Duld - 01.12.1954, Page 5
NOSTRADAMUS
3
Að prófi lolrnu fór hann aftur „á
flakk“. Hann ferðaðist um sömu
slóðir og á pestarárunum og lækn-
aði sjúka, og alls staðar var honum
vel tekið. Á einni ferð sinni kom
hann við í Agen, sem er við ána
Garonne um 130 km suð-austur
af Bordeaux. Þar hitti hann vin
sinn, Jules César Scalinger, er var
læknir og skáld gott (1484—
1558). Scalinger kvatti Nostra-
damus eindregið til að setjast að
í Agen og stunda þar lækningar.
Nostradamus lét að ráðum hans
og settist þar að. Hann kvongaðist
Adriéte de Loubéjac, er var kona
af góðum ættum. Þau eignuðust
tvö börn, son og dóttur.
2. Miklar raunir —
Fyrsta spásögn.
Allt virtist nú leika í lyndi fyrir
Nostradamus- Hann var ungur,
vel menntaður og lífsreyndur
læknir i miklu áliti. En svo skall
ólánið yfir hann, fyrirvaralaust.
Börnin hans bæði dóu snögglega,
og svo missti hann konu sina
nokkrum mánuðum síðar, án þess
að hann fengi nokkuð að gert.
Lækniskunnátta hans kom að
engu gagni. Þetta var honum
þungt áfall, og hann unndi ekki
lengur hag sínum í Agen. Hann
DULD mun í næstu heftum segja
frá spádómum Nostradamusar, en
hann er einn umdeildasti, en jafn-
framt athyglisverðasti maður sög-
unnar. — Hann sagði fyrir um það,
að Hinrik II., konungur Frakklands,
mundi verða fyrir áverka á auga og
bíða bana af því. Þetta rættist. Hann
sá einnig fyrir frelsisstríð Bandaríkj-
anna og frönsku byltinguna; hann
sá fyrir fall Napoleons mikla og út-
legð hans til Elbu; hann sá fyrir
heimsstyrjöldina fyrri, og byggingu
Magniotlínunnar frönsku. Hann sá
og fyrir heimsstyrjöldina síðari og
ósigur Þýzkalands. Síðan Nostradam-
us ritaði spádóma sína eru um fjögur
hundruð ár.
>. __________________________________J
tók sig upp og lagði aftur land
undir fót, eins og hann hafði gert
á stúdentsárum sínum. Það segir
lítið af ferðum hans á þessu tíma-
bili. Þó er það vitað, að hann ferð-
aðist til Italíu, fór til Milano,
Genua og Feneyja og komzt þar
í kynni við hinn nýja anda endur-
reisnartímahilsins (renaisansins).
Það er jafnvel fullyrt, að hann
hafi komist í kynni við alkemista
og stjörnuspekinga á Italíureisu
sinni. Sú saga er sögð um Nostra-
damus, er hann var á Ítalíu, að
eitt sinn hafi hann verið kynnt-
ur fyrir ungum Franciskumunk,