BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 33
Frá viðureign íslendinga og
Norðmanna á Nordurlandameist-
aramóti kvenna á Islandi 1964 en
fslensku stúlkurnar sigruðu á
mótinu.
sem tíðum fóru suður í Hafn-
arfjörð til þess að leika við
Hauka, minnast leiks, sem
leikinn var á ísuðu gólfi. Fór
hann fram í fimleikahúsinu
við barnaskólann. Var það á
sunnudagsmorgni. Hafði sal-
urinn verið þveginn seint
kvöldið áður en mikið frost
úti. Þegar keppendur komu í
salinn um morguninn, var
mikill hluti hans med íslagi á
gólfinu, þar eð rakinn hafði
ekki þornað. Ekki dugði að
hætta við leikinn, þar sem
allir voru mættir til leiks og
hófst hann þegar.
Það er ekki að orðlengja,
að þegar leikmenn komu á
svellið runnu menn og féllu á
gólfið og mátti stundum sjá 3
menn í einni kös á gólfinu!
Meðan á leiknum stóð urðu
menn ekki varir við nein
meiðsli, sem teljandi voru.
Eftir æfinguna gat einn þess
þó að hann hefði misst tönn,
og annar að hann hefði feng-
ið smáskeinu á handlegg, og
það blæddi nokkuð úr. Við
nánari athugun kom í ljós ad
tönn sú, sem týnd var fannst
í sárinu á handlegg hins!”
Haukar munu hafa sigrað
í þessari viðureign enda van-
ir þeim aðstæðum sem voru í
fimleikahúsinu.
Fleiri lið hófu að æfa
hanknattleik á þessum árum.
Á Akureyri hófu stúlkur að
æfa handknattleik um 1930.
Stúlkur í KR hófu að æfa
handknattleik árið 1931 og
drengir í KR 1936. Ármanns-
stúlkur árið 1937 og drengir í
ÍR árið 1938. FH og Fram
byrjuðu ad stunda handknatt-
leik árið 1940. Þá höfðu
Sundfélagið Ægir og Iþrótta-
félag kvenna í Reykjavík
haft handknattleik á dagskrá
hjá sér án þess að keppa op-
inberlega í íþróttinni.
Handknattleikur var
einnig iðkaður utanhúss að
sumri til. Fyrsti utanhússleik-
urinn var háður sumarið
1938. Þá áttust við Haukar
og KR á Víðistaðatúni í
Hafnarfirði. Leiknum lauk
med sigri Hauka 7-2.
Á seinni hluta fjórða ára-
tugarins áttu íslenskir hand-
knattleiksmenn í fyrsta sinn
viðureign við erlenda hand-
knattleiksmenn. Það var Val-
ur sem lék við sjómenn af
þýska skipinu Metheor, sem
lá í Reykjavíkurhöfn. Þjóð-
verjar voru á þessum árum
eina þjóðin sem stundaði
handknattleik að einhverju
marki og fregnir höfðu borist
af því að um borð í Metheor
væru nokkrir handknattleiks-
menn í fremstu röð í heima-
landi sínu. Þrátt fyrir það
stóðu Valsmenn verulega í
Þjóðverjunum en urðu þó að
láta í minni pokann með
minnsta mögulega mun 21-
20.
Þessi úrslit urðu til þess
að handknattleiksmönnum
hér óx mjög ásmegin og árið
1940 ákvað ÍSÍ að efna til
fyrsta Islandsmótsins í hand-
knattleik. Mótið var haldið í
íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu og tóku
sex karlalið og þrjú kvenna-
lið þátt í mótinu. Leikirnir
þóttu nokkuð grófir og voru
dómarar skammaðir í blöð-
um fyrir ad leyfa svo grófan
leik.
Karlaliðin sem tóku þátt í
íslandsmótinu voru Valur,
Haukar, ÍR, Víkingur, Fram
og íþróttafélag Háskólans.
Valsmenn sigruðu alla and-
stæðinga sína og urðu fyrstu
Islandsmeistarar karla í
handknattleik. Þeir héldu
titlinum þrjú næstu árin en
þá sigruðu Haukar íslands-
mótið. Valur endurheimti
svo titilinn árið eftir og
skiptust svo Reykjavíkurliðin
Ármann, ÍR, Valur og Fram
á að vera íslandsmeistarar til
ársins 1956 ad titillinn fór
aftur í Hafnarfjörð, að þessu
sinni til FH.
Kvennaliðin sem tóku
þátt í fyrsta íslandsmótinu
voru Ármann, Haukar og IR.
Stúlkurnar í Ármanni unnu
báða sína leiki og urðu fyrstu
Islandsmeistarar kvenna í
handknattleik. Þær héldu svo
titlinum allt til ársins 1945
að Haukar urðu Islandsmeist-
arar tvö ár í röð en árið 1947
endurheimti Ármann titilinn
og hélt honum út fimmta ára-
tuginn.
Fyrsta Islandsmótið í
handknattleik utanhúss var
haldið á Melavelli haustið
1941. Ellefu manns voru í
hverju liði og var völlurinn
mun stærri en í innanhúss-
boltanum. Markteigurinn var
um 11 metrar og 13 metrar
frá vítapunkti að marki. Það
þurfti því kröftug skot til að
skora í utanhússboltanum.
Þrjú lið tóku þátt í mótinu,
Valur, Ármann og Haukar og
sigruðu Valsmenn.
Jafnframt var keppt í
handbolta kvenna og varð
Iþróttabandalag Akureyrar
fyrstu Islandsmeistarar í
handknattleik kvenna utan-
húss.
Erlendar viðureignir
Fyrsta viðureign ís-
lenskra félagsliða við erlent
félagslið var árid 1947 þegar
sænska handknattleiksliðið
IFK Kristianstad heimsótti
Island. Svíarnir sigruðu í öll-
um viðureignum sínum hér
með miklum yfirburðum.
Fyrsti landsleikur Islands
var við Svía í Lundi í febrúar
1950. Svíarnir sigruðu 15-7.
Frá Svíþjóð hélt landsliðið til
Kaupmannahafnar og tapaði
þar fyrir Dönum 20-6.
Islenska kvennalandsliðið
lék sinn fyrsta landsleik við
Norðmenn í Osló 1956 og
tapaði með þriggja marka
mun 7-10. Árið 1964 sigruðu
íslensku stúlkurnar hins veg-
ar á Norðurlandameistara-
móti kvenna, sem haldið var
á Islandi.
Handknattleikssamband
íslands var stofnað árið 1957
og sama ár tóku Islendingar í
fyrsta skipti þátt í Evrópu-
bikarkeppni karla í hand-
knattleik. Ári seinna, eða
árið 1958 tóku svo Islending-
ar í fyrsta skipti þátt í HM í
handknattleik. Nú 31 ári
seinna er hins vegar blásið til
leiks á HM hér á landi, enda
hafa íslendingar undanfarin
ár verið meðal fremstu hand-
knattleiksþjóða heimsins.
Heimildir:
fþróttir í Reykjavfk eftir Sigurð Á.
Friðþjófsson.
Valur vængjum þöndum, ritstjóri
Olafur Gústafsson.
Haukar í 60 ár eftir Lúðvík
Geirsson.
Ármann í 100 ár eftir Lýd
Bjömsson.
Árbók íþróttamanna 1946 og 1947.
Greinargerð Hannesar Þ.
Sigurðssonar fyrir ÍSÍ.
bs
33