Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 106
kvæmt, skipað í fremstu víglínu
gengisins þegar að tökum kom
og hann látinn fá einhverjar setn-
ingar. Þannig bauð hann til dæmis
dömum úr genginu bjór á dönsku í
síðasta þætti.
„Ég hef gaman af þessu og hef í
gegnum tíðina stundum verið í ein-
hverjum myndum og bara small inn
í þetta þannig að þeir bara notuðu
mig í alls konar. Ég held meira að
segja að ég sjáist eitthvað meira
og segi f leiri og setningar í næstu
þáttum. Þannig að þetta var bara
ógeðslega gaman og skemmtilegt
að vera á hjólum á þessum fallegu
stöðum, Siglufirði og Seyðisfirði.
Leika sér og fá góðan pening. Af því
að ég fékk setningu þá fær maður
betri pening,“ segir Atli og hlær.
Danski stórleikarinn Thomas
Bo Larsen, sem hefur gert garðinn
frægan í myndum á borð við Jagten
og Druk leikur Danish Hopper,
leiðtoga dönsku djöflanna, og Atli
segir það ekki hafa spillt ánægjunni
hversu vel þeir tveir náðu strax
saman.
Í stuði með Larsen
„Þegar ég kem á settið hitti ég
Thom as Bo Larsen. Þennan danska
stórleikara og ég fer að æfa mig á
gömlu dönskunni minni og það
gengur bara svona ljómandi vel,“
segir Atli. „Við erum bara að spjalla
yfir kaffibolla eins og menn gera
á vinnustað og þá kemur í ljós að
hann er líka edrú og við þekktum
báðir sömu gömlu Köben, nöfn og
staði. Okkur fannst það geggjað og
við smullum saman og erum bara
góðir vinir og ennþá í sambandi.“
Þá eiga þeir einnig mótorhjóla-
delluna sameiginlega. „Hann er
alvöru „biker“ og safnar Indian-
mótorhjólum sem er annað gamalt
amerískt merki,“ segir Atli en Indian
var stofnað 1901 og Harley David-
son 1903. „Hann var stundum að
stríða mér og djóka með af hverju
ég væri á svona nýmóðins,“ segir
Atli og hlær.
„Ég er á leiðinni út, bara við fyrsta
Covid-tækifæri, í heimsókn til hans
og hann ætlar að lána mér hjól
og við ætlum að taka túr saman á
Indian. Þannig að hann var líka svo-
lítið svona ekta og þurfti líka bara
að fara í gamlan karakter og hafði
mjög gaman af þessu.“
Gamli fiðringurinn
Þar sem Atli hefur reynslu af því
að hjóla í vafasömum félagsskap er
óhjákvæmilegt að spyrja hvort um
hann hafi farið gamall Vítisengla-
fiðringur við tökurnar á Ófærð.
„Þetta er sérstök tilfinning og
hún kom alveg fullkomlega þarna
við þessar tökur. Þarna vorum
við margir að hjóla þétt saman og
vorum í karakter. Allir merktir
genginu og margir okkar hafa verið
og eru í alls konar klúbbum þannig
að þetta var bara ofboðslega gaman,
gefandi og skemmtilegt.“ n
Þetta var ævintýri og
var svo auðvelt fyrir
mig enda þurfti ég í
rauninni bara að vera
ég sjálfur. Eða svona
gamalt alter egó eða
eitthvað.
Atli Bergmann þurfti ekki
annað en að skella sér í gamla
leðurgallann til þess að
komast í karakter fyrir Ófærð
3 þar sem hann fer mikinn á
Harley Davidson hjólinu sínu
í fylkingarbrjósti skuggalegs
mótorhjólagengis sem gerir
usla í smábæ norður í landi
undir stjórn danska stór-
leikarans Thomas Bo Larsen.
toti@frettabladid.is
Atli Bergmann er meðal fjölda
aukaleikara sem fylla ógnvekjandi
danskt mótorhjólagengi í þriðju
seríu Ófærðar þar sem slíkur völlur
er á honum að hann fer vart fram
hjá neinum enda á ferðinni alvöru
„biker“ á sérlega glæsilegum Harley
Davidson.
