Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég er frá Svíþjóð en hef búið á
Íslandi í 32 ár. Ég vann sem kennari
í Waldorfskólanum í Lækjarbotn
um í 22 ár. Ég er enn í aðdáenda
klúbbnum og nú er ég amma með
tvö barnabörn þar og önnur dóttir
mín er að kenna þar,“ segir Kerstin.
„Þetta er svo spennandi uppeldis
starf, svo skapandi. Þar gengur öll
manneskjan í skóla. Þar er reynt
að næra alla manneskjuna; hug,
hjarta og hönd. Það eru einkennis
orð Waldorfskóla um allan heim
og þrífast þeir í mjög ólíkum sam
félögum og öllum heimshlutum,
en nálgunin er einmitt svo sam
mannleg.“
Streymandi nudd
„Ég er í Mannspekifélaginu. Það er
eiginlega svipuð pæling: nærandi
fyrir manneskjuna sem heild.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á heilsu og í mannspekinni er
læknisfræði sem er viðbót við
hefðbundna læknisfræði, ant
hroposophical medicine,“ segir
Kerstin. „Mér finnst alltaf svo
spennandi þegar manneskjan er
skoðuð sem heild en ekki bara
kannski stök einkenni.
Sjálf hef ég lært Presselnudd
en margir vilja frekar kalla það
streymandi nudd því það hefur
það að aðalmarkmiði að örva flæði
í líkamanum,“ útskýrir Kerstin.
„Þannig losnar um alls konar
stíflur og manneskjan getur náð
betri heilsu eða/og líðan því allt
kerfið vinnur betur saman.“
Hamlandi
sjálfsofnæmissjúkdómur
„Þegar ég varð fimmtug fékk ég
sjálfsofnæmissjúkdóm. Ég þurfti í
framhaldi af því að vera í stera
meðferð í níu ár. Sterarnir gerðu
það að verkum að ég fékk bein
þynningu,“ segir Kerstin.
„Ég las auglýsingu frá Osteo
Strong, þá fyrstu sem kom frá
þeim, og fór fljótlega í prufutíma.
Mér fannst svo áhugavert það sem
þar var gert en ég var ekki nógu
ákveðin,“ segir Kerstin. „Þá vissi ég
ekki af því að ég væri komin með
beinþynningu.“
OsteoStrong af alvöru
„Þegar ég var svo greind með bein
þynningu seinna á því ári þá vissi
ég alveg hvað ég vildi gera,“ segir
Kerstin.
„Beinþynningin var mikil. Ég
var komin með beinþynningu í
hrygg og beingisnun í útlimum.
Það hræddi mig. Ég elska að hreyfa
mig, elska að labba, hlaupa, hjóla
og synda,“ segir Kerstin. „Ég gat
ekki hugsað til þess að vera minna
frjáls í eigin líkama og þess vegna
vildi ég prófa OsteoStrong, þannig
byrjaði ég af alvöru.“
Laus við beinþynningu
„Ég var mjög dugleg og mætti mjög
reglulega alveg fram í apríl á þessu
ári, eða í um það bil eitt og hálft
ár,“ segir Kerstin. „Svo fór ég í ferð
til Svíþjóðar og þegar ég kom heim
var ég önnum kafin í vinnunni
og náði ekki að koma inn þessum
vikulegu heimsóknum í Osteo
Strong fyrr en seinna um sumarið.
Í byrjun júní fékk ég svo loksins
að fara aftur í beinþéttnimælingu.
Geislafræðingurinn sem sá um
mælinguna sagði: „Vá, hvað þetta
er hröð bæting hjá þér.“ Ég mældist
bara miklu, miklu betri!“ segir
Kerstin brosandi. „Þá var ég ekki
lengur með beingisnun í útlim
unum, þeir voru bara eðlilegir og
hryggurinn hafði styrkst það mikið
að nú mældist hann bara með
beingisnun. Þetta var alger sigur
fyrir mig. Nú held ég bara áfram og
klára þessa gisnun í bakinu líka.“
Gleymdi að taka lyfin
„Ég var sett á lyf við beinþynningu
Kerstin hafði prófað OsteoStrong áður en hún greindist með beinþynningu og þegar hún fékk greininguna vissi hún strax að hún vildi leita aftur þangað.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Kerstin er ekki lengur með beingisnun í útlimunum og hryggurinn hefur styrkst mjög mikið.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ástundun hjá OsteoStrong tekur einungis 20 mínútur
einu sinni í viku. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Flestir geta nýtt sér það sem OsteoStrong
býður upp á óháð aldri
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liðamótum
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
þegar ég greindist en þau á að taka
einu sinni í viku og á morgnana á
fastandi maga og svo ekki borða
neitt í 30 mínútur á eftir, ég gleymi
bara oft að taka þau og það líða oft
2–3 vikur á milli,“ útskýrir Kerstin.
Óvænt sprenging ferðamanna
„Ég vinn í ferðabransanum og þar
var mikið álag í sumar þannig að
ég fækkaði heimsóknum í Osteo
Strong. Fámennt var í f lestum
ferðafyrirtækjum og mun fleiri
ferðamenn eða hraðari aukning en
búist var við. Þegar ég var í burtu
frá OsteoStrong í sumar fann ég
að ég saknaði þess, orkunnar og
styrksins. Þessa dagana geng ég,
syndi og passa að mæta vikulega
í OsteoStrong. Ég ætla ekki að
sleppa því núna – þó það sé mikið
að gera í vinnunni,“ segir Kerstin
og hlær.
Þakklát fyrir sterk bein
„Ég þakka OsteoStrong fyrir það að
ég sé orðin svona góð í beinunum.
Ég hef fundið að ég hef náð að
halda mér svo sterkri. Ég verð 60
ára á þessu ári og með hækkandi
aldri finn ég hvað vöðvar rýrna
hratt og auðveldlega. Það þarf
alveg að hafa fyrir því að halda í
styrkinn. Það er ekki lengur nóg
að bara ganga eða synda,“ segir
Kerstin. „En ég hef fundið bæði
jafnvægi, orku og styrk bætast
verulega þegar ég stunda Osteo
Strong reglulega. Ástundun hjá
OsteoStrong tekur einungis 20
mínútur einu sinni í viku og henni
næ ég að sinna án þess að ganga
á tímann sem ég vil eyða í allt
annað.“
Að næra alla manneskjuna
„Ég hef mikið yndi af því að vera
úti í náttúrunni. Ég rækta smá
grænmeti, til dæmis grænkál.
Uppskeran var fín í grænmetinu í
sumar en berin svolítið sein. Núna
eru hins vegar hindberin og jarðar
berin að skila sér. Það er mjög
vinsælt hjá barnabörnunum,“
segir Kerstin. „Þessa dagana, þegar
haustið er að hellast yfir okkur, þá
finnst mér mikilvægt að huga að
því að vera mikið úti, fá ferskt loft,
nóg af dagsbirtu og huga að því
hvernig ég næri mig. Það skiptir
ekki minna máli að huga að nær
ingu hugans. Til dæmis hlakka ég
mikið til að sjá Víking Heiðar á
tónleikum og fara með barnabörn
unum á Kardimommubæinn.“
Frír prufutími
OsteoStrong býður upp á fría
prufutíma á fimmtudögum
og föstudögum. Þá má bóka á
osteo strong.is og í síma 419 9200.
OsteoStrong er í Hátúni 12, sunnan
megin. n
Beinþynn-
ingin var
mikil. Ég
var komin
með bein-
þynningu
í hrygg og
beingisnun
í útlimum.
2 kynningarblað A L LT 16. september 2021 FIMMTUDAGUR