Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 46
44
DULD
legt vein. „Herra minn, herra
minn, þú ert sagður gæddur yfir-
náttúrlegmn mætti. Miskunnaðu
mér, hjálpaðu mér i þessum nauð-
rnn mínum“.
„Jæja, svo að nú getur þú trú-
að mér. Já, ég ræð yfir regin-
mætti, en ég hef samt ekki vald
til þess að reisa mann frá dauð-
um“.
„Héfur þú það ekki? hefur þú
það ekki? Monsieur de Guémenée
var nú allt í einu orðinn jafn of-
stopafullur og áður. Hann gaut
augimum lymskulega í kringum
sig. „Þvi verra fyrir þig, þar sem
þú átt sökina. Ég skal kalla á alla
í húsinu Og segja þeim, að þú sért
morðinginn. Hvað þá, vinur
minn? Hvað þá? Heldur þú, að
orð þín verði þyngri á metunum
en mín?“
Cagliostro brosti. „Snjailræði.
En því miður höfum við vitni.
Líttu aftur fyrir þig, Monsieur“.
Monsieur de Guémenée hnykkti
við, hann leit aftur fyrir sig. Og
í dyrunum, sem fjær voru, dyr-
unum, sem hann hafði ekki hug-
mynd um að væru til, sá hann
standa dökka mannsmynd. Er
hann hafði rýnt á mannsmyndina
um stund, þá kannaðist hann við
Barón de Planta. „Hversu lengi
hafið þér staðið þama, Monsieur?“
spurði hann.
Baróninn svaraði, kalt og misk-
unnarlaust: „Frá því augnabliki,
■sem þér þeyttuð öxinni“.
Allt hugrekkið lak úr Monsieur
de Guémenée og hann lympaðist
niður. Hann lyfti blóðugum hönd-
unum í algerri uppgjöf. „Hvað á
ég að gera? Mon Dieu, hvað á ég
að gera?“
„Hvað ertu reiðubúinn til að
gera, ef ég get bjargað þér?“ spurði
Cagliostro.
Monsieur de Guémenée horfð-
ist í augu við Cagliostro og færði
sig nær honum.
„Bjargað mér, segir þú? Ertu
að hæðast að kvöl minni? Hvaða
hjálp getur þú veitt? hvaða hjálp
getur nokkur veitt? Þú ert búinn
að segja, að þú getir ekki reist
mann frá dauðum“.
„Það er satt. En ég get þurrkað
það út, sem búið er að gera. Það
er jafnvel í valdi manns sem ég
er, því að ég er Sá sem Er. Hlust-
aðu á mig, prins minn góður, og
reyndu að skilja. Þessi verknaður,
sem þú hefur framið, er framinn
í tíma. Tiími, herra minn, er ekki
raunveruleiki, hann er ekki einn
af grundvallarveruleikum tilver-
unnar. Hann er skynvilla, marrn
legt vanahugtak, til þess eins not-