BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 26

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Blaðsíða 26
rnorsson, hagfræðingur BSRB Það eina sem íslenska þjóðin virðist í stórum dróttum sam- móla um í sambandi við sjóv- arútveginn er að fiskimiðin eigi að vera sameign þjóðar- innar og í beinu framhaldi af því að útlendingum verði ekki gefin eignaraðild að fyrirtækj- um í sjóvarútvegi, eða eins og núgildandi lög kveða ó um: útlendingum er meinuð eignaraðild að útgerð og frumfiskvinnslu. Að öðru leyti er hver höndin uppi á móti annarri og óneitanlega stefnir æ meir í þá átt að sameign þjóðarinnar verði ekki nema formleg og e.t.v. ekki einu sinni það, er til lengri tíma er litið. Greinilegustu andstæðum- ar í þesum efnum má vafa- laust taka saman í stuttu máli í ágreiningnum um núverandi kvótakerfi eða hvort taka beri upp gjald fyrir kvótann. Fjöldi röksemda hafa ver- ið dregin fram fyrir hvoru- tveggja málsstaðinn og verður rúmi ekki eytt hér í að rifja þau rök öll upp. Ein hlið þessa máls hefur þó orðið æði mikið útundan. Eins og málum er háttað nú er útlendingum bannað að eiga hlut í útgerðarfyrir- tækjum og frumfiskvinnslu. Þetta takmarkar óneitanlega svigrúm þessara fyrirtækja til að nálgast fjármagn með hlutafjárútboðum. Það sem er öllu verra að samkvæmt sömu reglu geta þessi fyrirtæki ekki sótt lán til útlendinga, eða fyr- irtækja í eigu þeirra gegn veði í sjálfum sér. Það veð er aug- ljóslega haldlaust, því ef sækja ætti veðið missti út- gerðarfyrirtækið kvótann og væri þar með verðlaust og veðið einskis nýtt. Þetta leiðir augljóslega til þess að útgerðar- og frumfisk- vinnslufyrirtæki eru dæmd til að sæta miklu dýrara fjár- magni en önnur fyrirtæki í landinu. Það er nokkuð aug- ljóst að við það verður ekki unað að þeim fyrirtækjum, sem í amk hátíðarræðum, eru nefnd fjöregg þjóðarinnar, verði svo þröngur stakkur sniðinn. Miðað við núgildandi fiskveiðistefnu mun því smám saman vaxa þrýstingur á að þessi lög verði afnumin, þannig að útlendingum verði heimilt að eignast hlut í þess- um fyrirtækjum. Kvótagjaldið mundi leysa ýmis vandkvæði í þessu sam- bandi. Útboð á kvóta til á- kveðins tíma hefði í för með sér að hagsmunir Islendinga mundu stórlega minnka gagnvart því hveijir ættu fyr- irtækin, sem hrepptu kvótann hverju sinni. Reyndar mætti leiða rök að því að erlend fyr- irtæki ættu undir högg að sækja í samkeppni við ís- lenska útgerð á kvótauppboði. Þó ég sé ekki endilega að mæla með því að svo yrði gert, þá má velta fyrir sér möguleikum á því að kvótaút- boð yrði skilyrt um hvar landa ætti aflanum. Sýnist mér að slík skilyrði gætu jafnvel haldið gagnvart reglum ESB, enda mundu þau beinast jafnt að íslendingum sem útlend- ingum. Þeirri spumingu verð- ur þó ekki endanlega svarað nema í samningaviðræðum við ESB. Þá mætti skilyrða útboð við mismunandi veiðarfæri, sem er innlegg í umræðu um það hvernig fiskurinn verði best nýttur. Þegar öllu er á botninn hvolft fæ ég ekki séð nema kvótaleigan leysi flest þau vandamál, sem við stöndum frammi fyrir í sjávarútvegs- stefnu okkar. Við gætum haft útboð á kvótanum án þess að efnislega skipti máli hvort út- lendingar eða innfæddir hrepptu hnossið, greiðslan sæti óhjákvæmlega eftir í landinu. Islensk sjávarútvegs- fyrirtæki yrðu leyst úr viðjum fjármagnshafta og fengju að- gang að mun ódýrara fjár- magni. Að lokum virðist mér þetta eina raunhæfa leiðin til að framkvæma þann þjóðar- vilja að miðin séu raunveru- lega sameign þjóðarinnar. Svnum ábvrað. flokkum sorp og notum gámastöðvar Timbur • málmar • garðaúrgangur • pappír • spilliefni • grjót Gámastööin þín er í næsta nágrenni: • Mosfellsbær: Viö hesthúsabyggðina í Mosfellsbæ. • Noröausturhverfi Reykjavíkur, Austurbær, Fossvogur og Árbær: Viö Sævarhöfða. • Hafnarfjöröur, Garöabær og Bessastaöahreppur: Miðhrauni 20, Garðabæ. • Seltjarnarnes og Vesturbær: Við Ánanaust. • Kópavogur: Við Dalveg. • Breiðholt: Við Jafnasel. • Grafarvogur: Við Gylfaflöt. OP/Ð: Á sumrin 12:30 - 21:00 Á veturna 12:30 - tg.-30 Að auki eru gámastöðvarnar á Sævarhöfða og í Ánanaustum opnar alla virka morgna frá kl. 9.00. Nánari upplýsingar í þjónustusímsvara: 567 6571 S@RPA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.