Fréttablaðið - 16.09.2021, Síða 34
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðbjörg Þorleifsdóttir
Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu,
Hraunvangi, Hafnarfirði, sunnudaginn
12. september sl. Útförin fer fram frá
Vídalínskirkju kl. 14.00 mánudaginn 20. september.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigurborg Sigurðardóttir Ljótur Ingason
Svanhvít Sigurðardóttir Ragnar Jörundsson
María Sigurðardóttir Páll Sigurðsson
Halldór Ó. Sigurðsson Margrét H. Hjaltested
Þóra Sigurðardóttir Sigurður G. Jóhannsson
Ingvar E. Sigurðsson Edda Arnljótsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð
við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðnýjar Egilsdóttur
áður búsett í Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu,
Sléttuvegi, fyrir hlýhug og góða umönnun.
Oddný Þóra Sigurðardóttir Hrafn S. Melsteð
Eva G. Sigurðardóttir
Erna G. Sigurðardóttir
Anna Signý Sigurðardóttir Kamel Benhamel
Einar, Aldís, Sigurður Már, Sigursteinn Orri, Örn Calvin,
Sólon, Embla Signý, Guðný Líf, Telma Lovísa og Sigurður Leó
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Vígdögg Björgvinsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
9. september. Útför fer fram frá Guðríðar-
kirkju, þriðjudaginn 21. september kl. 13.
Sveinn Sæmundsson
Arna Sæmundsdóttir
Stefanía B. Sæmundsdóttir Einar Ásbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Steinar Hrafn Trampe
lést á heimili sínu þann 6. september.
Útför Steinars Hrafns fer fram
frá Grensáskirkju mánudaginn
20. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að
hafa samband við Bergið headspace,
s. 5715580/6939367.
Linda Sólveig Birgisdóttir Sigurður Sveinn Þorbergsson
Svan Hector Trampe
Sandra Hrönn Trampe Bjarki Sigurðsson
Matthías Ingiberg Sigurðsson
Hannah Rós Sigurðardóttir
Alexander Sigurðsson Sólveig Lilja Gunnarsdóttir
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Baldvin Viggósson
lögreglumaður,
lést á Landspítalanum þann
10. september síðastliðinn.
Útför fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 21. september kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans
er bent á að styrkja Ljósið endurhæfingu
fyrir krabbameinsgreinda.
Kristín Snorradóttir
Ragnar Már Kristófer Arnar Ragnarsson
Klara Dögg Baldvinsdóttir Guðmundur V. Bílddal
Arnar Franz Baldvinsson
Bálfarafélag Íslands var upp-
runalega starfrækt frá 1934–1964
en var nýlega endurvakið til að
fylgja eftir baráttu fyrir nýrri bál-
stofu.
arnartomas@frettabladid.is
Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir er stofn-
andi Trés lífsins, bálstofu og minningar-
garða, sem er komið langt í ferli sem
miðar að því að byggja nýja bálstofu á
Íslandi sem er óháð trúar- og lífsskoð-
unarfélögum. Til að fylgja því eftir
hefur Bálfarafélag Íslands verið endur-
vakið, en það var upprunalega starfrækt
á árunum 1934–1964.
„Eftir að hafa skoðað þessi mál sá ég
að það vantaði einna helst stuðning
frá almenningi,“ segir Sigríður, sem sá
skömmu síðar að félag með sama mark-
miði hafði verið stofnað á fyrri hluta
síðustu aldar. „Ég fór að skoða hverjir
höfðu staðið að félaginu og þá kom í ljós
að það voru menn sem ég myndi kalla
einhverja helstu frumkvöðla þess tíma
en þeir höfðu barist fyrir því frá árinu
1915 að það yrði reist bálstofa á Íslandi.“
Að baki félaginu voru ekki minni
menn en Gunnlaugur Claessen, Bene-
dikt Gröndal, Ágúst Jósefsson, Björn
Ólafsson og Gunnar Einarsson. Þeir
fengu aðstoð frá Sveini Björnssyni,
fyrsta forseta íslenska lýðveldisins, til að
koma lagabreytingu í gegnum Alþingi og
stóðu að fjáröflun til að byggja bálstofu
sem stóð meðal annars til að yrði byggð
á Klambra túni.