„Þetta var ævintýri og var svo
auðvelt fyrir mig enda þurfti ég í
rauninni bara að vera ég sjálfur.
Eða svona gamalt alter egó eða
eitthvað,“ segir Atli sem svaraði
umsvifalaust kallinu þegar auglýst
var eftir mótorhjólastatistum fyrir
þættina.
„Ég var bara til enda nýbúinn að
fjárfesta í þessum eðalfák mínum.
Þetta er rosa fallegt hjól,“ segir Atli
um Harley Davidson hjólið sem
er af gerðinni Softail Springer. „Og
Springer er mikilvægt atriði vegna
þess að Harley Davidson varð 100
ára 2003 og þá gerðu þeir svona
„special edition“ afmælisútgáfu með
svona gormaframgaffli eins og var
notaður 1948. Þannig að lúkkið og
bara allt er geggjað. Þetta er stolt
mitt og yndi og bara geggjað hjól.“
Hjólaði með Vítisenglum
Atli smellpassar í hlutverkið enda
er fortíð hans þannig að þeir verða
varla jafn þvottekta mótorhjóla-
töffararnir. „Ég er Snigill númer 60
og náttúrlega búinn að vera Snigill
frá upphafi. Ég er mikill „biker“ og
hef hjólað um allan heiminn. Og for-
saga mín er náttúrlega mótorhjól,
rokk og ról, Hells Angels og allt það
stríð. Kristjanía og allur pakkinn
sko,“ segir Atli sem hjólaði á árum
áður í slagtogi með hinum alræmdu
Vítisenglum.
Hann mætti því fullskapaður í
Ófærðina og ekki þurfti leikmuna-
deildin að hafa mikið fyrir honum.
„Ég á ennþá gamla mótorhjólagall-
ann, leðurbuxurnar og jakkann frá
því í gamla daga og get stoltur sagt
frá því að ég kemst ennþá í þetta og
nota. Þetta er alvöru. Þykk nautshúð
og allt það,“ segir Atli og bætir við
að það hafi verið svolítill brandari
þegar hann mætti í leikaravalið.
„Þegar við mættum, strákarnir,
á hjólunum tók ég eftir því að það
var talað um að sá sem var á undan
mér ætti að fá feik tattú á hálsinn og
eitthvað þannig. Svo kom ég og það
var bara horft og gefinn þumall upp:
Næsti!“
Smellpassaði í gengið
Atla var síðan, eðli málsins sam-
Atli Bergmann ýfir gamlar
vítisengilsfjaðrir í Ófærð
Þegar fylla
þurfti mótor-
hjólagengi
Ófærðar 3 stökk
Atli Bergmann
fram fullskap-
aður á Harley-
inum sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Þar sem Thomas Bo og Atli koma saman er sannkallað leðravíti. MYND/AÐSEND
Bækur
Tvenna frá Rowling
Nýjasta bók J.K.
Rowling, Jóla-
svínið, er komin
út á íslensku.
Þetta er hugljúft
ævintýri sem
getur ekki annað
en glatt hina fjöl-
mörgu aðdáendur þessa snjalla
rithöfundar. Í sögunni vakna
hlutir, þar á meðal, leikföng, til lífs
með eftirminnilegum hætti.
Svo er það Harry Potter og
fanginn frá Azkaban en glæsileg
útgáfa þessarar þriðju bókar um
Harry Potter er komin út. Hún er
í stóru broti og gríðarlega fallega
myndskreytt af Jim Kay. Báðar
hinar bestu bækur.
Bíó
The Night House
Á meðan við-
bætur í rótgrónar
hrollvekju-
seríur á borð við
Halloween og
Candyman ollu
gríðarlegum von-
brigðum á árinu
kom The Night
House hryllings-
myndaaðdáendum skemmtilega
á óvart. Hún hefur að vísu ekki
farið hátt og er á endasprettinum
í Bíó Paradís.
Hér segir af harmþrunginni
ekkju sem leitar svara eftir undar-
legt sjálfsvíg eiginmannsins. Re-
becca Hall á stjörnuleik í þessum
svakalega trylli sem forðast að
nota algengar brellur úr drauga-
húsunum til að hrella áhorfendur.
