Duld - 01.12.1954, Side 10
8
DULD
semd. Þessi ferð Nostradamusar
til París og dvöl hans við hirðina
varð honum áreiðanlega til mik-
illar uppörvunar, því að þegar
hann kom til Salon aiftur tók hann
til við að rita nýtt spádómasafn,
sem kom út í Lyon 1558. I út-
gáfu þessari er pistillinn til Hin-
riks II., sem sumir telja, að sé
lykillinn að öllum spádómum
Nostradamusar.
7. Konunglegur líflæknir
og ráðgjafi.
Nostradamus hélt nú kyrru fyr-
ir í Salon og lifði rólegu lífi. Hann
fór að vísu ekki varhluta af rógi
og illmælgi, því að hann átti all-
marga óvildarmenn, sem öfund-
uðu hann og reyndu að gera hon-
um allt til miska. Þrátt fyrir
frægðina, eða máske vegna henn-
ar, var nú Nostradamusi farið að
finnast, að laun heimsins væru
vanþakklæti. —
Árið 1564 fór Charles IX., kon-
ungur Frakklands, sem erft hafði
krúnuna eftir Francis II., bróður
sinn (er andaðist 1560) í ferða-
lag um Suður Frakkland í fylgd
með móður sinni, Katrinu dé
Medici. Þau komu til Salon og
gerðu hoð eftir Nostradamusi. Við
þetta tækifæri gerði konungurinn
hann að líflækni sínum og kon-
unglegum ráðgjafa, og skildi hann
fá laun frá ríkinu til dauðadags.
Þetta rétti mjög við hag Nostra-
damusar, bæði efnalega og í aug-
um fólksins. Þva fór að þykja tals-
vert til gamla mannsins koma, en
hann var nú kominti yfir sextugt.
Heilsa hans var farin að hila-
Hann þjáðist af liðagigt og bjúg,
sem ágerðist. Hann andaðist á
heimili sínu í Salon 17. júní 1566
rúmlega 62 ára að aldri. Hann var
jarðsunginn í Franciskmnunka
kirkjunni í Salon, og þar fengu
bein hans að hvíla í friði, þar til
kirkjan var jöfnuð við jörðu 1595
í frönsku byltingunni. Eftir þetta
var gröfin flutt í kirkjuna í St.
Laurent, og þar hvila þau enn i
dag. (Framhald í næsta hefti).
\
Nýja Testamentið bjargaði.
William Lepper frá Mecoole í Nebraska tók þátt í Kóreustyrjöld-
inni. Hann fékk riffilkúlu í hrjóstið, en hún fór ekki i gegn, því að
hún hafði lent í Nýja Testamenti, sem hann bar á brjósti sér.