Síðan hagaðist það svo að verið var
að reisa Fossvogskapellu og kirkjugarð
á sama tíma og þrátt fyrir að hafa upp-
haflega sett sig á móti því samþykkti
Bálfarafélagið að bálstofan yrði reist í
sama húsnæði. Eftir að bálstofan var sett
á laggirnar þótti lítil ástæða fyrir því að
félagið yrði áfram starfrækt og var það
lagt niður árið 1964.
Það er dýrt að deyja
Ofninn sem var fyrst gangsettur árið
1948, þegar fyrsta líkbrennslan á Íslandi
fór fram, er enn í notkun og kominn vel
til ára sinna. „Það er til að mynda eng-
inn mengunarvarnarbúnaður, en ein af
ástæðum þess að eftirspurn hefur aukist
eftir bálförum er að þær eru umhverfis-
vænni en hefðbundnar jarðsetningar.“
Þá bendir Sigríður á að kostnaðurinn
sé einnig þáttur í því að fólk sækist í
auknum mæli eftir bálförum. „Það er
rosalega dýrt að deyja. Kostnaðurinn er
gífurlegur og með því að velja bálför þá
værirðu líka að velja umhverfisvænni
útför, ef við værum komin með nýrri
ofn,“ útskýrir hún. „Bæði tekurðu minna
pláss auk þess sem kostnaðurinn og
kolefnisfótsporið við að smíða og flytja
líkkistu getur verið ansi mikill. Svo er
hún grafin niður í jörðina þar sem hún
grotnar niður. Fólk í dag er farið að vera
mínímalískara og sér ekki alveg tilgang-
inn með þessu umstangi.
Sigríður segir að erindi varðandi nýja
bálstofu liggi nú fyrir hjá Sýslumanni og
dómsmálaráðuneytinu.
„Ég skil vel að stjórnsýslan eigi erfitt
með að svara enda hefur enginn beðið
um leyfi til að byggja bálstofu í 73 ár,
en okkur er samt farið að lengja eftir
svörum, enda komin með lóð fyrir bál-
stofuna og tilbúin að hefjast handa.“
Fimmtudaginn 23. september verður
haldinn opinn kynningarfundur á
Bálfarafélagi Íslands og Tré lífsins þar
sem áhugasömum gefst kostur á að skrá
sig í Bálfarafélagið. Fundurinn verður
haldinn í húsi Garðyrkjufélags Íslands,
Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla) frá
17.00–18.00 og er öllum opinn. ■
Endurvakti Bálfarafélag
Íslands áratugum síðar
Sigríður segir að eftirspurn eftir bálförum hafi aukist eftir vitundarvakningu í um-
hverfismálum auk þess sem hefðbundin jarðsetning geti verið dýr. MYND/AÐSEND
Ég skil vel að stjórnsýslan
eigi erfitt með að svara
enda hefur enginn beðið
um leyfi til að byggja
bálstofu í 73 ár, en okkur
er samt farið að lengja
eftir svörum.
1508 Ferja sekkur á Ölfusá með tugi manna og farast yfir
30 manns á leið frá messu í Kaldaðarnesi í Flóa.
1810 Mexíkó lýsir yfir sjálfstæði frá Spáni.
1940 Tvö íslensk skip, Arinbjörn hersir og Snorri goði,
bjarga um 400 manns af franska flutningaskipinu
Asca, en það fórst á Írlandshafi eftir árás þýskrar
flugvélar.
1963 Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna,
kemur til Íslands í opinbera heimsókn og er vel
tekið. Rúmum tveimur mánuðum síðar varð hann
forseti Bandaríkjanna, þegar Kennedy var myrtur.
1970 Hussein, konungur Jórdaníu, setur herlög í landinu
til að hindra palestínska uppreisnarmenn í að ná
þar völdum.
1979 Minnisvarði er afhjúpaður á Hólmavík um Hermann
Jónasson ráðherra, sem var í áraraðir þingmaður
Strandamanna og Vestfirðinga.
1989 Erró, Guðmundur Guðmundsson listmálari, gefur
Reykjavíkurborg tvö þúsund listaverk eftir sig og er
safninu komið fyrir á Korpúlfsstöðum.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2021 FIMMTUDAGUR