BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Qupperneq 8

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Qupperneq 8
Herkostnaður láglaunastefnu fyrirtækj anna Láglaunastefnan sem rekin hefur verið í þjóðfélaginu hefur kostað samfélagið mjög háar upphæðir. Kemur þar margt til. Láglaunastefnan kallar á auknar bætur frá félagsmálastofnunum í formi húsaleigubóta og framfærslustyrkja til fullfrisks fólks í fullri vinnu. Hún hefur orðið til þess að greiðsluáætlanir fjölda fjölskyldna vegna húnæðiskaupa hafa ekki staðist þegar sam- dráttur verður í þjóðfélaginu og þau geta ekki lengur bjargað sér með aukavinnu. Atvinnuleysi er meira en þyrfti að vera vegna þess að fólk i fullri vinnu leggur á sig aukavinnu til þess að ná endum saman og tekur þar af leiðandi vinnu frá öðr- um. Láglaunastefnan á sinn þátt í lágri framleiðni fyrirtækja á Islandi. Lág laun hafa einnig í för með sér minni veltu vegna minni neyslu og eru tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti þar af leiðandi minni. Sama má segja um skattatekjur ríkissjóðs al- mennt. Það er því Ijóst að herkostnaðurinn af láglaunastefnunni er mikill fyrir þjóðfélagið. í fréttabréfi Þjóðhags- stofnunar frá því í nóvember 1994 kemur fram að 36% framteljenda árið 1993 hafi verið með tekjur undir skatt- leysismörkum sem voru 689 þúsund króna. Það þýðir að einungis 64% framteljenda greiði skatt af tekjum sínum. í raun eru þeir enn færri vegna millifærslu persónuafsláttar milli hjóna, sjómannaafsláttar o.fl. Það er ljóst að ríkið verð- ur af miklum skatttekjum vegna þessara lágu launa. í raun er ríkið að niðurgreiða launakostnað fyrirtækjanna með þessum hætti. Laun og launakostnaður íslenskra fyrirtækja er mun lægri en í þeim löndum sem við berum okkur gjaman við. í töflu yfir heildarlaun iðn- verkamanna í OECD löndun- um árið 1991, sem birt er í Skýrslu um samkeppnisstöðu íslands, sem Aflvaki gaf út í árslok í fyrra kemur fram að íslenskir iðnverkamenn eru í 5. neðsta sætinu. Einungis Tyrkland, Portúgal, Grikkland og Nýja-Sjáland eru fyrir neð- an. Samkvæmt töflunni er launastigið hér á landi um helmingi lægra en hjá íjórum efstu þjóðunum, Noregi, Þýskalandi, Svíþjóð og Sviss. Þau lönd sem eru á svipuðu róli og við eru Irland og Spánn. í töflu um laun og launa- kostnað 1993 sem birt var í desemberhefti fréttabréfs VSÍ, Af vettvangi, kemur mjög svipað í ljós. Taflan er fengin úr skýrslu sænska vinnuveit- endasambandsins og sýnir að laun og launakostnaður er helmingi lægri hér en hjá þeim þjóðum þar sem hann er mestur. Samkvæmt töflunni eru launin hæst í Danmörku, um 1200 krónur á tímann að meðaltali. Næst hæst eru laun- in í Noregi og Þýskaland er í þriðja sæti. Island er mjög aftarlega á merinni og eru launin hér að meðaltali um 600 krónur á tímann. Af Evrópuþjóðum sem samanburðurinn nær til eru launin einungis lægri að meðaltali á Spáni og í Portú- gal. Meðallaun í Bretlandi og Finnlandi eru um 10% hærri en á íslandi, en þau lönd koma næst á undan okkur í þessum samanburði. Sé annar launakostnaður, þ.e. launatengd gjöld, lögð við launin, blasir mjög svipuð mynd við hvað stöðu íslands áhrærir. Kostnaður fyrirtækja er að meðaltali um 800 krónur á tímann hér á landi. Þýska- land skýst hins vegar í fyrsta sæti, enda leggst um 80% ó- beinn launakostnaður ofan á launin þar og þarf þýskt fyrir- tæki að greiða um 1900 krón- ur að meðaltali fyrir hverja vinnustund. I ljósi þessa mikla munar á launakostnaði fyrirtækja er 8

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.