Duld - 01.12.1954, Síða 50
48
DULD
arréttinum, og hann sat í fangelsi
í San Leo virkinu, þá -sagði hann
ungtrtn svartmunki sögu þessa, en
honum hafði verið falið, að leiða
Cagliostro fyrir sjónir villu hans
vegar.
„En þegar við leiðum hugann
að þvi“, bætti Cagliostro við, „að
allt það, sem Prins de Guémenée
hafði séð og heyrt og skynjað og
gert, var hvergi til, nema á huga
mínum og vilja, er þá nokkuð frá-
leitt að spyrja, hvað séu raun-
sannindi, þegar öllu er á botninn
hvolft.
S. Sörensson þýddi.
'★—□
Kl. 11.45.
Frú Edythe Hanson, Redwood City, Califomiu, hafði látið sér þau
orð um munn fara, að hún mundi deyja kl. 11.45 þann 21. ágúst.
Vinir hennar voru vantrúaðir á þetta og brostu. Nokkrir þeirra komu
samt í heimsókn til hennar þennan tiltekna dag til þess að fullvissa
sig um það, að ekkert amaði að henni. Hún var eins og hún átti að
sér og tók glaðlega á móti þeim. Hún fór í háttinn kl. 9 um kvöldið
og kvartaði ekki um neitt. Hún sofnaði og svaf vært. En um ellefu
leytið varð maður hennar var við einhverja breytingu á henni. Hann
lét sækja lækni, en þegar hann kom, var konan önduð. Læknirinn
lýsti því yfir, að konan hefði dáið kl. 11.45.
Zímariiið »DULD«
kemur út annan hvem mánuð. •— Ábyrgðarmaður: ÖL. B. BJÖRNS-
SON, Akranesi. •— Ritstjórn og útgefendur: Síra HELGI SVEINS-
SON, Hveragerði, OL. B. BJÖRNSSON, Miðteig 2 Akranesi, OSCAR
CLAUSEN, Þingholtsstræti 11 Reykjavík, SVEINN ÓLAFSSON,
Póstbox 394 Reykjavík, — SÖREN SÖRENSSON, Póstbox 132
Reykjavik. — Afgreiðsla á MIÐTEIG 2 AKRANESI. — Prentað
í Prentverki Akraness h.f.