Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 23
KROSSINN HELGI
21
kassanum, sem nú hafði talið mín-
úturnar fyrir 5 eða 6 kynslóðir-
— Það hefur máske sigið á mig
höfgi, en ég held þó ekki. Hugur
minn var enn ekki laus við áhrif-
in í kirkjunni og ég hefi, án alls
efa, verið á þeirri stundu með-
tækilegur fyrir öllum góðum áhrif-
um frá verum á öðru tilverustigi.
— Það er ekki að orðlengja, að
ég sá þá sýn, sem mér er mjög
minnisstæð. — Mér varð litið til
„krossins helga“ á þilinu við
gluggann. Sá ég þá, að fyrir fram-
an hann kraup ungur maður á
bæn. Ég þóttist þegar sjá að þetta
væri Englendingur; hansn var svo
hvítur á hörund og hár hans var
svo tinnusvart og gljáandi. Ég
horfði á þetta góða stund, en síð-
an stóð pilturinn upp og snéri sér
að mér með lokuðum augum og
hendumar í bænastillingu. Svo
gekk hann hægt yfir að bekknum,
sem ég lá á, og kraup þar aftur
fyrir framan mig. — Þar horfði
ég enn á harm góða stund og varð
einkanlega starsýnt á hversu
skarpleitur hann var og hve hend-
ur hans voru hviítar. — Svo hrökk
ég upp og var sýninni lokið.
Síðar komst ég að því, að „kross-
inn helgi“ hafði hangið á vegg í
ensku heimili um þrjá tugi ára.
Þar var bænaskemill fyrir fram-
an hann, og þar bændi sig allt
heimihsfólkið, að enskum sið, á
hverju kvöldi áður en það gekk til
svefnherbergja sinna til hvíldar.
En hvað var þarna að gerast?
Var þarna einhver framliðinn
enskur „gentlemaður“ enn að
biðja fyrir sér, og naut ég fyrir-
bæna hans? Ef þú, lesari góður,
trúir þvi að ég segi hér rétt og
satt frá þessari sýn minni, þá trúir
þú því líka, að þama var góður
andi á ferð, og í góðum tilgangi.
— En „krossinn helga“ læt ég
ekki fyrir nokkurn pening. —
§—□—§
Kjölturakkinn bjargaði lífi hennar.
Frú Muriel Lurie fékk sér dag nokkurn göngutúr með kjölturakk-
ann sinn, Laddie. Hún settist á bekk í skemmtigarði í nágrenninu og
naut veðurblíðunnar. Allt í einu fór kjölturakkinn að gelta ofsalega
og láta illum látum. Fni Laurie stóð upp til þess að sefa bundinn. 1
þeim svifum brast stór grein af trénu, sem bekkurinn stóð við, og
féll niður. Ef frú Lurie hefði ekki verið staðin upp, hefði hún orðið
undir greininni og ef til vill beðið bana.