Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 63
Glæsileg og afar rúmgóð 157,8 m2 lúxusíbúð á jarðhæð ásamt bílastæði í
bílakjallara við Efstaleiti 12. Rúmgóð hellulögð verönd er út frá sólstofu
sem snýr til suðvesturs og vesturs. Íbúðin er í einu eftirsóttasta fjölbýli
landsins í nágrenni við Kringluna. Einstaklega falleg sameign með lyftu,
útisundlaug, heitum pottum, gufubaði, líkamsræktarsal, samkomusal,
bar, setustofu og tómstundarrýmum með snóker og pool borði. Mjög
snyrtilegt húsnæði í alla staði. Húsvörður er búsettur í íbúð í eigu
húsfélagsins og hefur hann umsjón með fasteigninni og veitir íbúum
aðstoð.
LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN
EFSTALEITI 12 - GLÆSILEG OG RÚMGÓÐ LÚXUSÍBÚÐ
Ingunn Björg
Sigurjónsdóttir
Löggiltur Fasteignasali
ingunn@domusnova.is
Sími: 856 3566Opið hús laugardaginn
30. október frá kl. 14-14:30
Vetrarmýri
miðsvæði
Íslandsbanki, fyrir hönd Garðabæjar, auglýsir til sölu
byggingarrétt fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á
fimm aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í
Garðabæ. Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan
13:00 þriðjudaginn 30. nóvember 2021.
Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn á vefsíðu
Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í gegnum vefslóðina
www.islandsbanki.is/vetrarmyri. Öllum fyrirspurnum skal beint
í gegnum netfangið vetrarmyri@islandsbanki.is og kauptilboðum
skal skila í lokuðu umslagi til móttöku Íslandsbanka (9. hæð),
Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan ofangreinds tilboðsfrests.
Tilboð verða opnuð kl. 13:30 sama dag á skrifstofu Íslandsbanka,
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Vetrarmýri er 20 hektara byggingaland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem
markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaða-
vegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs.Áætluð heildarstærð byggðar
í Vetrarmýri er um 66.000 fermetra af fjölbýli og 36.000 fermetra af
atvinnuhúsnæði með 664 íbúðum að hámarki. Í þessum fyrsta áfanga
eru boðnir út u.þ.b. 26.000 fermetrar af fjölbýli og 26.000 fermetrar af
atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum auk möguleika fyrir bjóðendur í
atvinnuhúsnæði að bjóða í bílastæðahús við Reykjanesbraut.
Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á
Vífilstaðalandi. Við gerð deiliskipulagsins var horft til góðra tenginga við
stofnbrautina Reykjanesbraut, almenningssamgöngur og göngu- og
hjólastíga og nálægar við útivistarperlur höfuðborgarsvæðisins. Auk þess
er aðgengi að nálægri samfélagsþjónustu eins og skólum, leikskólum,
íþróttamannvirkjum, golfvelli o.fl. mjög gott. Frekari upplýsingar um
deiliskipulag og uppbyggingu svæðisins má nálgast á vef Garðabæjar.
Erum við
að leita að þér?
FASTEIGNIR 21LAUGARDAGUR 30. október 2021