fjarskiptafyrirtækisins Cable.co.uk á 224 ríkjum. Þar kemur fram að niðurhalið sé alla jafna hratt í smáríkjum og sé hraðast ríkja í Liechtenstein. Á eftir Íslandi er niðurhalið hraðast í Andorra og á Gíbraltar. Hraðasta niðurhalið er þó að finna á eynni Jersey í Ermarsundi. Hægast er nið- urhalið í Túrkmenistan, eða um 0,5 megabit á sekúndu. Þar á eftir fylgja Jemen, Eþíópía og Gínea-Bissá. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá notuðu 96 prósent Íslendinga netið til að horfa á myndbönd eða lesa fréttir á síðasta ári. Það er hæsta hlutfallið í Evrópu. n Niðurhalið hér það næsthraðasta Íslendingar eru dyggir netverjar. arnartomas@frettabladid.is TÖLVULEIKIR Fulltrúar tölvuleikja- iðnaðarins á Íslandi undirrita í dag sáttmála sem felur í sér að skapa starfsumhverfi þar sem hegðun á borð við kynferðislega áreitni og ofbeldi verði ekki liðin. „Við höfum verið að sjá að bæði í erlendum leikjafyrirtækjum og í íslensku samfélagi er rótgróna, eitraða menningu víða að finna,“ segir Þorgeir F. Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda. „Það er samhugur í íslenska leikjaiðnað- inum um að þetta er ekki menning sem við viljum að nái fótfestu hér.“ n Gera sáttmála gegn ofbeldi Þorgeir F. Óðinsson 2 Fréttir 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.