Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 52
Forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar Íslands
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands.
Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) er þjónustu- og umsýslustofnun sem hefur það hlutverk að treysta stoðir íslensks samfélags
með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu.
Rannís heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneyti og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarann-
sóknir, nr. 3/2003. Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar, er í fyrirsvari fyrir hana út á við og ber ábyrgð á rekstri
hennar og að starfsemi hennar sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Jafnframt annast forstöðumaður ráðningu annarra
starfsmanna stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf á meistarastigi í sem nýtist í starfi áskilin, doktorspróf æskilegt.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsumhverfi rannsókna og nýsköpunar á innlendum og erlendum vettvangi.
• Þekking og reynsla af opinberum fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Reynsla af alþjóðasamstarfi nauðsynleg.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Afburða samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
• Reynsla af stefnumótun, stjórnun rannsókna og/eða nýsköpunarverkefna æskileg.
• Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi stofnunarinnar og hæfileiki til nýsköpunar í starfi.
• Gerð er krafa um afburða ritfærni og góða tjáningu í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
Kunnátta í þýsku eða frönsku er kostur.
Leitað er að kraftmiklum og hugmyndaríkum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og náð hefur árangri í stjórnun og rekstri.
Viðkomandi geti sýnt með frumkvæði til að leiða Rannís áfram í alþjóðlegu og síbreytilegu umhverfi.
Boðið er upp á krefjandi starf í frjóu starfsumhverfi skipuðu öflugum sérfræðingum á sviði vísinda- og tæknimála. Starfið felur í sér
náið samstarf við ráðuneyti og starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs, sem og stofnanir og stjórnvöld á alþjóðavettvangi.
Ráðning og kjör
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar forstöðumann Rannís til fimm ára frá 1. apríl 2021. Um laun forstöðumanns fer eftir
39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Umsóknir
Umsókn skal skila rafrænt á Starfatorgi eða berast mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík fyrir dags-
lok 30. nóvember 2021. Með umsókn skal fylgja: 1) ítarleg starfsferilskrá með upplýsingum um núverandi starf umsækjanda ásamt
ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, 2) kynningarbréf þar sem fram kemur með hvaða hætti umsækjandi uppfyllir
hæfniskröfur samkvæmt starfsauglýsingu og 3) greinargerð um framtíðarsýn fyrir Rannsóknamiðstöð Íslands út frá faglegum og
rekstrarlegum áherslum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Vilberg Guðjónsson, í gegnum netfangið jon.vilberg.gudjonsson@mrn.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Við skipun í embætti hjá mennta- og
menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.
Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar
ekki teknar til greina.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2021.
Rannís styður þekk-
ingarsamfélagið með
rekstri samkeppnis-
sjóða á sviði innviða,
rannsókna og nýsköp-
unar, auk markáætlun-
ar stjórnvalda á sviði
vísinda og tækni.
Rannís fer með um-
sýslu helstu sjóða á
sviði menntunar og
menningar á Íslandi,
auk samstarfsáætlana
ESB og norrænna
áætlana sem veita
styrki til samstarfs-
verkefna, náms og
þjálfunar Rannís veitir
aðstoð og fer með
kynningu á alþjóðleg-
um sóknarfærum og
samstarfsmöguleikum,
ásamt því að greina og
kynna áhrif rannsókna,
menntunar og menn-
ingar á þjóðarhag.
Þá veitir Rannís
faglega aðstoð og
þjónustu við undir-
búning og framkvæmd
vísinda- og tækni-
stefnu Vísinda- og
tækniráðs.
Hjá Rannís starfa 54
starfsmenn á fjórum
sviðum stofnunar-
innar.
hagvangur.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 30. október 2021 LAUGARDAGUR