Duld - 01.12.1954, Síða 44

Duld - 01.12.1954, Síða 44
42 DULD ég sé að hlusta á lygaskrum þessa uppskafnings?“ „Charles!“ Kardínálinn lyfti brfmurn og það var óttasvipur í augum hans. „Ég held að þig skorti tilhlýðilega virðingu". „Hvaða virðingu vekið þér, þér, Prins de Rohan, sem leggið bless- un yðar yfir þetta svívirðilega svindilbrask þessa óþvegna þorp- ara?“ Hans hágöfgi stirðnaði upp þar, sem hann stóð. Rödd hans var köld og harðneskjuleg. „Monsieur, þú gengur of langt. þú skalt hverfa úr þessu húsi nú þegar, og þú færð ekki að stíga hér inn fyrir þröskuld, fyrr en þú hefur beðið um og fengið fyrir- gefningu, bæði hjá mér og Mon- sieur de Cagliostro, á þessum smánarorðum þínum“. „Riðja um fyrirgefningu af þessum loddara? Ég?“ „Á knjánum, Monsieur“. „Þú heimskingi", öskraði Mon- sieur de Guémenée, viti sínu fjær af bræði, „vitið þér, hvað hann er? Vitið þér kannske, að hann var settur i tugthús í Englandi fyrir svik og pretti og skuldir. Ég hef sannanir fyrir þessu, og . . . . “ „Mig varðar ekkert um, hvað þú hefur. Þú verður að fara héð- an út undir eins. Ég læt ekki bjóða mér, að til mín sé talað eins og þú hefur gert. Þú heífur gengið feti lengra en þér var óhætt. Þú hef- ur gleymt þeirri virðingu, sem þér ber að sýna mér persónulega og embætti mínu. Þú segir, að þessi maður hafi verið fangelsaður fyr- ir skuldir. Hvort sem þetta er satt eða ekki, þá má búast við því, að þú fáir að sæta þessum sömu ör- lögum áður en langt um liður. Frá þessu augnabliki varðar mig ekkert um þig; þú getur sjálfur glímt við þín vandamál; og þú getm- reynt að sefa skuldunauta þína, sem þú hefur misboðið, al- veg eins og þú hefur misboðið þolinmæði minni og góðvild. Ekki einn einasti skildingur frá mér skal standa milli þín og þeirra ör- laga, sem þú hefur áskapað sjálf- um þér“. „Almáttugur guð!“ hrópaði Monsiuer de Guémenée. „Ennþá átti gremjan meiri itök í sál hans en óttinn. „Gerðu þér grein fyrir þessu og farðu svo, Monsiéur, en þú skalt ekki áræða að koma hingað aftixr. Þú ert vanþakklátur unglingur, og ég vil ekki isjá þig fyrir augum mínum framar“. Monsieur de Guémenée studdi sig við skrifborðið, skjálfandi af reiði. Hann stillti sig samt svo,

x

Duld

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.