Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 51
Líf og sál vantar liðsauka
Við hjá Lífi og sál erum þéttur hópur sálfræðinga og sáttamiðlara og vinnum fyrir einstaklinga, starfshópa og stjórnendur.
Líf og sál hefur verið starfrækt í rúm tuttugu ár og býr því yfir mikilli reynslu á vettvangi meðferðar sem og vinnusálfræði.
Nú leitum við að sálfræðingi í teymið okkar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 15.nóvember 2021.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsókn berist til Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðings og framkvæmdastjóra Lífs og sálar, thorkatla@lifogsal.is.
Sjá nánar um Líf og sál á www.lifogsal.is.
Starfssvið
• Meðferðarvinna fullorðinna.
• Handleiðsla og ráðgjöf til fagfólks og stjórnenda.
• Úttektir vegna sálfélagslegra áhættuþátta á vinnustöðum.
• Fræðsla í formi fyrirlestra og námskeiða.
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði meðferðar og vinnusálfræði.
Hæfniskröfur
• Löggilding til starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
• Klínísk reynsla æskileg.
• Reynsla af verkefnum á sviði vinnusálfræði æskileg.
• Framúrskarandi samskiptafærni.
• Áhugi á teymisvinnu.
• Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur.
• Ögun í vinnubrögðum og sveigjanleiki.
• Góð íslenskukunnátta og kunnátta í erlendum tungumálum
í töluðu og rituðu máli.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við leitum að reynslumiklum sérfræðingi með ríka öryggisvitund til að takast á við spennandi
verkefni á sviði upplýsingatækni í samhentu UT-teymi okkar.
Upplýsingatækni gegnir veigamiklu hlutverki í allri starfsemi Landsnets og felur starfið í sér ábyrgð
á rekstri allra grunninnviða auk tæknilegra öryggismála. Flutningskerfi raforku á Íslandi treystir á
uppitíma og rekstraröryggi tölvukerfanna og því er um kreandi og ábyrgðarmikið starf að ræða.
Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2021. Sótt er um starfið á landsnet.is.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild á mannaudur@landsnet.is.
Hæfniskröfur
• Umfangsmikil reynsla af rekstri mikilvægra
innviða í stærri fyrirtækjum
• Góð þekking á uppsetningu og rekstri:
- sýndarumhverfa og skýjalausna
- stýrikerfa netþjóna (Windows/Linux) og SQL-innviða
- eldveggja, afritunarlausna og eftirlitskerfa
• Góð þekking á net- og upplýsingaöryggi
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón með daglegum rekstri
upplýsingatæknikerfa Landsnets
• Eftirlit með aöstum og rekstraröryggi upplýsingakerfa
• Þátttaka í innleiðingum og úrbótaverkefnum
• Samskipti við þjónustuaðila Landsnets
á sviði upplýsingatæknimála
Ert þú sérfræðingur
í rekstri upplýsinga-
tæknikerfa?
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is