Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 60

Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 60
Sveinspróf í rafiðngreinum Sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun fara fram í febrúar 2022 ef næg þátttaka fæst Umsóknarfrestur er frá 1. - 30. nóvember 2021 Með umsókn skal fylgja: - Útskriftarskírteini eða staðfesting á útskrift - Greiðsluyfirlit frá lífeyrissjóði á starfstíma - Umsóknareyðublað meistara/fyrirtækis um sveinspróf fyrir nema á námssamning Umsækjendur sækja eingöngu um rafrænt á heimasíðu RAFMENNTAR Stórhöfði 27 - 110 Reykjavík - sími 5400160 - Rafmennt.is kopavogur.is Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi. Smárahvammsvegur. Tillaga að deiliskipulagi. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 26. október 2021 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulags- laga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Smárahvammsvegar. Deiliskipulagið tekur til Smárahvammsvegar frá og með gatnamótun við Fífuhvammsveg að gatnamótum Arnar- nesvegar. Í tillögunni er akreinum fækkað svo Smárahvammsvegur verður ein akrein í hvora átt, almennt 3,5m breið og aðskildar með 5m breiðri miðeyju. Gatnamót Smárahvammsvegar—Fífu- hvammsvegar og Smárahvammsvegar-Gullsmára/Silfursmára verða umferðarljósastýrð. Vinstri beygjur verða leyfðar á öllum gatnamótum um op í miðeyju. Götur verða aðskildar grænum svæðum og eyjum með steyptum kanti. Göngustígar verða beggja vegna ganta og gönguþver- anir verða við öll gatnamót í plani við gatnamót um hellulagða upphækkun í götu. Hjólastígur verður samhliða gangstíg vestan Smárahvammsvegar, í einstefnu upp í átt að Nónhæð. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringaruppdrætti dags. 15. október 2021. Nánar er vísað til kynningargagna. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is. Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 milli kl. 17 og 18 verður starfsfólk skipulagsdeildar með opið hús að Digranesvegi 1 þar sem tillagan verður sérstaklega kynnt þeim sem þess óska. Áhugasamir eru beðnir að skrá komu sína með tölvupósti á netfangið skipulag@kopavogur.is fyrir 10. nóvember nk. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn 14. desember 2021. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. Skipulagsauglýsing Samkvæmt 1. mgr 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingu á eftirfarandi deiliskipulagi: Deiliskipulag fyrir iðnaðar- og hesthúsa- svæði við Járnhól á Bíldudal. Breytingin snýr að stækkun svæðisins niður að Bíldudals- vegi þar sem bætt er við átta lóðum. Einnig eru gerðar breytingar á lóðum 10-16 þar sem þær eru stækkaðar og bætt er við aðkomuvegi að lóð 14. Samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér aug- lýst skipulagslýsing fyrir Hól, deiliskipulag íbúðabyggðar og íþróttasvæðis. Skipulagssvæðið er alls 5,2 ha og er gert ráð fyrir allt að 60 íbúðum með blönduðum húsagerðum. Lágreist byggð rað-, par- og einbýlishúsa með aðkomu frá Bíldudalsvegi. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðal- stræti 75, frá og með 1. nóvember til 13. desember 2021 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, www. vesturbyggd.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 13. desember 2021. Opið hús verður um tillögurnar og verður það haldið á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 2. nóvember frá kl. 14:00-17:00. Allir áhugasamir eru hvattir til þess að mæta og kynna sér lýsinguna og breytingartillöguna. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Virðingarfyllst, Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota árið 2022. Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk (Fræðimannsíbúð). Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 2. nóvember nk. Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2022 Þarftu að ráða? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.