BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 6

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 6
nýjung í starfi bandalagsins. Hún er hugsuð sem vettvangur þar sem félagar í BSRB og ann- komið saman og kynnt sér beint og milliliðalaust þau málefni sem eru efst á baugi f þjóð- Málstofa BSRB er að áhugafólk getur málaumræðunni hverju sinni. Málstofan hóf göngu sína fljótlega upp úr áramótum og var fyrsta málstofan haldin í janúarlok. Fyrsta málefnið sem tekið var fyrir var tilvísunarkerfið, sem var mjög áberandi í umræðunni strax upp úr áramótum. Fulltrúar sérfræðinga, heimilislækna, Læknafélagsins og heil- brígðisráðuneytisins mættu á fundinn, héldu framsöguerindi og svöruðu fyrir- spumum úr sal. Ljóst var að hyldýpisgjá var á milli sjónarmiða þeirra sem að- hylltust tilvísanakerfið og þeirra sem vom andvígir því. Hálfum mánuði seinna var haldin Málstofa um flutning grunnskólans til sveitarfélaganna. Svo skemmtilega vildi til að eftir að Málstofan hafði verið aug- lýst var boðað að grunnskólafrumvarpið kæmi til lokaafgreiðslu Alþingis. Því var þó frestað um nokkra daga til þess að ná samkomulagi við kennara um framgang frumvarpsins. Framsögu höfðu Sigríður Anna Þórðardóttir for- maður menntamálanefndar Alþingis, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður Sambands fslenskra sveitarfélaga og Eiríkur Jónsson, formaður KÍ. frá kenn- urum. Fundurinn var afar upplýsandi um málið en því miður komu alltof fáir þrátt fyrir að tímasetningin hafi ekki getað verið betri. Fundarstjóri var Elín Björg Jónsdóttir, formaður FOSS. Metaðsókn var hins vegar að þriðju Málstofunni, en þá áttust við Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Ög- mundur Jónasson formaður BSRB. Yf- irskrift fundarins var „Hefur rildð afsal- að sér samningsréttinum”. Töluvert var fjallað um stöðuna í samningsmálunum á fundinum, aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna samninga ASÍ og VSÍ, og hvort rétt sé að gera breytingar á samningum við opinbera starfsmenn. Friðrik sýndi því mikinn áhuga að hver stofnun fyrir sig gerði samninga við sína starfsmenn en formaður BSRB taldi þá leið mjög varhugaverða. Fundarstjóri var Kristín Þorsteinsdóttir fréttamaður Sjónvarps- ins. 21. mars komu fulltrúar allra stjóm- málaflokkanna í Málstofu BSRB og ræddu skattamál á kosningatímum. Það var skattahópur BSRB sem stóð fyrir Málstofunni í það skiptið. Frá stjórn- málaflokkunum komu Steingrímur J. Sigfússon (Alþýðubandalagi og óháð- um), Guðmundur Bjarnason (Fram- Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka, á Málstofu BSRB um skattamál. Atli Rúnar Halldórsson, fréttamaður, var fundarstjóri. sóknarflokki), Jón Baldvin Hannibals- son (Alþýðuflokki), Kristín Ástgeirs- dóttir (Kvennalista), Jóhanna Sigurðar- dóttir (Þjóðvaka) og Geir H. Haarde (Sjálfstæðisflokki). Fundarstjóri var Atli Rúnar Halldórsson fréttamaður Ríkisútvarpsins. Umræður voru mjög fjörugar, enda skammt í kosningar og stjórnmálamönnunum í mun að koma skoðunum flokka sinna á framfæri. Venjulega á fimmtudögum Yftrieltt heftir Málstofan verið hald- in á fímmtudögum kl. 17 til 19, en skattafundurinn var haldinn á mið- vikudagskvöldi. Aðsókn af Málstofúnni hefúr verið upp og ofan. Best var aðsóknin þegar Friðrik Sophusson og Ögmundur Jón- asson áttust við, en þá var hvert sæti skipað og þurftu þó nokkrir að standa. Þokkaleg aðsókn var að skattafundin- um en minni að Málstofúnum um til- vísanakerfið og grunnskólafrumvarp- ið. /Etlunin er að halda Málstofunni á- ffarn fram á vor og taka svo upp þráð- inn í haust. Áframhaldið veltur svo á áhuga félagsmanna á þessari nýjung í starfí BSRB. Þann áhuga er einungis hægt að mæla eftir aðsókn félags- manna á Málstofuna. Félagar eru því hvattir til að nota þennan vettvang til þess að komast í návígi við þau mál- efni sem eru efst á baugi í þjóðfélag- inu hverju sinni og skiptast á skoðun- um við þá sem móta umræðuna. 6 Bsm^

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.