BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 32
Nú þegar adeins örfáir dagar eru þar til Heims-
meistarakeppnin í handknattleik verður haldin hér
á landi er ekki úr vegi ad rifja upp nokkur atriði úr
sögu íþróttagreinarinnar.
Handknattleikur nam
land hér á þriðja áratugnum
þegar Valdimar Sveinbjörns-
son íþróttakennari kom heim
frá námi í Danmörku og hóf
kennslu við Flensborgarskóla
í Hafnarfirði og Barnaskól-
anum í Reykjavík haustið
1921. Valdimar kenndi strák-
unum handbolta og þegar
hann hóf kennslu við
Menntaskólann í Reykjavík
1928 kenndi hann MR-ing-
um íþróttina. Ungur íþrótta-
kennari, einnig menntaður í
Danmörku, Hallsteinn Hin-
riksson, tók við leikfimi-
kennslunni í Flensborg og
hélt áfram ad byggja upp í-
þróttina í Hafnarfirði.
Það þarf ekki að koma á
óvart ad handknattleikurinn
berist hingað til lands med í-
þróttakennurum menntuðum
í Danmörku, því vagga hand-
knattleiksins var einmitt hjá
þessari fyrrum herraþjóð
okkar. Handknattleikurinn er
talinn eiga rætur ad rekja til
gagnfræðaskólapilta í Dan-
mörku undir lok síðustu ald-
ar. Þeir höfðu haft spurnir af
amerískum ruðningsbolta
(rugby) og ákveðið að iðka
hann innanhúss yfir veturinn.
Eitthvað hafa upplýsingarnar
um eðli ruðningsboltans ver-
ið óljósar því fátt virðist líkt
með þessum tveimur íþrótta-
greinum í dag.
Fyrstu leikirnir
Ólíkt knattspyrnu og
ýmsum öðrum íþróttagrein-
um var handknattleikur hér á
landi iðkaður frá upphafi af
báðum kynjum. Þannig var
fyrsti opinberi kappleikurinn
hér á landi á milli kvenna-
flokka úr fþróttafélagi Hafn-
arfjarðar og Ungmennafélagi
Reykjavíkur árið 1928. Sama
ár fór fram opinber viðureign
drengja úr Barnaskóla Hafn-
arfjarðar og Barnaskóla
Reykjavíkur. Báðir þessir
leikir voru utanhúss. Uti á
landi var handknattleikur
iðkaður af stúlkum í Vest-
mannaeyjum og á Laugum í
Reykjadal strax árið 1927.
Árið 1928 áttust við
handknattleikslið drengja úr
Flensborgarskóla og MR.
Baldur Möller fyrrum ráðu-
neytisstjóri hefur greint svo
frá þeirri vidureign:
Það var oft þröngt á áhorfendapöllunum í Hálogalandi. Frá viður-
eign Fram og FH 1962. Sigurður Einarsson Fram skorar hjá Hjalta
Einarssyni.
„Ég stóð í markinu í
þessum leik og mig minnir
að við höfum sigrað í hon-
um. Strákarnir í gagnfræða-
deild Menntaskólans voru
margir miklir risar, t.d.
Sveinn Zoéga í Val. Hann
var geypistór og sterkur
handboltamaður. Hallsteinn
var miklu kappsfyllri maður
heldur en Valdimar og þótti
halla á sína menn. Hann
keppti því í næsta leik með
Flensborgurum og sigruðu
þeir í þeim leik. Þessi keppni
á milli skólanna stóð í nokk-
ur ár og var upphafið að
handboltaleikjum á íslandi.
Seinna komu svo íþróttafé-
lögin inn í þetta.”
Fyrstu handboltaleikirnir
milli félagsliða fóru fram
árið 1934. Það var á milli
Vals og Hauka í Hafnarfirði.
Haukar höfðu alveg frá
stofnun félagsins 1931 lagt
stund á handknattleik. Knatt-
spyrnumennirnir í Val höfðu
einnig stundað handknattleik
af og til frá 1930. í ársbyrjun
1934 óskuðu Haukar eftir
æfingaleik vid Val og fór sá
leikur fram 28. janúar í leik-
fimihúsinu í Hafnarfirði.
Leiknum lauk med sigri
Valsara 22-14.
Lið þessi léku svo marga
æfingaleiki og er skemmti-
lega frásögn af einni viður-
eign þeirra að finna í gömlu
Valsblaði:
„Þá munu margir þeirra,
BSR
32