Sjónvarp
Missir
Missir er sex þátta röð í Sjónvarpi
Símans þar sem fólk sem hefur
misst börn, maka, foreldra eða
systkini segir frá því hvernig þau
unnu úr þessum þungu áföllum
og sorg. Freyr Eyjólfsson, spyrill
og handritshöfundur, og Reynir
Lyngdal leikstjóri nálgast við-
kvæmt viðfangsefnið af alúð og
nærgætni þannig að þættirnir
hitta beint í hjartastað og harðar
mega þær sálir vera sem komast í
gegnum þær sögur sem viðmæl-
endur þeirra deila af djúpri visku
og miklu hugrekki. Mannbætandi
og hugvekjandi þættir sem taka
virkilega á.
n Allra best
KVIKMYNDIR
Leynilögga
Leikstjórn: Hannes Þór
Halldórsson
Handrit: Auðunn Blöndal,
Egill Einarsson, Hannes Þór
Halldórsson
Aðalhlutverk: Auðunn Blöndal,
Egill Einarsson, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur
Haraldsson, Sverrir Þór Sverrisson
Þórarinn Þórarinsson
Leikstjórinn og þjóðhetjan Hannes
Þór Halldórsson og liðið sem hann
stýrir í Leynilöggu virðist heldur
betur hafa hitt í mark og fólk hefur-
hrúgast á myndina frá frumsýningu.
Þessi mikli áhugi kann að koma
einhverjum á óvart enda auðvelt að
hrapa að þeirri ályktun að bíómynd
byggð á tíu ára gömlu flippi Sveppa
og Audda myndi enda eins og langt
og dýrt árshátíðarmyndband FM
957.
Útkoman er hins vegar allt annað
og meira þótt myndin sé vissulega
krydduð ákveðnum lókalhúmor.
Annars er Leynilögga nákvæm-
lega það sem hún gefur sig út fyrir
að vera þannig að fólk ætti að hafa
góða hugmynd um að hverju það
gengur.
Auðunn Blöndal leikur aðal-
persónuna, Bússa, bestu lögguna
í Reykjavík og holdgerving allra
löggu klisjanna frá Hollywood
undir sterkustu áhrifunum frá
Bruce Willis í The Last Boy Scout.
Leynilögga snýr þó aðeins upp
á harðhausaklisjuna með stóra
brandaranum sem hverfist um að
Bússi engist í skápnum og breiðir
yfir ótta sinn við kynhneigðina með
töffarastælunum. Stórar sprungur
koma síðan í harðan skrápinn eftir
samstuð við klárustu og f lottustu
lögguna í Garðabæ. Hinn pankyn-
hneigða Hörð Bess, sem Egill Einars-
son leikur.
Endalaust má vitaskuld velta
sér upp úr því hvort stóra írónían
í myndinni lendi ekki í innbyrðis
mótsögn við sjálfa sig þegar Hörður
bendir Bússa á að árið er 2021 og það
sé enginn að pæla í kynhneigð hans.
Hasarinn, grínið og fjörið yfir-
gnæfir að vísu slíkar pælingar enda
hvergi dauðan punkt að finna í
myndinni sem er alveg á pari og vel
það við margan fokdýran Holly-
wood-hasarinn.
Myndin gengur síðan alveg upp
þar sem öll sem að henni koma eru
bersýnlega meðvituð um að þau
eru að busla í kröftugri klysjusúpu.
Hér glotta allir út í annað og verða
yfirleitt betri eftir því sem hert er á
ofleiknum, eins og nánar er vikið að
á Fréttablaðið.is í dag. n
NIÐURSTAÐA: Strákarnir
skemmta sér svaka vel í byssó
eins og greinilega allir aðrir í
partíinu sem heldur svo góðum
dampi í hasar og djóki að þver-
sagnakenndar tilraunir með íróníu
týnast í dekkjareyk og kúlnahríð.
Strákarnir skemmta sér og öðrum í löggu og bófa
62 Lífið 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