Morgunblaðið - 16.06.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 16.06.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ekkert leyndarmál að það eru beint og óbeint hugmyndir Rat- cliffes sjálfs sem liggja að baki þess- ari uppbyggingu,“ segir Gísli Ás- geirsson, framkvæmdastjóri Six Rivers Project. Breski auðmaðurinn Sir Jim Rat- cliffe mun persónulega fjármagna byggingu fjögurra nýrra veiðihúsa á Norðausturlandi á næstu misserum. Fjárfestingin nemur minnst fjórum milljörðum króna. Þessar fram- kvæmdir eru hluti af fyrirætlunum Ratcliffe og félags hans, Six Rivers Project, um uppbyggingu á svæðinu og vernd norðuratlantshafslaxins. Greint var frá fyrirhugaðri upp- byggingu á blaðamannafundi í gær. Byggð verða ný veiðihús við Mið- fjarðará í Bakkafirði, Hofsá og í Vesturárdal, auk þess sem rísa mun viðbygging við veiðihús Six Rivers Project við Selá í Vopnafirði. Upp- byggingin kallar ekki á frekari jarðakaup, að sögn Gísla og sam- starfsmanna hans. „Leyfisferlin hafa verið í gangi og við erum byrjaðir á vegagerð í Vest- urárdal. Miðfjarðarhúsið er alveg á mörkum þess að fá afgreiðslu þannig að við gætum hafist handa þar í haust ef allt gengur upp. Ég myndi ætla að þessi uppbygging öll gæti klárast á næstu 2-3 árum,“ segir Gísli. Kostnaður er áætlaður rúmir fjór- ir milljarðar króna og þeir koma frá Ratcliffe sjálfum. „Já, þetta er beint framlag hans. Hann þarf örugglega að taka það úr bæði hægri og vinstri vasanum en þetta sýnir að hann er mjög spenntur fyrir þessu verkefni og vill gera þetta vel,“ segir Gísli. Six Rivers Project áformar að veiðihúsin nýju muni laða að lax- veiðimenn hvaðanæva sem láti sig viðgang og verndun norðuratlants- hafslaxins varða. Rekstur ánna verði sjálfbær og föst regla verði um að öllum veiddum fiski sé sleppt. Þá muni allur ágóði renna til vernd- arstarfsins. Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá er verndarstarf Six Rivers Project byggt á því að ár- lega eru grafin hrogn í árnar sem fengin eru úr laxi á hverjum stað, byggðir eru laxastigar og stutt er við gróðurfar á svæðinu til að efla fæðu- úrval fisksins í ánum. Vilja fá vel stæða veiðimenn Ljóst er að með því að byggja glæsileg ný veiðihús er stefnt að því að fá hingað vel stæða veiðimenn. Gísli segir við Morgunblaðið að þetta sé í raun hin sígilda spurning um eggið og hænuna. „Ef við getum ekki boðið upp á þetta þá kannski kemur enginn slíkur veiðimaður en þeir koma ef þetta er til staðar.“ Hann þvertekur þó fyrir að aðeins sé um lúxusuppbyggingu fyrir út- lendinga að ræða. Það verði áfram stefna Six Rivers Project að bjóða upp á veiðileyfi fyrir alla, til að mynda silungsveiði og veiði utan að- alveiðitímans. „Auk þess eiga þessi hús eftir að nýtast heimamönnum. Kannski eigum við þess kost að geta farið að bjóða upp á annars konar ferðamennsku utan veiðitímans.“ Veiðihúsin nýju verða í eigu Six Rivers Project. Veiðifélögin á svæð- inu bera ekki af þeim neinn kostnað að sögn Gísla. „Veiðifélögin eru með í ráðum en ekki hvað varðar kostnað og ákvarðanir um efnisval og þess háttar. Þetta er að fullu undir eft- irliti og með vilja heimamanna og landeigenda. Að sjálfsögðu munu þeir á endanum njóta góðs af þessu.“ Fjárfesting sem þessi ætti að vekja ánægju meðal heimamanna, hvað svo sem fólki kann að finnast um jarðakaup og ítök erlendra auð- manna hér. Og Gísli segir að mark- visst sé leitað til heimafólks við framkvæmdir á vegum Six Rivers Project. Þar á meðal er arkitekta- stofa á Egilsstöðum og útibú verk- fræðistofa eystra. „Þetta á eftir að vera innspýting fyrir heimamark- aðinn sem er lítill. Meðan á þessu stendur er heilmikið að gerast á svæðinu. Augljóslega þurfum við að kalla til eitthvert utanaðkomandi fólk en það hefur verið okkar stefna að nota heimafólkið eins mikið og hægt er og við höldum okkur við það.“ Fjögurra milljarða fjárfesting eystra - Stórtæk áform um uppbyggingu tengd laxveiði á Norðausturlandi - Breski auðmaðurinn Sir Jim Ratcliffe leggur fjóra milljarða í ný veiðihús - Eiga að styrkja verndun norðuratlantshafslaxins Morgunblaðið/Einar Falur Stórtækt Gísli Ásgeirsson kynnti áform Six Rivers Project á fundi í gær. Þau nema um fjórum milljörðum króna á næstu tveimur til þremur árum. Tölvumynd/Snidda arkitektastofa Uppbygging Svona mun nýtt veiðihús við Hofsá í Vopnafirði líta út. Húsið er eitt fjögurra veiðihúsa sem eru hluti af uppbyggingu Six Rivers Project. Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlend- ingastofnunar þess efnis að fella nið- ur þjónustu til palestínsks hælisleit- anda, sem meðal annars felur í sér veitingu húsnæðis og fæðis. Niðurstaða nefndarinnar er sú að ákvörðunin hafi ekki átt sér viðhlít- andi lagastoð. Úrskurðurinn hefur fordæm- isgildi fyrir þá sem eru í sömu stöðu, sem eru nokkrir, að sögn Magnúsar D. Norðdahl, lögmanns hælisleitand- ans. „Þegar Útlendingastofnun byrjaði á þessu, þá sögðum við það ítrekað við stofnunina að þetta væri ómann- úðlegt og ólöglegt að bera sig að með þessum hætti. Nú hefur það verið staðfest að framferði stofn- unarinnar var ólögmætt,“ segir Magnús í samtali við Morgunblaðið. „Við auðvitað fögnum því að kærunefndin skuli taka þarna undir sjónarmið okkar og fella niður ákvörðun sem aldrei átti að taka,“ segir hann. Hælisleitandinn hafði neitað að gangast undir PCR-próf fyrir kór- ónuveirusmiti, vegna fyrirhugaðs flutnings til Grikklands en brottvís- unin var staðfest með úrskurði kærunefndar útlendingamála í nóv- ember 2020. Magnús segir að ákveðins mis- skilnings gæti í þessum málum. Hæl- isleitendurnir hafi ekki neitað að fara í PCR-próf vegna þess að þeir væru með einkenni eða þvíumlíkt. Neyð þeirra sé hins vegar slík að þeir séu síður tilbúnir að hjálpa til við eigin brottvísun, með því að gangast undir prófið. Hann telur alvarlegt að opinber stofnun skuli fara fram með þessum hætti, þar sem hælisleitendurnir höfðu í engin hús að venda. veronika@mbl.is Ólögmætt að svipta hælisleitendur þjónustu Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífimínu Ég lifði af Ragnhildur Þrastardóttir Oddur Þórðarson Þegar nokkrir dagar voru liðnir frá því fyrstu kórónuveirusmitin á Landakoti, þar sem flestar öldrunar- lækningadeildir Landspítala eru til húsa, greindust í október síðastliðn- um varð „upplausnarástand“ á spít- alanum. Þetta kemur fram í niður- stöðum rannsóknar embættis landlæknis á hópsýkingu sem kom upp á spítalanum. Niðurstöðurnar voru birtar opinberlega í gær og er hópsmitið þar sagt alvarlegasta at- vik sem upp hefur komið í sögu heil- brigðisþjónustu hérlendis. 99 manns smituðust í hópsýking- unni og minnst 13 létust. Að mati embættis landlæknis orsakaðist hóp- sýkingin af lélegri hólfaskiptingu á spítalanum, skorti á aðgerðastjórn og seintækum skimunum sem upp- lýstu ekki um umfang hópsýkingar- innar fyrr en það var orðið of seint. „Mikill undirbúningur hafði átt sér stað í upphafi faraldursins og al- mennt kom fram í viðtölum við starfsfólk að mikil samstaða hefði verið meðal þess á erfiðum tíma og öryggismenning þótt góð. Þrátt fyrir það varð, samkvæmt lýsing- um þeirra sem að komu þegar nokkrir dagar voru liðnir frá fyrstu smitum hópsýkingarinnar, „upp- lausnarástand“ og skortur á fylgni við þau tilmæli sem gefin höfðu verið frá upphafi faraldurs hvað varðar sýkingavarnir, hlífðarbúnað, hólfa- skiptingu, sóttkví og einangrun,“ segir í niðurstöðum rannsóknarinn- ar. Hún byggist á vettvangsheim- sóknum á Landakot, viðtölum við starfsfólk og stjórnendur á Land- spítala, framlögðum gögnum og upp- lýsingum Landspítala ásamt ýmsum öðrum gögnum sem starfshópur, sem sérstaklega var stofnað til, afl- aði meðan á rannsókn stóð. Þá var áður útgefin bráðabirgða- skýrsla Landspítala rýnd, en hún var gerð opinber 12. nóvember í fyrra. Eins og áður segir telur embætti landlæknis að ekki hafi verið um eina orsök að ræða heldur marga sam- verkandi þætti. Skortur á aðgerðastjórnun „Að mati embættis landlæknis má einna helst rekja þessa alvarlegu út- breiddu hópsýkingu til ófullkominn- ar hólfaskiptingar sem stuðlaði að mikilli og hraðri útbreiðslu smita innan Landakots. Fræðslu og þjálf- un starfsmanna ásamt eftirliti með fylgni við sýkingavarnir virðist hafa verið ábótavant. Þá var einnig skort- ur á sýnatökum á Landakoti, bæði í hópsýkingunni og aðdraganda henn- ar, sem leiddi til þess að smit uppgötvuðust seinna en ella og dreifðust á aðrar stofnanir,“ segir í niðurstöðum rannsóknarinnar og jafnframt: „Atburðarásin bendir til þess að skort hafi á aðgerðastjórnun í upphafi hópsýk- ingarinnar. Gerð er grein fyrir úr- bótum sem Landspítalinn hefur þeg- ar gripið til og settar fram tillögur embættis landlæknis um frekari að- gerðir.“ Mikill fjöldi starfsfólks Landakots þurfti að hverfa frá á skömmum tíma vegna sóttkvíar og einangrunar. „Ekki er útilokað að ástandið skýrist að einhverju leyti af miklum fjölda nýs starfsfólks á deildunum og því að eðli starfsem- innar breyttist á skömmum tíma. Viðbragðsáætlanir gerðu ekki ráð fyrir þessari miklu útbreiðslu smits og brotthvarfi starfsmanna,“ segir í niðurstöðum rannsóknarinnar. „Upplausnarástand“ kom upp á Landakoti - Margir samverkandi þættir hafi valdið hópsýkingunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landakot 99 manns smituðust og minnst 13 létust. Um er að ræða alvarleg- asta atvik sem upp hefur komið í sögu heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.