Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 36

Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 36
34 DULD Margt fleira af svipuðu tagi fór á milli þeirra áður en þeir kvödd- ust þennan örlagaríka dag. Þetta varð til þess, að Cagliostro skyldi verða heiðursgestur kardínálans, og hann flutti allt sitt hafurtask úr leiguhcrbergjunum á Strass- bourg í hina glæsilegu höll kardí- nálans, Cháteau de Saverne. Og þar lét hinn tvístígandi preláti, sem var eins og milli skers og báru, og vissi raunar ekki, hverju hann átti að trúa, koma upp efna- rannsóknarstofu handa Cagliostro. Og svo var það einn dag, mánuði síðar, að Cagliostro kórónaði það vald, sem hann var að ná yfir Louis de Róhan, með því að sýna það svart á hviítu, að hann gæti breytt óæðri málmum í gull. Hann tók upp úr deiglunni, sem var í rannsóknarstofunni, gull- stöng, fimm þúsund livre virði, sem hann hafði framleitt úr blýi fyrir augunum á kardínálanum. Hann rétti hinum virðulega gest- gjafa gullið, og skyldi það vera eins konar smátrygging fyrir því, er síðar myndi koma. Cagliostro gerði þetta með svo léttúðugu og kæruleysislegu látbragði, sem væri hann að rétta kardánálan- um laufblað, sem hann hefði tínt upp af götu sinni. Það reyndist samt ekki unnt að búa til meira gull, þvi að Cagli- ostro vantaði ákveðin efni, sem fengust hvergi nema í París. Hann lagði því til við hans hágöfgi, að þeir skyldu flytjast til Parísar, þar sem efni þessi væru við hend- ina, og setjast að í Hótel de Rohan. Meðan beðið var eftir brottför- inni, var daglega stöðugur straum- ur af höfðingjum og heldra fólki inn í íbúð Cagliostros í Cháteu de Saverne, vegna þess orðstírs, er af honum fór sem lækni og töframeistara. Orðstír hans barst þaðan eins og eldur í sinu út um allt Frakkland, og París komst á annan endann af eftirvæntingu út af væntanlegri komu hans. Hann gekk um meðal hinna tignu gesta sinna, hnakkakertur, hrokafullur og valdsmannlegur. Og þeim, sem hann beindi augum sínum að, fannst sem hin dulúðgu augu hans skytu eldingum og væru næsta ægileg. Hann pataði og baðaði út öllum öngum á hinn furðulegasta hátt, og hann lét dæl- una ganga á þessari fáránlegu golfrönsku sinni, sem var eitthvert sambland af ítölsku, frönsku og spænsku, eins konar linga franca, sem skilja mátti að einhverju leyti í landi, þar sem rómönsk tunga var töluð. Hann var ókurteis og hranalegur á tali og viðmóti og

x

Duld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.