Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 30

Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 30
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Fylgdu okkur á Facebook Skoðið laxdal.is Ný haustlína frá Kristen Stewart er án efa þekktust fyrir leik sinn í Twi- light-kvikmyndaseríunni, sem byggð er á samnefndri bókaseríu Stephanie Meyer. Í kvikmyndunum lék hún hina feimnu og hógværu Bellu Swan á móti hjarta- knúsaranum Robert Pattison sem túlkaði hina ljómandi vampíru, Edward Cullen. johannamaria@frettabladid.is Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá enda hefur Stewart komið fram og leikið aðalhlutverk í fjölda kvikmynda síðan síðasta Twilight- kvikmyndin kom út 2012. Árið 2019 kom Kristen fram sem leikkonan Jean Seberg í kvik- myndinni Seberg. Þótt kvikmynd- in hafi fengið misgóða dóma voru gagnrýnendur flestir sammála um að Stewart hafi sýnt meistaratakta í hlutverkinu. Þá kom fram í apríl síðastliðnum að Kristen Stewart myndi leika ásamt Léa Seydoux og Viggo Mortensen í vísinda- tryllinum Crimes of the Future úr smiðju David Cronenberg. Rokk og rómantík Stewart hefur víða vakið mikla athygli fyrir einstaklega smart og oft rokkaralegan stíl og virðist upp á síðkastið hafa tekið upp róman- tískari hliðar. Rokkið er þó sjaldan langt undan eins og sést á mynd- unum. Talsmaður LBGT+ Stewart býr í Los Angeles og árið 2017 kom hún út úr skápnum sem tvíkynhneigð. Um kynhneigð sagði hún, eins og frægt er orðið: „Tvíkynhneigðir eru ekki ringlaðir. Það er ekkert ruglingslegt við það. Fyrir mér er það algerlega skýrt.“ Þá hefur hún sagt að sér hafi verið ráðlagt að ræða ekki eða sýna kyn- hneigð sína opinberlega, þar sem það gæti haft áhrif á val hennar í hlutverk. Um það segir hún að hún hafi ekki áhuga á að vinna með fólki sem lætur það fara fyrir brjóstið á sér. ■ Rokkuð rómantík Kristen Stewart Kristen klæddist þessu rómantíska dressi, þó með rokkabillýívafi, á Met-galakvöldinu þann 13. september síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Kristen var rómantísk á frumsýningu í Fen- eyjum í september. Dressið minnir á Lísu í Undralandi með myrkum undirtón. Hér er Stewart á frumsýningu Charlie’s Angels í nóvember 2019 í rokkuðu diskódressi. Þetta magnaða eyeliner-augnablik átti Stewart við frumsýningu Seberg í september 2019 á Spáni. 6 kynningarblað A L LT 16. september 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.