Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 42
Ef fólk fer í hjarta-
stopp skiptir hver
sekúnda miklu máli og
ef fólk fær stuð áður en
það fer í sjúkrabíl aukast
lífslíkur frá 10% upp í
70%.
Mindray hjartastuð-
tækið býður upp á nettengt
eftirlitskerfi sem fylgist
með staðsetningu og stöðu
þess. Það er öruggt og ein-
falt í notkun og getur gefið
mikinn straum á stuttum
tíma, sem eykur lífslíkur
sjúklinga.
Hjartastuðtækið frá Mindray
er ný vara hér á landi sem hefur
slegið í gegn víða um heim, en
fyrirtækið hefur um langt skeið
verið meðal fremstu framleiðenda
lækningatækja í heiminum. Tækið
er einfalt og öruggt í notkun, gefur
nákvæmar leiðbeiningar, er búið
nettengdu öryggis- og eftirlitskerfi
og er öflugra og hraðvirkara en
mörg önnur tæki.
„Líftækni er fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í þjónustu og lausnum
á heilbrigðissviði með áherslu
á rannsóknavörur og líftækni-
vörur ásamt lækningatækjum og
við erum komin með þessi nýju
hjartastuðtæki, sem eru snjall-
ari en öll önnur á markaðnum,“
segir Hildur Einarsdóttir, sölu- og
markaðsstjóri lækningatækja.
„Þessi tæki eru frábær nýjung, en
þeim fylgir svokallað AED Alert-
kerfi sem starfsmenn Líftækni sjá
um að sinna.“
Einstakt eftirlitskerfi
„AED Alert kerfið er eftirlitskerfi
sem fylgist stöðugt með tækjunum
í gegnum 4G og lætur vita ef þau
eru notuð, þau færð úr stað eða
líftími rafhlöðunnar eða raf-
skauta er að renna út. Fyrir vikið
kemurðu aldrei að ónothæfu tæki
og þau týnast ekki ef þau eru færð
til,“ segir Hildur. „Í kerfinu eru líka
geymdar upplýsingar um notkun
tækisins á öruggan hátt, en þessar
upplýsingar geta verið mikilvægar
fyrir þá sem taka við sjúklingnum
að endurlífgun lokinni.
Þetta er alveg nýtt og alveg
frábær nýjung í þessum geira,“
segir Hildur. „Þetta býður líka upp
á ótrúlega möguleika. Þar sem öll
tækin gefa út nákvæma GPS-stað-
setningu væri hægt að kortleggja
staðsetningu allra hjartastuðtækja
á landinu, svo það sé alltaf hægt að
ganga að þeim vísum og vita um
leið með vissu að þau séu nothæf
þegar á þarf að halda. Ef neyðarkall
berst og öll tæki landsins eru skráð
í kerfið er auðvelt að vísa fólki á
næsta tæki.
Í Danmörku er fólk sem hefur
tekið að sér að vera hjartahlaup-
arar, sem þýðir að þau hlaupa til
og veita endurlífgun ef þörf er á
í þeirra nágrenni,“ segir Hildur.
„Með slíku kerfi og nákvæmum
gagnagrunni yfir öll hjartastuð-
tæki landsins væri án efa hægt að
bjarga enn fleiri mannslífum.“
Getur ekki valdið skaða
„Tækið inniheldur einnig svo-
kallaða Qshock-tækni sem getur
metið hvort sjúklingar þurfi yfir-
höfuð stuð og þá hversu sterkt. Það
eykur líkurnar á betra viðbragði
sjúklings og þar af leiðandi betri
útkomu endurlífgunar. Auk þess
þýðir það að tækið getur aldrei
valdið skaða og er svo öruggt að
börn og unglingar geta notað það,“
segir Hildur. „Ég hef trú á því að
ef við náum að kenna börnum á
tækin og kynna þau fyrir þeim þá
óttist þau tækin síður og þannig
getum við fjölgað aðilum sem hafa
þor í að nota tækin og bjargað fleiri
mannslífum.
Það er eðlilegt að hræðast
hjartastuðtæki, fólk óttast að
valda skaða eða fá sjálft rafstuð, en
Mindray-tækin eru ekki þannig og
það er mikilvægt að allir kunni að
nota þau og geti gripið til þeirra ef
þörf er á,“ segir Hildur. „Raunin er
nefnilega sú að ef fólk fer í hjarta-
Snjallt, öruggt og öflugt hjartastuðtæki
Hildur Einarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri lækningatækja hjá Líftækni, segir að nýju hjartastuðtækin frá Mindray
hafi marga kosti fram yfir eldri hjartastuðtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
stopp skiptir hver sekúnda miklu
máli og ef fólk fær stuð áður en það
fer í sjúkrabíl aukast lífslíkur frá
10% upp í 70%.“
Hraðvirkt og öflugt
„Mindray tækin hafa líka þann
kost að vera fljótari en önnur
tæki að hlaða sig og gefa stuð,“
útskýrir Hildur. „Það getur gefið
stuð eftir innan við 8 sekúndur,
en sum önnur tæki eru allt upp í
20 sekúndur að hlaða sig og þessar
sekúndur eru rosalega dýrmætar.
Svo getur tækið líka gefið allt að
360 BTe straum, sem er sá straum-
ur sem er mælt með af endurlífg-
unarráðum og hjartasamtökum,
en það er meiri straumur en mörg
önnur tæki bjóða upp á,“ segir
Hildur. „Það getur til dæmis verið
nauðsynlegt ef um stóra, vöðva-
mikla einstaklinga er að ræða.“
Gefur nákvæmar leiðbeiningar
„Hjartastuðtækið er sjálfvirkt og
talar við notandann á íslensku
eða ensku meðan á endurlífgun
stendur. Tækið inniheldur svo-
kallaða ResQNavi-tækni, sem
styður við og metur hæfni þess
sem notar tækið hverju sinni og
gefur leiðbeiningar eftir þörfum. Ef
það er hik á fólki fær það til dæmis
öðruvísi leiðbeiningar,“ útskýrir
Hildur. „Tækið er stöðugt að hvetja
viðkomandi áfram og gefur skýr
og góð fyrirmæli í gegnum litaskjá
tækisins. Fyrir vikið verður sá sem
er að veita endurlífgun öruggari í
framkvæmd aðgerðarinnar.
Það hafa orðið miklar og hraðar
framfarir í hjartastuðtækjatækni
á síðustu árum. Þessi tæki eru
margfalt öruggari og fullkomnari
en þau sem voru til staðar fyrir
aðeins fáeinum árum,“ segir
Hildur. „Draumurinn minn er
að þessi fullkomnu tæki séu til
staðar og sýnileg hjá öllum fyrir-
tækjum og stofnunum, rétt eins
og slökkviliðstæki. Fólk á að vita
hvar tækið er á þeirra vinnu-
stað eða í þeirra nærumhverfi og
nákvæmur gagnagrunnur yfir
staðsetningu þeirra allra gæti
reynst mjög dýrmætur.“ n
AED Alert eftirlitskerfið fylgist stöðugt með tækjunum.
Hjartastuðtækið frá Mindray hefur
slegið í gegn og er nýtt hér á landi.
Hjartastuðtæki ættu að vera aðgengileg og sýnileg.
Tækið talar við
notandann og
gefur skýrar og
góðar leiðbein-
ingar í gegnum
litaskjá.
4 30. október 2021 LAUGARDAGURVELFERÐ