Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 45

Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 45
Fjarskiptastofa er eftirlitsstofnun á fjarskipta­ markaði og gegnir hlutverki lands tengiliðs í netöryggismálum. Er stofnuninni m.a. ætlað það hlutverk að vinna gegn röskun eða takmörkunum á samkeppni á fjarskipta­ markaði. Stofnunin vinnur að framgangi þessara verkefna m.a. á grundvelli markaðs­ og kostnaðargreininga þar sem fram fer viðskipta­ og hagfræði legt mat á markaðsaðstæðum í fjarskiptum og undirliggjandi kostnaðarþáttum í þjónustu­ og vöruframboði á heildsölustigi. Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verk­ efnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is). Viðskiptafræðingur Fjarskiptastofa leitar að öflugum viðskiptafræðingi til starfa á stjórnsýslusviði. Starfið varðar aðallega kostnaðargreiningar á þjónustuþáttum í fjarskiptum og innviðum fjarskiptaneta. Markmið vinnunnar er að móta og viðhalda samkeppni á fjarskiptamarkaði. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem viðkomandi viðskiptafræðingur mun í starfi sínu jafnframt vinna náið með sérfræðingum á öðrum sviðum stofnunarinnar. Helstu verkefni og ábyrgð: • Rýni og samþykkt á kostnaðargreiningum og bókhaldslegum aðskilnaði. • Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla. • Miðlun viðskiptafræðilegrar og rekstrarlegrar þekkingar við rannsókn mála. • Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum. • Samskipti við hagaðila. • Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegri menntun er skilyrði. • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga á texta- og tölulegu formi. • Þekking á fyrirtækjarekstri er kostur. • Gott læsi á tæknimálum er kostur. • Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að leiða mál til lykta. • Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna. • Vilji og geta til að tileinka sér nýjungar. • Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegri samvinnu. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og rituðu máli. Þekking á einu Norðurlandamáli kostur. Um er að ræða 100% starfshlutfall og hvetur Fjarskiptastofa áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dag setningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Vísindagarðar Háskóla Íslands er suðupottur nýsköpunar sem leiðir framþróun og skapar virðisauka fyrir land og þjóð. Vísindagarðar eru frábrugðnir hefðbundnu fyrirtækjaumhverfi að því leyti að í þeim er skapað samfélag háskóla, þekkingarfyrirtækja og rannsóknarstofnana sem leggja hvert öðru lið með sambúðinni og mynda saman sterkt heildarumhverfi. Markmiðið með Vísindagörðum er að gefa öflugum fyrirtækjum og stofnunum kost á að staðsetja sig í háskólaumhverfi þar sem sam­ legðaráhrif atvinnulífs og rannsókna stofnana njóta sín. Vísindagarðar eiga að vera tengslatorg ný­ sköpunar og frum kvöðla starfsemi, brú á milli háskólasamfélags ins og atvinnulífsins og stuðla þannig að aukinni verðmæta sköpun. Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is). Hefur þú gaman að tengja saman fólk og hugmyndir? Samskiptastjóri Vísindagarða Vísindagarðar HÍ leita að öflugum aðila sem leiðir nýstofnað nýsköpunarsetur, Mýrina, ásamt því að byggja upp tengslanet og leiða markaðs- og kynningarmál Vísindagarða og setursins. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í frjóu umhverfi. Viðkomandi er staðgengill framkvæmdastjóra. Helstu verkefni og ábyrgð: • Samskipti og tengslamyndun, viðburðarstjórnun og skipulag dagskrár. • Umsjón með markaðs- og kynningarmálum Vísindagarða, þ.á.m. umsjón með vefsíðum og stafrænum miðlum á vegum Vísindagarða og Mýrarinnar, nýsköpunarseturs Vísindagarða. • Samskipti við „íbúa“ Mýrarinnar. • Rekstur og umsjón Mýrarinnar. • Umsjón með innkaupum og tæknimálum. • Önnur tilfallandi verkefni. Hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi. • Farsæl og árangursrík reynsla af innri og ytri samskiptamálum. • Góð þekking á markaðsmálum. • Reynsla af verkefna- og breytingastjórnun er æskileg. • Góð þekking og færni á nýtingu tækni. • Framúrskarandi samvinnu- og samskiptafærni. • Hæfni til að leiða hóp og skapa hvetjandi starfsumhverfi og jákvæða upplifun. • Leiðtogafærni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og drifkraftur. • Góð íslensku- og enskukunnátta. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.