Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 20

Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 20
Fyrst vann ég nær ein- göngu með leður, bæði í arm- böndum og háls- menum, og fór til Spánar og heimsótti leðurverk- smiðjur. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Rosella Mosty skartgripa- hönnuður stóð fyrir glæsi- legri skartgripasýningu á Ljósanótt í Keflavík á dög- unum. Sýningin var í húsa- kynnum Park Inn Radison hótelsins og var eftir henni tekið. Í skarti Rosellu má finna ýmiss konar tákn og form og hægt er að leika sér með samsetningar á hálsmenunum og fylgihlutum á skemmtilegan og frumlegan hátt. Rosella er fædd og uppalin í Reykjavík en fluttist til Boston árið 1995 og hefur búið þar síðan, eða í 26 ár. Hún er gift Ágústi Felix Gunnarssyni og eiga þau þrjár dætur og tvö barnabörn og una hag sínum vel á austurströnd Bandaríkjanna. Hannaði sín eigin armbönd Áhugamál hennar eru skartgripir, hönnun og allt sem því tengist og nýtur Rosella sín best þegar hún er að hanna. „Þetta ævin- týri mitt hófst árið 2016 þar sem ég átti alltaf erfitt með að finna armbönd sem pössuðu mér þar sem ég er með granna úlnliði. Ég ákvað því að hanna og búa til mín eigin armbönd. Í fyrstu var þetta eingöngu ætlað fyrir sjálfa mig en þetta spurðist fljótlega út og áður en ég vissi var ég farin að taka við pöntunum frá ættingjum og vinum. Þetta vatt fljótlega upp á sig og ég fór að færa út kvíarnar og byrjaði að hanna hálsmen til við- bótar við armböndin. Í fyrstu vann ég nær eingöngu með leður, bæði í armböndum og hálsmenum, og fór til Spánar og heimsótti leðurverk- smiðjur. Spánverjar eru þekktir fyrir mikil gæði í leðri. Þar valdi ég leður fyrir hönnunina en einnig fann ég mjög flott leður í Hol- landi.“ Uppáhaldshönnunin armbönd í anda dótturinnar Fjölskylda Rosellu tekur fullan þátt í að aðstoða hana þegar ný hálsmen eða armbönd verða til. „Dætur mínar, þær Aníta Mist og Tanya Líf, sem eru 20 og 17 ára, gefa mér sitt álit, þær fylgjast mikið með tískunni og öllu því sem henni viðkemur og vita hvað gengur fyrir þeirra aldurshóp. Maðurinn minn segir líka sitt álit, og ég tek fullt mark á þeim. Litlu ömmustrákarnir mínir, sem eru 5 og 7 ára gamlir, sýna þessu líka mikinn áhuga og vilja oft fá að máta skartið. Ég bjó því til arm- bönd handa þeim sem hafa verið mikið notuð.“ Hannaði armbönd til minningar um dóttur sína Rosella Mosty hannar ýmsa fallega skartgripi en hún er búsett í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hluti af skart- gripunum sem sýndir voru á sýningu í Kefla- vík á dögunum. Falleg hálsmen eftir Rosellu. Hálsmenin hanga á trédrumbum. Þau eru fíngerð og falleg. ar leiðir þegar kemur að hönnun og er alveg óhrædd við að blanda saman hinum ýmsu efnum, litum og gerðum í minni vöruþróun. Hugmyndir að nýrri hönnun geta komið á hinum ólíklegustu tímum og oft koma þær þegar ég er að fara að sofa og þá er ég að setja hitt og þetta saman í huganum. Ég prófa það svo næsta dag og stundum gengur það eftir en ekki alltaf og þá verður til eitthvað allt annað á vinnuborðinu sem er svo gaman.“ Egetal í Ástralíu í uppáhaldi Einnig á Rosella sína uppáhalds- hönnuði og fylgist vel sem er að gerast í hönnunarheiminum. „Mínir uppáhaldsskartgripa- hönnuðir þessa dagana eru meðal annars Egetal í Ástralíu, breska fyrirtækið Midnight City sem framleiðir skart fyrir karlmenn. Einnig kemur Kristin Cavallari sterk inn ásamt Cinnamon Lee. Ég hef svo gaman af að fylgjast með því sem er að gerast hjá þessum hönnuðum og það gefur lífinu lit að skoða fallega hönnun.“ Rosella hefur opnað vefsíðu þar sem hægt er að fylgjast með hönnun hennar og panta skartið sem er mikil bylting. „Vefsíðan mín, rosellamosty.com, fór í loftið þann 7. febrúar 2020 og breytti það miklu því nú er hægt að panta beint af síðunni og ég get afgreitt pantanir út um allan heim. Ég hef fengið frábærar viðtökur bæði hér á Íslandi og í Bandaríkjunum en draumurinn er svo auðvitað að komast með skartið mitt inn í f leiri verslanir í Bandaríkjunum,“ segir Rosella að lokum eftir ánægjulega Íslandsdvöl. n Hægt er að fylgjast með nýjustu hönnun og skartgripalínum Ro- sellu á Instagram-reikningnum @Rosellamostyjewelry. Rosella tengir hönnun sína líka við minningar og fær innblástur við hönnunina út frá minning- unum. „Ein af mínum uppáhalds eru Ester Evu-armböndin, en þau hannaði ég eftir að dóttir mín lést úr krabbameini árið 2017, ein- ungis 28 ára gömul. Ég gerði þau til minningar um hana því ég vissi að þessi armbönd voru alveg í hennar anda, enda sérstök og falleg eins og Ester Eva var.“ Heilluð af krossum Þegar kemur að formum og táknum í skartinu þá er eitt sem heillar Rosellu meira en annað. „Af einhverjum ástæðum hef ég alltaf heillast mikið af krossum í hinum ýmsum útfærslum og nota mikið af krossum í hönnun minni. Ég er með mjög fjölbreytta línu og legg áherslu á fallegt og sérstakt skart fyrir konur á öllum aldri. Mér finnst gaman að fara óhefðbundn- 4 kynningarblað A L LT 16. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.