BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 37

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 37
Sjálfstyrking á Sigl Fræðslunefnd BSRB gekkst fyrir sjálfstyrkingarnámskeiði fyrir BSRB-konur á Siglufirði helgina 24. og 25. mars sl. Leiðbeinandi var Steinunn Harðardóttir, en hún hefur um árabil haldið námskeið af þessu tagi á vegum Tóm- stundaskólans. Námskeiðið var haldið á miðhæð Ráðhússins, og sá Starfsmannafélag Siglufjarð- arkaupstaðar um kaffi og meðlæti í hléum. Þátttakend- ur voru tuttugu; átta frá starfsmannafélaginu, níu frá Starfsmannafélagi nkisstofn- ana; tvær ljósmæður og einn leikskólakennari. Guðrún Ámadóttir, SFR, annaðist að mestu milligönguna við fræðslunefnd BSRB og sá um skráningu, en formaður Starfsmannafélags Siglu- fjarðarkaupstaðar, Olafur Þór Ólafsson, var nefndir einnig innan handar. Guðrún segir að þátttí endur séu á einu máli um vel hafi tekist til með ná skeiðshaldið. Þá mælist viðleitni fræðslunefnd BSRB að standa fyrir ná skeiðum utan höfuðborg; svæðisins vel fyrir, en seinni árum hefur það færst nokkuð í vöxt. Frá sjálfstyrkingarnámskeiðinu á Siglufirði í mars sl. Sú viðleitni fræðslunefndar BSRB að standa í auknum mæli fyrir námskeiðum utan höfuðborgarsvæðisins mælist vel fyrir. Fulltrúar BSRB í Atvinnuleysistryggingasjóði Stjórn BSRB hefur tilnefnt Sigríði Kristinsdóttur, formann SFR, aðal- mann samtakanna í stjórn Atvinnuleys- istryggingasjóð. Varamaður samtak- anna í stjórninni verður Garðar Hilm- arsson úr Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar. Jafnframt hefur stjórn BSRB tilnefnt fulltrúa bandalagsins í úthlutunarnefnd at- vinnuleysisbóta fyrir félagsmenn í félög- um innan BSRB. Aðalmenn eru Nanna Hreinsdóttir, Starfsmannafélagi Kópa- vogs, Eyþór Fannberg, Starfsmannafélagi Reykjavíkur og Einar Andrésson SFR. Varamenn eru Jón Júlíusson, Starfs- mannafélagi Kópavogs, Arna Jakobína Björnsdóttir STAK og Ragnhildur Guð- mundsdóttir, FÍS. STUNDIMYNTSAFNINU íslensk mynt og seðlar, íslenskir vöruseðlar og brauðpeningar, minnispeningar, heiðursmerki, orður - erlend mynt sem tengist íslenskri sögu. Myntir hafa verið slegnar síðan á 8. öld f.Kr. og eru meðal frumheimilda um menningar- og verslunar- sögu fyrri alda. í Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminja- safns eru nú um sextán þúsund myntir. Stofninn í myntsafninu er íslensk mynt og seðlar og erlendir peningar frá fyrri öldum. Meðal sýningar- efnis eru peningaseðlar frá 18. öld, sem heimilt var að nota hér á landi og síðan allar gerðir innlendra seðla frá upphafi íslenskrar seðlaútgáfu árið 1886. Safn af skemmtilegum fróðleik. Opið virka daga á skrifstofutíma og á sunnu- dögum kl. 14-16. Sérfræðingur er til leiðsagnar. Aðgangur ókeypis. MYNTSAFN Seðlabanka og Þjóðminjasafns Einholti 4 Reykjavík Sími 69 99 64

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.