Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 53
Tryggingastofnun
Hlíðasmára 11 | 201 Kópavogur
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is
Nánari upplýsingar um störfin veita: Herdís Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri réttindasviðs í síma 560 4400
og Hólmfríður Erla Finnsdóttir, mannauðsstjóri í síma 560 4400.
Umsóknarfrestur um störfin er til og með 8. nóvember 2021.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á starfatorg.is
VILTU STARFA Í FAGTEYMI TR
UM HEILSU- OG FÆRNIMAT?
Hefur þú brennandi áhuga á heilbrigðis- og velferðarmálum og langar að starfa í fagteymi á sviði heilsu- og færnimats einstaklinga?
– þá ættu störfin hér að neðan að höfða til þín. Um er að ræða spennandi störf í þverfaglegu teymi heilbrigðisstarfsfólks og annarra
sérfræðinga sem starfa í framúrskarandi starfsumhverfi á réttindasviði Tryggingastofnunar.
Við hjá TR leggjum áherslu á góðan starfsanda, sveigjanlegan vinnutíma, samvinnu og jafnræði.
Laus er til umsóknar starf fagstjóra sérfræðilækna hjá Tryggingastofnun.
Leitað er eftir framsæknum einstaklingi sem þarf að búa yfir miklum
áhuga á endurhæfingu og úrræðum tengd örorku. Starfið byggir á
öflugri teymisvinnu þar sem fagstjóri mun verkstýra öflugum hópi
sérfræðilækna.
Starfið veitist frá 1. janúar 2022 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 50-80%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Læknisfræðilegt mat á umsóknum um örorku lífeyristrygginga.
- Ráðgjafi við læknisfræðileg mál svo sem við mat á umsóknum um
endurhæfingarlífeyri, bifreiðastyrk og umönnunarmat.
- Annað það er kemur að læknisfræðilegu mati varðandi
almannatryggingar.
- Fagleg uppbygging, þróun og skipulag á læknisfræðilegri ráðgjöf.
- Stjórnun teymisvinnu.
Hæfnikröfur
- Leitað er að sérfræðilækni með víðtæka reynslu á sviði bæklunar-
lækninga, endurhæfingarlækninga, geðlækninga, heimilislækninga,
lyflækninga eða öðrum sérfræðigreinum sem nýtast í starfi við mat
á sviði bótaréttar og endurhæfingar.
- Víðtæk læknisfræðileg starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla og færni í verkefnastjórnun.
- Reynsla af stjórnsýslu er kostur.
- Þekking á flokkunarkerfum og matskvörðum í heilbrigðisþjónustu.
- Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
- Leiðtogahæfileikar, faglegur metnaður og framúrskarandi
samskiptahæfni.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Íslenskt sérfræðileyfi sem nýtist í starf á sviði bótaréttar og
endurhæfingar.
Um er að ræða spennandi og krefjandi sérfræðistarf í matshópi sem
ber m.a. ábyrgð á úrvinnslu umsókna um foreldragreiðslur og greiðslur
til umönnunaraðila fatlaðra og langveikra barna. Starfið byggir á
frumkvæði og þéttu faglegu samstarfi í breiðum hópi sérfræðinga.
Starfið veitist frá 1. desember 2021 og æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat, greining og úrvinnsla umsókna um umönnunar- og
foreldragreiðslur vegna fatlaðra og langveikra barna.
- Samvinna í teymi fyrir mat endurhæfingar og örorkumála.
- Ráðgjöf, þjónusta og upplýsingamiðlun til viðskiptavina og
samstarfsaðila.
- Þróun vinnuferla og rafrænnar þjónustu.
- Skráning og meðhöndlun tölfræðiupplýsinga.
- Önnur sérhæfð verkefni.
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. sálfræði,
þroskaþjálfun, hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun eða félagsráðgjafa.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Krafa um klíníska reynslu á sviði velferðar- eða heilbrigðisþjónustu.
- Þekking og reynsla af þjónustu við fötluð og langaveik börn og
fjölskyldur þeirra.
- Þekking á flokkunarkerfum og matskvörðum í velferðar- og
heilbrigðisþjónustu.
- Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
- Mjög gott vald á rituðu íslensku máli.
- Mjög góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði.
Um er að ræða spennandi og krefjandi sérfræðistarf í matshópi á sviði
endurhæfingar og lífeyrismála. Starfið byggir á frumkvæði og miklu og
þéttu samstarfi í breiðum hópi sérfræðinga.
Starfið veitist frá 1. desember 2021 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall 80-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat, greining og úrvinnsla umsókna um endurhæfingarlífeyri.
- Samvinna í teymi fyrir mat á örorku, endurhæfingu og
umönnunarþörf barna og aldraðra.
- Ráðgjöf, þjónusta og upplýsingamiðlun til viðskiptavina og
samstarfsaðila.
- Þróun vinnuferla og rafrænnar þjónustu.
- Skráning og meðhöndlun tölfræðiupplýsinga.
- Önnur sérhæfð verkefni.
Hæfnikröfur
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðis eða félagsvísanda, s.s.
hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun eða félagsráðgjafa.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Krafa um klíníska reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu, t.d. á sviði
endurhæfingar, geðverndar, heilsugæslu eða sjúkarahúsþjónustu.
- Þekking á flokkunarkerfum og matskvörðum í velferðar- og
heilbrigðisþjónustu.
- Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna.
- Mjög gott vald á rituðu íslensku máli.
- Mjög góð samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði.
Sérfræðingur á sviði heilsu- og færnimats með áherslu á endurhæfingu
Sérfræðingur á sviði heilsu- og færnimats með áherslu á umönnun fatlaðra og langveikra barna
Fagstjóri sérfræðilækna hjá Tryggingastofnun