Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 75

Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 75
Fyrsta með- ferð er að meðhöndla augun með heitum OcuSci augn- maska og hreinsa eftir á með bakteríudrepandi blautklútum eða froðu frá OCuSOFT. Augnsjúkdóma er mikilvægt að meðhöndla rétt. Augn- maski og hreinsiklútar gera gæfumuninn gegn hvarma- bólgu og gervitár virka vel gegn augnþurrki. Rann- sóknir sýna að augnvítamín geta hægt mjög á augn- botnahrörnun. Meðferð með OcuSci augnmaska og OCuSOFT froðu/hreinsiklútum er áhrifarík við hvarmabólgu, VIS- MED gervitár/-hlaup virka vel við augnþurrki og ULTRA MACULAR™ augnvítamín byggir á nýjustu NIH (National Institute of Health, USA) rannsókn á þessu sviði, AREDS 2, sem sýndi fram á að samsetning andoxunarefna og fjölvítamína í ULTRA MACULAR™ minnki líkur um allt að 25% á að augnbotna- hrörnun þróist yfir á lokastig. Hvarmabólga Hvarmabólga er líklega algengasti augnsjúkdómurinn á Íslandi. Erfitt er að meta hlutfall fólks með hvarmabólgu, þar sem sjúkdómur- inn veldur oft vægum einkennum. Á hinn bóginn getur hann valdið einkennum sem eru afar óþægileg og hafa mikil áhrif á daglegt líf. Hildur Sigursteinsdóttir, markaðsstjóri heildverslunarinnar MAGNUS ehf., segir lítið vitað um ástæður sjúkdómsins, en að talið sé að um ofnæmi fyrir bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum sé að ræða. Hvarma- bólga getur meðal annars valdið augnloksþrymlum (chalazion) sem í börnum kemur oft fram sem vogris (stye). Hvort tveggja eru stíflaðir fitukirtlar sem blása út og valda oft miklum óþægindum. „Meðferð við hvarmabólgu er oftast ekki flókin en hún krefst töluverðrar natni og reglusemi. Fyrsta meðferð og oft sú sem ber mestan árangur er að með- höndla augun með heitum OcuSci augnmaska og hreinsa eftir á með bakteríudrepandi blaut klútum eða froðu frá OCuSOFT. Við slæmri hvarmabólgu má nota OUST Demodex froðu/blautklúta, sem innihalda terunnaolíu, en sé hún ekki eins alvarleg er mælt með Lid Scrub PLUS blautklútum eða Platinum froðu frá OCuSOFT. Beita þarf meðferðinni að minnsta kosti einu sinni á dag,“ segir Hildur. „Slík meðferð er yfirleitt áhrifa- rík sé henni beitt rétt. En það þarf þolinmæði því árangurinn kemur ekki fyrr en eftir tvær til þrjár vikur.“ Einkenni hvarmabólgu: n Stíflaðir fitukirtlar í augnlokum n Sviði, „súrnar í augum“ n Flasa í augnhárum og stírur n Óskýr sjón n Aðskotahlutartilfinning, pirr- ingur n Smá kláði n Roði í hvörmum og augum n Óþægindi í augum eftir tölvu- vinnu, sjónvarpsáhorf eða lestur n Bjúgur á hvörmum Oft er erfitt að greina á milli einkenna hvarmabólgu og þurra augna en sviði er meira áberandi í hvarmabólgu en aðskotahlutartilfinning í þurrum augum. Hildur segir að það beri að leggja áherslu á að þurr augu og hvarmabólga fylgjast oft að og þarf því oft að meðhöndla hvort tveggja. „Hvarmabólga er yfirleitt fremur góðkynja sjúkdómur en getur þó í undantekningartilvikum valdið augnskaða og jafnvel varanlegu sjóntapi. Í þeim tilvikum verður erting frá hvörmum svo mikil á auganu að slímhimna augans vex inn á hornhimnu, eða að horn- himna augans þynnist og skemm- ist,“ útskýrir hún. „Þar sem ofnæmi kemur inn í til- urð sjúkdómsins á einhverju stigi, sennilega gegn bakteríum sem við erum öll með á hvörmunum, er gagnslítið að bera sýklalyf á þá. Þessar bakteríur eru alls staðar í umhverfi okkar og setjast aftur á hvarmana þegar notkun sýklalyfs- ins lýkur. Flestar gerðir hvarma- bólgu eru því ekki vegna sýkingar og hvarmabólga er því jafnan ekki smitandi.“ Sum lyf geta stuðlað að hvarma- bólgu, svo sem sum krabbameins- lyf og húðþrymlalyfið Roaccutane. Hvarmabólga er einnig afar algeng hjá fólki með ýmsa húðsjúkdóma, svo sem flösuexem og rósroða. Þurr augu algengt vandamál Þurr augu eru afar algengt vandamál. Hildur segir líklegt að um 15.000 Íslendingar þjáist af þurrum augum. „Þurr augu eru sjúkdómur þar sem augun framleiða ekki nægi- lega mikið af tárum eða tárin eru ekki nægilega vel samsett og gufa upp of fljótt. Algengasta einkenni þurra augna er aðskotahlutartil- finning. Það vekur sérstaka athygli að eitt megineinkenni þurra augna er aukið táraflæði og lýsir fólk því oft svo að þegar það fer út í íslenska rokið fari tárin að renna niður vangana. Þessi tár myndast vegna þess að augað verður auðertanlegt og viðkvæmt fyrir til dæmis roki og hita. Þessi tár