BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 5

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 5
Misskilningur leiðréttur Nýleg könnun „Launamyndun og kynbundinn launamunur" sem unnin var fyrir Jafnréttisráð hefur vakið mikla athygli og var m.a. mikið til umræðu i nýafstaðinni kosningabaráttu. Allir flokkar sem nú eiga sæti á þingi lofuðu í kosningabaráttunni að taka á því launamisrétti sem könnunin staðfestir að sé til staðar, kæmust þeir til valda. Reyndar var eining þeirra svo mikil að ríkisstjórn - hver sem hún verður - ætti að geta tekið höndum saman við stjórnarandstöðu til að ná fram úrbótum í þessu máli. í þeirri umræðu sem fylgdi í kjölfar könnunarinnar hefur þó gætt ákveðins miskilnings um það hvað hún hafi leitt í ljós. Einnig hafa verið dregnar heldur hæpnar ályktanir um það hvemig rétt sé að bregðast við niðurstöðunum. Strax við kynningu á niðurstöðum könnunarinnar kom fram hjá formanni Jafnréttisráðs að launamismunur- inn væri einna mestur hjá opin- berum stofnunum. Þetta hefur hver étið upp eftir öðmm, og á stundum velti maður því fyrir sér hvort margir þeirra sem tjáðu sig um niðurstöður könnunarinnar hefðu yfir höfuð lesið skýrsluna, þar sem hvergi í henni er neitt sem gefur tilefni til þess að draga slíkar ályktanir. Það rétta er að launamunurinn er mismikill í þeim opinberu stofnunum og einkafyrirtækjum sem könnunin nær til, en þegar opinberu stofn- animar em skoðaðar annars vegar og einkafyrirtækin hins vegar þá sést að ef eitthvað er þá er launa- munurinn meiri hjá einkafyrir- tækjunum en í opinberu stofnun- unum. Það er þó nauðsynlegt að taka fram í þessu samhengi að markmið könnunarinnar var ekki að sýna hversu mikill munur væri á launum karla og kvenna - um það höfum við þegar fjölmargar kannanir - heldur að reyna að skýra hvers vegna hann væri. Hitt er svo annað mál að nauðsynlegt er að leiðrétta þennan mis- skilning, þar sem afar hæpnar ályktanir hafa verið dregnar af honum. T.d. hefur verið talað um að þar sem að launamun- urinn sé meiri í opinberu stofnununum sé nauðsynlegt að einkavæða þær. Ekki marktæk Vinnuveitendasambandið hefur reynt að draga í efa að könnunin gefi áreiðan- lega mynd af almenna vinnumarkaðinum þar sem færri spumingalistum hafi verið dreift í einkafyrirtækjum en hjá opinberu stofnununum og að slök svömn hafí ver- ið í 3 fyrirtækjanna. Þennan misskilning Vinnuveitendasambandsins hefur Guð- björg Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur Fé- lagsvísindastofnunar, sem vann könnun- ina fyrir Jafnréttisráð leiðrétt í grein í Morgunblaðinu ( 3.3.1995). Hún bendir á að færri spumingalistum hafi verið dreift í einkafyritækjunum þar sem að færri starfsmenn vom í þeim einkafyrirtækjum sem valin voru, en svarshlutfallið verið svipað í heild. Rétt er hins vegar að slök svörun var í þremur einkafyrirtækjum og einni opinberri stofnun og er meginá- stæðan, eins og Guðbjörg bendir á, sú að erfitt reyndist að fá verka- og afgreiðslu- fólk til að svara. I könnuninni er launa- munurinn ekki marktækur í þessum hóp- um en samkvæmt könnunum Kjararann- sóknarnefndar almenna vinnumarkaðar- ins er launamunurinn töluverður í þessum hópum. Niðurstaða Guðbjargar Adreu er því þessi: „Það verður því að teljast lík- legast ef lítil svöran gefur skakka niður- stöðu að umrædd könnun vanmeti mun á launum karla og kvenna í stéttum verka- og afgreiðslufólks.” haldi ríkisins skrifar Rannveig Guð- mundsdóttir, þáverandi félagsmálaráð- herra nýverið grein ( Mbl. 29.3.1995) þar sem hún gefur í skyn að allar greiðslur fyrir yfirvinnu séu yfirborganir. Þar með blandar hún saman tveimur ólíkum hlut- um, óunninni og unninni yfirvinnu. í skýrslunni kemur fram að óunnin yfir- vinna er eitt heiti á yfirborgun- um, bílastyrkir og þóknunar- einingar önnur. Þessi launa- heiti eiga það sammerkt að þau eru ekki greiðslur fyrir aukið vinnuframlag eða vegna út- lagðs kostnaðar og em því yf- irborganir, afleiðing einstak- lingsbundinna sérsamninga vinnuveitenda og launþega. Niðurstöður könnunarinnar sýna að yfirborganir skýra mestan hluta launamismunar- ins enda fá um 37% karla en aðeins 13% kvenna slíkar greiðslur. Það er því nauðsyn- legt að gera greinarmun á yfir- borgunum, hvaða nafni sem þær nefnast, og yfirvinnu- greiðslum fyrir vinnu sem raunverulega er innt af hendi. Fella yfirborganir inn í taxtana Að lokum - margir hafa orðið til þess að draga þá ályktun af niðurstöðum könnunarinnar um í hve miklu mæli yfir- borganir tíðkast hjá hinu opinbera að rétt- ast væri að fella þær inn í taxtana. f ljósi þess að þessar yfirborganir eiga einna mestan þátt í launamismun kynjanna væri vægast sagt glæpsamlegt að fella þær inn í taxtana því að með því væri verið að festa misréttið í sessi. Jafnrétt ,,Yfirvinnutekjur" Úr frá niðurstöðum skýrslunnar en með vísan til upplýsinga úr launabók- Rannveig Sigurðardóttir hagfræðingur BSRB 5

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.