BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 3
Breytt blað
BSRB-tíðindi koma nú í nýjum búningi fyrir augu félaga
bandalagsins. Það er von okkar að breytingarnar verði til
þess að Blaðið höfði til fleiri og öðlist smómsaman sess
sem vetlvangur lifandi skoðanaskipta innan hreyfingarinn-
ar.
Blaðaútgáfa BSRB hefur verið með ýmsum hætti. I sept-
ember 1944, þegar bandalagið var tveggja ára, kom út
fyrsta tölublað Starfsmannablaðsins, en það var fyrsta mál-
gagn BSRB. Starfsmannablaðið kom útallttil ársins 1952.
Þá var gert hlé á útgáfu bandalagsins til vors 1955 en þá
kom fyrsta tölublað Asgarðs út. Asgarður var svo gefinn ó-
slitið út til haustsins 1985.
í verkfalli BSRB 1984 var gefið út fjölritað blað sem
hlaut nafnið BSRB-tíðindi og var útgáfa þess mjög öflug,
enda prentaraverkfall samtímis verkfalli opinberra starfs-
manna. Sú útgáfa lagðist af þegar verkfalli lauk en BSRB-
tíðindi voru endun/akin 1989.
Aður en af því yrði réðst BSRB í útgáfu öflugs blaðs í
tímaritsformi og hlaut |xið nafnið BSRB-blaðið. 1. tbl. kom
út i april 1986 og urðu tölublöðin þrjú, það síðasta i des-
ember sama ár.
BSRB-fréttir leystu BSRB-blaðið af hólmi og komu reglu-
lega út til hausts 1988. í ársbyrjun 1989 voru BSRB-tíoindi
svo endurvakin og hafa komið út siðan. BSR&-tiðindi hafa
verið i ýmsu formi, m.a. var um tíma reynt að hafa þau í
dagblaðsformi en safnarar voru lítt hrifnir svo ákveðið var
að hverfa aftur frá því.
Enn einn aanginn verða nú breytingar á útliti og inni-
haldi BSRB-tíðinda. Með þessari breytingu er jafnframt ætl-
unin að gera útgáfu blaðsins reglulegri. Blaðið mun koma
út i lyrstu viku hvers mánaðar, en útgáfan líggur niðri yfir
hásumarið. Næsta tbl. kemur út fyrstu vikuna í júní.
Eins og lesendur verða varir við hefur verið ákveðið að
fjármagna stækkun blaðsins með auglýsingum. Án þeirra
væri það ekki kleift, enda útgáfa svona veglegs blaðs dýr.
Það er von okkar að með þessum breytingum verði
blaðið mun fjölbreyttara. Eftir sem áður verður áherslan á
kjaramálin og ýmis réttindamál sem snerta félagana. Jafn-
framt verða þjóðfélagsmálin skoðuð í víðara samhengi
auk þess sem ýmislegt efni af léttara taginu flýtur með.
Allar ábenaingar frá lesendum blaosins eru vel þegn-
ar, enda er þetta blaðið ykkar.
Við sendum öllum félagsmönnum í BSRB og öðrum
baráttumönnum fyrir launajöfnuði baráttukveðjur í tilefni 1.
maí.
Umsjónarmenn
Útgefandi BSRB Grettisgötu 89, Simi: 62 66 88 Fax: 62 91 06
Umsjónarmenn: Hjörleifur Sveinbjörnsson og
Sigurður A. Friðþjófsson Ábyrgðarmaður: Einar Andrésson, form.
ritnefndar.Ljósmyndari: BARA
Hönnun: Sævar Guðbjörnsson
Auglýsingar: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir, sími 62 07 01.
Umbrot: Blaðasmiðjan.Prentun: Isafoldarprentsmiðjan hf.
BSRB-tíðindi eru gefin út í 17.500 eintökum og
send öllum BSRB-félögum.
Eftirlaunaþegar og aðrir sem óska eftir að fá blaðið
sent hafi samband við skrifstofu BSRB.
N Á M S K E I Ð#
Sumarönn hefst 8. maí
Hraðnámskeið í tungumálum
fyrir byrjendur
og talmálshópar fyrir lengra komna
Tungumál fyrir sumarið: 12 kennslustundir
Enska • Danska • Sænska • Þýska
Spænska • ítalska • Franska
íslenska fyrir útlendinga
Tómstundir og listir
Myndlist • GlerskurðurTiffany's • Glerbræðsla • Skrautritun
Ljósmyndataka * Vídeótaka á eigin vélar • Nuddnámskeið
Fluguhnýtingar • Austurlensk matargerð
Ferðir
Söguferðir með Jóni Böðvarssyni
• Njálssaga
• Grettissaga
Ræktun og umhverfi
Vorverkin í garðinum • Mat- og kryddjurtir
Villtar jurtir og grasasöfnun
Námskeið fyrir börn
í maí og júní
Tónlistarleíkir fyrir ungabörn • Enska • Leiklist
Myndlist fyrir börn • Tónlistarleikir fyrir ungabörn
Tómstunda skólinn
Grensásvegi 16A ííííííííííííííí
Sími: 588 72 22 • Fax: 581 42 30
BSRfiwt