myndast í stóru tárakirtlunum fyrir ofan augun og innihalda meira vatn en venjuleg tár,“ segir Hildur. Hún útskýrir að í mörgum tilvik- um sé um að ræða öldrunaráhrif tárakirtlanna þó að yngra fólk geti líka upplifað þurr augu. Talið er að um 3/4 fólks 65 ára og eldra fái þurr augu. Þau eru algengari hjá konum, sérstaklega hjá barnshafandi konum eða eftir tíðahvörf. Líklega eru um 3.000 Íslendingar með þurr augu í tengslum við svokallaðan Sjögren’s sjúkdóm og/eða gigtar- sjúkdóma og aðra sjálfsofnæmis- sjúkdóma og 90% þeirra eru konur. Fólk með ofnæmi er útsettara fyrir því að fá einkenni þurra augna auk þess sem ýmislegt utanaðkomandi getur valdið eða viðhaldið þurrum augum, til dæmis ýmis lyf, snerti- linsur og tölvunotkun að sögn Hildar. Oftast er ekki hægt að lækna þurr augu en unnt er að með- höndla einkennin. Þekking og fjöldi meðferðarleiða hefur aukist. Yfirleitt er byrjað á að nota gervitár og gervitárahlaup eins og VISMED sem fást án lyfseðils í apótekum. VISMED gervitár og -hlaup inni- halda engin rotvarnarefni og eru til í dropaglasi og einnig í litlum skammtahylkjum sem má loka á milli notkunar. Gervitárahlaup er fyrst og fremst notað fyrir svefn, en það dugir lengur en venjuleg gervitár. Í VISMED vörunum er hýalúron sýra sem meðal annars eykur endingu þeirra í augunum. Það er talið að sumar fitusýrur, þar á meðal Omega-3 til inntöku, geti dregið úr einkennum þurra augna. Hvarmabólgumeðferð 1. Setjið OcuSci augnmaskann í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 20-30 sekúndur. 2. Leggið augnmaskann á lokuð augun í 3-5 mínútur á dag. 3. Drepa þarf bakteríurnar að þessu loknu, t.d. með því að þrífa hvarmana með OcuSoft klútum eða OcuSoft froðu. Helstu einkenni þurra augna: n Táraflæði n Óskýr sjón n Aðskotahlutartilfinning, pirr- ingur n Smá kláði n Sviði n Óþægindi í augum eftir tölvu- vinnu, sjónvarpsáhorf eða lestur n Roði í augum Vörn gegn augnbotnahrörnun ULTRA MACULAR™ augnvíta- mínið hægir á framgangi augn- botnahrörnunar og er ætlað þeim sem hafa greinst með sjúkdóminn og sumum sem eru í fjölskyldum þar sem sjúkdómurinn er ætt- gengur. ULTRA MACULAR™ er eina augn vítamínið á markaðnum hérlendis sem inniheldur öll nauð- synleg fjölvítamín og steinefni sem fólk þarf á að halda til viðbótar við sérhannaða samsetningu þeirra efna sem eru fyrirbyggjandi varðandi framgöngu augnbotna- hrörnunar. Að sögn Hildar, er samsetning ULTRA MACULAR™ byggð á niður- stöðum nýjustu rannsókna á þessu sviði sem nefnast AREDS 2. „AREDS 2 braut blað í fyrir- byggjandi meðferðarmöguleikum þar sem sérstaklega hefur verið lagt upp úr réttum hlutföllum andoxunarefna og vítamína til að ná sem bestum árangri,“ segir Hildur. „Allir sem þjást af augn- botnahrörnun ættu að íhuga að taka inn ULTRA MACULAR™ til að fyrirbyggja frekari þróun augnbotnahrörnunar og þar með sjónskerðingu. Einnig er mikil- vægt að fara í reglulegt eftirlit hjá augnlækni samhliða töku augn- vítamínsins.“ Aðeins þarf að taka inn tvö hylki af ULTRA MACULAR™ á dag, ULTRA MACULAR™ inniheldur meðal annars lítið sink til að hlífa meltingarveginum og aðalbláber sem talin eru styðja við nætursjón auk fullkominnar samsetningar fjölvítamína og steinefna í sam- ræmi við ráðlagða dagskammta (RDS). Hildur segir marga eiga erfitt með að gera greinarmun á þeim augn vítamínum sem í boði eru á markaðnum í dag. „Það er mikilvægt að hafa í huga að ULTRA MACULAR™ augnvítamínið er byggt á vísindalegum rannsóknum frá hinni virtu stofnun National Institute of Health í Bandaríkj- unum,“ segir hún. „Aldursbundin augnbotnahrörnun er algengasta orsök blindu og sjónskerðingar hjá fólki yfir sextugu á Vesturlöndum og því skiptir miklu máli að velja rétt þegar kemur að augnvítamín- um. Fyrrnefnd rannsókn, AREDS 2, sýnir einmitt fram á að sú sérstaka samsetning andoxunarefna sem hér um ræðir minnki líkur um allt að 25%, á að augnbotnahrörnun þróist yfir á lokastig.“ Vörurnar fást í öllum helstu apó- tekum. n Meðferð með OcuSci augnmaska og hreinsun með bakteríudrepandi OCuSOFT froðu eða hreinsiklútum er yfirleitt áhrifarík við hvarmabólgu. Hildur segir margt í boði til meðferðar við augnsjúkdómum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Áhrifaríkar meðferðir við augnvandamálum ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 30. október 2021
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.