BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 29

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 29
Mfana-T shangela- fjölskyldan. Við- mælandinn Lung- iswe lengst til vinstri. Aðskilnað- arstefnan í Suður- Afríku er fyrir bí, en lífskjarabatinn lætur á sér standa. hennar er ættingjar og vinir frá Transkei birtust í atvinnuleit. Um þessar mundir er Lungiswe sú eina hinna fullorðnu á heimilinu sem hefur atvinnu. Hún starfar enn sem hús- hjálp og er með rúmlega 7.500 íslenskar krónur á mánuði. Á því kaupi heldur hún uppi sex manns. Þjóðarflokkurinn ræður „Við vitum að jafnvel Mandela get- ur ekki útrýmt öllum afleiðingum að- skilnaðarstefnunnar eins og hendi sé veifað, en okkur finnst hægagangurinn of mikill,” segir Pamella Mfana. „Við sjáum í sjónvarpinu að forvígismenn Þjóðarráðsins í öðrum fylkjum standa fyrir uppbyggingu í húsnæðismálunum, en hérna í Vestur-Höfðaborgarfylki er gamli Þjóðarflokkurinn enn við völd, og ástandið hefur ekkert skánað síðan á dögum aðskilnaðarstefnunnar. Þetta er alveg eins og áður: Þeir setja bara upp klósett þar sem maður heldur til, og svo verður maður sjálfur að sjá um að hrófla upp kofa.” Það var aðeins í Vestur-Höfðaborg- arfylki sem Þjóðarflokkurinn, boðberi aðkilnaðarstefnunnar og rótgróinn valdaflokkur landsins, bar sigurorð af Afríska þjóðarráðinu, en fólk af öðrum kynþáttum en hinum hvíta hefur í aukn- um mæli gengið til liðs við flokkinn í seinni tíð (Inkatha-hreyfingin var sigur- vegari í kosningunum í Kwa-Zulu-Na- tal-fylki, en Afríska þjóðarráðið í öllum öðrum fylkjum landsins, sjö talsins). Forsætisráðherra Vestur-Höfðaborgar- fylkis, Hernus Kriel, var ráðherra í rík- isstjórn de Klerks, og í mörgum mála- flokkum er hann á öndverðum meiði við Mandela og aðra núverandi vald- hafa landsins. Átak Þjóðarflokksins í húsnæðis- málunum í Khayelitsha er í því fólgið að byggja þokkaleg hús á svokölluðum þróunarsvæðum, en Lungiswe og Pamella og sú fjölskylda öll mun seint hafa efni á slíku húsnæði. Húsverðið er um 11.000 Bandaríkjadalir - um 715.000 íslenskar krónur - og er stílað upp á svörtu millistéttina. Svo til allir íbúar Khayelitsha greiddu Afríska þjóðarráðinu atkvæði sitt í kosningunum í apríl í fyrra, og þó að þeir hafi sitthvað við framgöngu stjórnvalda að athuga hefur traust þeirra til Þjóðarráðsins ekki bilað. „Við erum og verðum stuðningsmenn Afríska þjóðarráðsins,” segja Lungiswe og Pamella, en þær eru meðlimir í flokks- deildinni í Holomisa. Hófleg bjartsýni Þær stöllur eru ekki yfirmáta von- góðar um betri tíð. Mfana-Tshangela- fjölskyldan er uppgjafarleg fremur en reið og óþolinmóð. „Oft spyr ég sjálfa mig hvort eitt- hvað hafi breyst til batnaðar. Jú, and- rúmsloft kúgunarinnar er á bak og burt, en lífskjörin eru hin sömu og áður,” segir Lungiswe; „nú finnst fólki það geta gert það sem því sýnist. „Þetta er okkar stjórn, stjórn fólksins,” segir það og pissar út um allt. Enginn virðir nein lög og reglur. Ástandið er fyrir neðan allar hellur.” „Stjórnvöld verða að endurskipu- leggja löggæsluna og fá lögregluna til að vera meira á ferli meðal fólks. Ef lögreglan fer ekki að kljást við glæpi af meiri festu sitjum við uppi með stiga- mannaþjóðfélag áður en við er litið. Kíktu bara út,” segir Lungiswe og bend- ir út um opnar dyrnar á sorpið og draslið sem þyrlast eftir götunni: „Með betri lífskjörum erum við ekki að meina einkasundlaug og þjóna eins og hjá hvíta fólkinu, heldur erum við að tala um sjálfsagða hluti á borð við hreinlæti og snyrtimennsku. Við setjum markið ekki hærra í bili en að fá rennandi vatn og fleiri ruslapoka. Hvítur húseigandi fær 500 ruslapoka á ári. Héma er náð í ruslið vikulega þegar best lætur. Þegar tunnan er orðin full verðum við að setja það sem umfram er út við hliðina á henni. Svo þyrlar vindurinn þessu út um allar jarðir og breytir hverfinu í ösku- haug.” 29

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.