Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 45
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskipta
markaði og gegnir hlutverki lands tengiliðs
í netöryggismálum. Er stofnuninni m.a.
ætlað það hlutverk að vinna gegn röskun
eða takmörkunum á samkeppni á fjarskipta
markaði. Stofnunin vinnur að framgangi
þessara verkefna m.a. á grundvelli markaðs og
kostnaðargreininga þar sem fram fer viðskipta
og hagfræði legt mat á markaðsaðstæðum í
fjarskiptum og undirliggjandi kostnaðarþáttum
í þjónustu og vöruframboði á heildsölustigi.
Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur
sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis.
Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn
fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verk
efnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli
vinnu og einkalífs.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Viðskiptafræðingur
Fjarskiptastofa leitar að öflugum viðskiptafræðingi til starfa á stjórnsýslusviði. Starfið varðar aðallega
kostnaðargreiningar á þjónustuþáttum í fjarskiptum og innviðum fjarskiptaneta. Markmið vinnunnar er
að móta og viðhalda samkeppni á fjarskiptamarkaði.
Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem viðkomandi viðskiptafræðingur mun í starfi sínu jafnframt
vinna náið með sérfræðingum á öðrum sviðum stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Rýni og samþykkt á kostnaðargreiningum og bókhaldslegum aðskilnaði.
• Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla.
• Miðlun viðskiptafræðilegrar og rekstrarlegrar þekkingar við rannsókn mála.
• Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum.
• Samskipti við hagaðila.
• Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegri menntun er skilyrði.
• Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga á texta- og tölulegu formi.
• Þekking á fyrirtækjarekstri er kostur.
• Gott læsi á tæknimálum er kostur.
• Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að leiða mál til lykta.
• Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna.
• Vilji og geta til að tileinka sér nýjungar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegri samvinnu.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og rituðu máli. Þekking á einu Norðurlandamáli kostur.
Um er að ræða 100% starfshlutfall og hvetur Fjarskiptastofa áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Öllum umsóknum verður svarað að
ráðningu lokinni. Fjarskiptastofa lítur
svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá
dag setningu hennar, nema umsækjandi
ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Vísindagarðar Háskóla Íslands er suðupottur
nýsköpunar sem leiðir framþróun og skapar
virðisauka fyrir land og þjóð. Vísindagarðar eru
frábrugðnir hefðbundnu fyrirtækjaumhverfi að
því leyti að í þeim er skapað samfélag háskóla,
þekkingarfyrirtækja og rannsóknarstofnana
sem leggja hvert öðru lið með sambúðinni og
mynda saman sterkt heildarumhverfi.
Markmiðið með Vísindagörðum er að gefa
öflugum fyrirtækjum og stofnunum kost á að
staðsetja sig í háskólaumhverfi þar sem sam
legðaráhrif atvinnulífs og rannsókna stofnana
njóta sín.
Vísindagarðar eiga að vera tengslatorg ný
sköpunar og frum kvöðla starfsemi, brú á milli
háskólasamfélags ins og atvinnulífsins og
stuðla þannig að aukinni verðmæta sköpun.
Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarna dóttir (audur@vinnvinn.is) og
Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is).
Hefur þú gaman að tengja saman fólk og hugmyndir?
Samskiptastjóri Vísindagarða
Vísindagarðar HÍ leita að öflugum aðila sem leiðir nýstofnað nýsköpunarsetur, Mýrina, ásamt því
að byggja upp tengslanet og leiða markaðs- og kynningarmál Vísindagarða og setursins. Um er að
ræða fjölbreytt verkefni í frjóu umhverfi. Viðkomandi er staðgengill framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Samskipti og tengslamyndun, viðburðarstjórnun og skipulag dagskrár.
• Umsjón með markaðs- og kynningarmálum Vísindagarða, þ.á.m. umsjón með vefsíðum og
stafrænum miðlum á vegum Vísindagarða og Mýrarinnar, nýsköpunarseturs Vísindagarða.
• Samskipti við „íbúa“ Mýrarinnar.
• Rekstur og umsjón Mýrarinnar.
• Umsjón með innkaupum og tæknimálum.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Farsæl og árangursrík reynsla af innri og ytri samskiptamálum.
• Góð þekking á markaðsmálum.
• Reynsla af verkefna- og breytingastjórnun er æskileg.
• Góð þekking og færni á nýtingu tækni.
• Framúrskarandi samvinnu- og samskiptafærni.
• Hæfni til að leiða hóp og skapa hvetjandi starfsumhverfi og jákvæða upplifun.
• Leiðtogafærni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og drifkraftur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.