BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 30

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 30
Símamenn ætíð verið óhræddir að taka á máhim Félag íslenskro símamanna var& 80 óra 27. febrúar slv en FIS er elsta stéttarfélagið innan vébanda BSRB og hefur verið aðild- arfélag fró stofnun bandalagsins. í tilefni afmælisins hélt félagið afmælishóf í Súlna- sal Hótel Sögu þar sem félagsmenn og gestir þeirra gerðu sér glaðan dag og barst féloginu fjöldi gjafa. Félag íslenskra símamann var stofnað árið 1915 og varOttó B. Arnar fyrsti formaður þess. Hann var gerður að heiðursfélaga FIS á þrjátíu ára afmæli félagsins, 27. febrúar 1945. í tilefni afmælisins nú afhenti sonur hans, Birgir Amar, félaginu málverk af Ottó og heiðursskjalið semhann fékk þegar hann yar gerður að hciðttrsfélaga. en Ottó hefði orðið 100 ára í desember 1994. Stofnfélagar voru 20 en í dag em félagar í FÍS um 900 talsins. Flestir vom félagar í FÍS 1.300 um miðjan níunda áratuginn. Félag íslenskra símamanna skiptist í sjö deildir eftir starfsgreinum; deildir skrifstofufólks, talsímavarða, símsmiða, rafeinda- virkja, stöðvarstjóra, fjarskipta og deíld sérhæfðra starfa. Ragnhildur Guðmundsilóttir for- maður FIS sagði að það væri margt sem leitaði á hugann á þessum ttma- mótum. Fyrst og fremst þó nauðsyn þess að hafa virk stéttarfélög. Hún sagði að þegar sagan væri skoðuð kæmu í ljós ótalmörg atriði sem Fé- lag íslenskra símamanna hefur haft framgöngu um. Þar mætti nefna símamanna 80 ara stofnun starfsmannaráða, en FIS barðist fyrir stofnun þeirra. Þá vildi hún nefna stofnun Póst- og símamálaskólans sem FIS hefði haft forgöngu um árið 1969 og ótal margt fleira. „Mikilvægast er þó að FÍS hefur alltaf verið virkur þátttak- andi í baráttunni fyrir bættum kjömm launafólks í landinu og símamenn hafa ætíð verið ó- hræddir við að taka á málum,” sagði Ragnhildur, Símamenn hafa gefið út málgagn sitt, Símablaðið, allt frá stofnun félagsins, þannig að Símablaðið er 80 ára í ár og því elsta stéttarmálgagn sem gefið er út á landinu. Fyrstu átta árin hét blaðið Elektron en breytti um nafn árið 1922. Á fyrstu útgáfu- ámnum var blaðið gefið út mán- aðarlega og var eitt helsta tækni- blað Tandsins og selt í blaðsölu- tumum og mjög vinsælt af tæknisínnuðum almenningi. Blaðið kemur nú út tvisvar á ári og er Þorsteinn Óskarsson rit- stjóri þess. Ragnhildur sagði að um þessar mundir væri vegið hart að símamönnum. Halldór Blöndal, samgönguráðherra, hefði fyrir kosningar boðað að Póstur og sími yrði seldur. Sú yfirlýsing þýddi að framundan væri hörð barátta við misvitra stjómmála- menn. „Við vitum af reynslunni er- lendis frá að hagsmunir starfs- fólks verða ekki hafðir í fyrir- rúmi heldur fyrst og fremst fjár- magnseigenda. Eg minnist orða eins yfirmanna stofnunarinnar, sem hann lét falla á fundi fyrir nokkm. Hann sagði: Þegar við emm búnir að selja Póst og síma verðum við ekki með fólk hér af mannúðarástæðum. Þessi ó- manneskjulega hugsun segir allt. Menn tala í gegnum hattinn sinn og vita ekki alveg hvaða afleið- ingar það hefur. Við megum aldrei gleyma því að Póstur og sími er fyrst og fremst fólk en ekki hús og tæki útí bæ. Það má aldrei gleyma hlut starfsfólksins í vclgcngni stofnunarinnar en því miður virðast margir ráða- menn ekki átta sig á þeirri stað- reynd,” sagði Ragnhildur að lok- Unnið^oo upp^Mngu loftnets í Flatey á BfetðaftrS árið 1957.-Myndina tók Ríkarður , Ur sögu símans: Karl V'ilhjámsson, skrifstefustjóri á Radíóverkstæði, Agnar Stefánsson lagerstjóri óg Jón Einksson fjarskiptaeftirlitsmaður 30

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.