BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 2

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 2
Að vera eða vera ekki neittí „Og hvaðan ert þú, góði minn”, spurði stærðfræðikennarinn minn forð- um í Menntaskólanum á Akureyri. „Ur Kópavogi", sagði ég í grandaleysi mínu, jafnvel með ofurlitlu stolti. Hæðnisleg- ur hlátur hans kom mér því alveg í opna skjöldu. „Þaðan er enginn”, sagði hann svo og spurði mig eitthvað út í foreldra mína. Þá vissi ég það, en ekki fyrr, að það var ekki fínt að vera úr Kópavogi, þessari Palestínu eða litlu Kóreu, eins og þetta pláss var stundum kallað. Það er fyrst nú þegar ég er kominn til vits og ára að ég þori að segjast vera úr Kópa- vogi. Þessi sami stærðfræðikennari lagði mig (að mér fannst) í einelti, sem þá var reyndar ekki búið að finna upp sem fé- lagslegt vandamál. I geómetríunni tók hann mig upp að töflu og átti ég að finna horn í þríhyrningi. Ég var grútnervus og gaf mér óvart vitlaust horn. Hann tókst allur á loft, néri á sér hökuna og sagði með mikilli sjálfá- nægju: „Þetta er óskhyggja fávitans, Hrafn!” Og auðvitað hló allur bekkur- inn með honum. En ég fékk þegjandi ó- beit á allri stærðfræði til lífstíðar. Ég ólst upp í kaþólskri trú og ég man enn að mér var strítt á því líka: „Talaðu þá kaþólsku” sögðu krakkamir í hverfinu og hlóu hæðnislega. Þetta gekk svo langt að ég hætti að vera kaþ- ólskur og gekk í kirkju allra lands- manna. Einu sinni fékk ég að fara í Vatnaskóg, þá ungur drengur. Ég fékk að fara fyrir þrábeiðni enda hvatti besti vinur minn mig til fararinnar. Ég man að þar var m.a. farið í „fóbolta”; skipt í tvö lið og var ég settur aftastur í annað. Það eina sem ég vissi þá um fótbolta var að keppst var um að setja knöttihn í mark. Um leið og ég fékk hann fyrir fætur mér snemma leiks lagði ég allt mitt stolt og kjark í hægri fót og þrusaði tuðrunni í netið. Og bjóst við miklum fagnaðarlátum. Er það í eina skiptið sem ég veit til að manni hafi verið vísað af velli í knattspyrnuleik fyrir að skora mark. Jú, að vísu var það sjálfsmark, en mark engu að síður. Þannig fór um fót- boltadelluna hjá mér og aldrei hef ég verið Valsari síðan. Þegar kom að því að velja mér fag til framhaldsnáms komu engar raun- greinar til greina, því til þeirra þurfti góða stærðfræðikunnáttu. Ég hafði auðvitað falið mig og vandamál mín með því að grúfa mig yfir bókaskruddur öll menntaskólaárin og svo var komið að ég var kominn með skáldagrillur. Enda var næsti nágranni minn þar sem ég bjó á Akureyri sjálfur Davíð. Og hann var bókavörður. Þótti mér því al- veg kjörið að gerast vörður bóka, þar sem það gæfi mér kost á að vera innan L«,vao» oe^Sí()OCO«l• .vi Á!M Hrafn Andrés Harðarson um bækur og fá borgað fyrir það í of- análag. Ekki gerði ég mér þá neina grein fyrir því, að nær allir bókaverðir eru jafnframt opinberir starfsmenn. Hið eina sem ég vissi um þetta fyrirbæri, opinbera starfsmenn, var að frændi minn og fóstri þarna fyrir norðan var formaður STAK og oft á einhverjum béesserrbé-þingum fyrir sunnan. Og tal- aði mikið í símann um svokölluð kjara- mál. Mér komu þau ekki við enda sá ég mér til mikillar ánægju að ýmsir góðir karlar gegndu starfi bókavarðar víðs- vegar um landið. Og býsna margir skáld eða rithöfundar að auki: Guðmundur Hagalín, Snorri Hjartar, Magnús Ás- geirss, Jón úr Vör og fleiri. Þetta var eitthvað fyrir mig. Ég starfaði nokkur ár á Borgarbóka- safninu í Reykjavík, varð útibússtjóri með meiru og svo bar til að staða Borg- arbókavarðar var auglýst laus til um- sóknar. Auðvitað sótti ég um hana, enda hálfgerður krónprins til þessa embættis. En viti menn: áður hafði ég staðið í þeirra trú að það væri kostur að vera karl með góða menntun, en nú voru skyndilega aðrir tímar: kominn var tími til að kona yrði Borgarbókavörður. Ég lagði upp laupana og fékk stöðu sem bæjarbókavörður í Kópavogi og flutti á æskustöðvarnar. Hætti að reykja í átta ár eða þangað til í verkfalli opinberra starfsmanna árið 1984. Þá byrjaði ég aftur að reykja og þótti það bæði gott og fínt. Gaf út ljóðabækur og hélt enn að það þætti fínt. Að vera skáld. En nú er nánast glæpur að reykja og „skáld” í op- inberri stöðu er sama sem ekkert skáld. Enda segir í mogganum undir ljóðum, sem þeir birta eftir mig að „höfundur sé bókavörður í Kópavogi”. Svona eins og til að taka af öll tvímæli. Hvar skyldi þessi tilvistarkreppa mín enda eiginlega? Allt sem ég er eða var að upplagi eða með uppeldi verður einhvernveginn alltaf ótækt, óhollt eða ófínt, loksins er ég næ því. Eina hugg- un mín í dag er sú, að ég hef heyrt að fínast af öllu sé að vera dautt skáld. Því ætla ég að trúa þangað til eitthvað ann- að kemur í ljós. Höfundur þessa pistils, Hrafn Andrés Harðarson, er opinber starfsmaður t Kópavogi. BSR

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.