Duld - 01.12.1954, Side 22

Duld - 01.12.1954, Side 22
20 DULD ramrna- -—- 1 huga mínum hefur ávalt einhver yndisleiki hvílt yfir þessu litla krossmarki. — Mér hefir stundum fundist einhver ró eða vellíðan færast yfir mig, ef ég hefi litið það augum, eða jafn- vel þó að ég hafi aðeins hugsað til þess. — Um mörg ár hafði ég þetta yndislega litla krossmark hangandi lágt á vegg rétt við gluggann þar sem skrifborðið mitt stóð, þarrnig, að það blasti við sjón- um mínum þegar ég sat við skrif- borðið og var að vinna. Þá var það oft, þegar ég lagði ifrá mér pennann, hallaði höfðinu, greip hægri hendinni um hökuna og fór að hugsa, að mér varð star- sýnt á litla krossmarkið umvafið dala-liljunum. —- Mér var nú farið að þykja vænt um þennan kross, og fannst mér reyndar stimdum, að ég hefði hlot- ið hann að verðleikum, sem er meira en hægt er að segja um ýmsa aðra krossa, sem mönnum falla í skaut. Svo var það einn dag, að ég tók hann ofan af nagl- anum, sem hann hékk á og rann- sakaði hann nákvæmlega. Kom þá í ljós letur fyrir neðan krossinn, sem skýrði frá því, að þetta litla og fingerða listaverk hefði nafn- greindur enskur málari málað þegar hanr var staddur á fjallinu helga við Jerúsalem í marzmán- uði 1885. Eftir þetta kalla ég allt- aif litla krossinn minn „Krossinn helga“, og nú er hann orðinn mér svo mikils virði, að ég treysti mér ekki til þess að meta hann til pen- ingaverðs. — Nú skal sögð einkennileg saga í sambandi við „krossinn helga“. — Hún gjörðist einhverntíma á árun- um um og eftir 1920, þegar ég var í söfnuði Haraldar prófessors Ni- elssonar og sótti hverja messu hans í heilan áratug. Síra Harald- ur var, sem kunnugt er, afburða kennimaðmr, heittrúaður en frjáls- lyndur í skoðunum. Ég var hrif- inn af að hlusta á réeðnr hans og honum á ég mikið að þakka. — Hann veitti hlýju í huga minn og nýju ljósi inn í trúarlíf mitt, svo að ég vona að sú birta nægi mér til ferðarinnar miklu. Einn sunnudag, að hausti til, kom ég iir kirkju hjá síra Har- aldi. Það var orðið dimmt, en ég kveikti á einum litlum lampa, sem stóð á lágu borði við höfða- lag leguhekks, sem var í horni stofunnar. Frá ljósinu sló daufri birtu til veggja. Ég var einn í stofunni og lagði mig á legubekk- inn. Djúp kyrrð hvíldi yfir öllu og ekkert hljóð heyrðist nema tif- ið í gömlu klukkunni í mahogni-

x

Duld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.