Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 86
Linda Ásdísardóttir stýrir leið-
sögn um sýninguna Missi þar
sem sjá má muni, úr eigu fólks
sem er látið, sem urðu að dýr-
gripum eftirlifenda.
arnartomas@frettabladid.is
Menningarmánuði í Árborg lýkur nú um
helgina en þar hafa fjölbreyttir viðburðir
staðið til boða. Byggðasafn Árnesinga
býður á sunnudaginn upp á leiðsögn um
sýninguna Missi þar sem persónulegir
munir sem urðu að dýrgripum eftirlif-
enda þegar ástvinir þeirra féllu frá eru
til sýnis.
„Sýningin er sett upp á óvenjulegan
hátt að því leyti til að sagan á bak við
gripina og tilfinningagildi þeirra fær að
njóta sín,“ segir Linda Ásdísardóttir sýn-
ingarstjóri og nefnir sem dæmi leikföng
ungrar stúlku, Margrétar, sem lést átta
ára gömul árið 1909. „Í stað þess að vera
dæmigerð leikföng stúlku frá þessum
tíma þá fá gripirnir að vera táknrænir
fyrir þann harm foreldranna sem dótt-
urmissirinn var. Hlutirnir eru heiðraðir
í samhengi við tilfinningagildi eigenda
þeirra.“
Linda segir að þótt aðalsöguhetjur sýn-
ingarinnar sé fólkið sem átti gripina þá sé
sýningin í rauninni meira um missinn og
eftirlifendurna.
„Fólkið geymdi þessa gripi eins og
gullið sitt, í litlum kistum, skrifborðs-
skúffum eða öðrum fylgsnum,“ segir hún.
„Gersemin geymdust þá í marga áratugi
þangað til allir eru fallnir frá sem þurfa
á þeim að halda til að minnast ástvina
sinna. Svo breytast í þeir í safngripi.“
Persónusagan í sviðsljósið
Linda segir að í undanfara sýningarinn-
ar hafi farið fram mikil leit að bakgrunni
gripanna. „Hvaða fólk var þetta sem gaf
gripina og hver geymdi þá?“ segir hún.
„Það var mesta úrvinnslan.“
Linda segir að þótt þetta fari ekki fram
hjá safnastarfsfólki þá séu tilfinninga-
legir munir lítið settir í sviðsljósið.
„Við geymum oft gripi sem einhvers
konar tákn fyrir gamla verkmenningu
eða samfélag sem er horfið,“ segir hún.
„Á þessari sýningu fær persónusagan að
skína í gegn, eitthvað sem við getum öll
tengt við.“
Fyrir sýninguna reyndi Linda að velja
fólk af ólíkum bakgrunni.
„Þarna eru börn sem dóu mjög ung,
eins og sveitastrákurinn Helgi sem dó
úr botnlangakasti og Helga litla sem dó
í bílslysi en líka Kristinn sjómaður sem
fórst á hafi, Kristín sem dó af barns-
förum og Sigurbjörg úr berklum,“ segir
hún. „Þótt þetta gerist við ólíkar aðstæð-
ur held ég að allir kannist við að geyma
viðlíka gripi um ástvini sína. Persónur á
sýningunni eru allt fulltrúar fyrir harm-
dauða og við tengjum öll við þessa leið
við að varðveita minningu.“ n
Dýrgripir endurspegla harm
Bóndasonurinn Helgi frá Arabæjarhjáleigu lést fimm ára gamall úr botnlangabólgu.
Til minningar varðveittu foreldrarnir lítinn kistil sonarins óhreyfðan.
Munir Margrétar Aldísar Árnadóttur (1900-1909). Faðir hennar smíðaði leikföngin
hennar og mynd af feðginunum má sjá í lítilli nælu.
Fólkið geymdi þessa gripi
eins og gullið sitt, í litlum
kistum, skrifborðsskúff-
um eða öðrum fylgsnum.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, dóttir, systir
og tengdadóttir,
Hulda Guðný
Finnbogadóttir
lést í Noregi miðvikudaginn 25. ágúst.
Útför hennar á Íslandi fer fram frá
Garðakirkju í Garðabæ miðvikudaginn
3. nóvember klukkan 13.
Helgi Hólmar Ófeigsson
Kolfinna Ósk Helgadóttir Christian Bacolod Wiik
Steinar Helgi Helgason
Guðmundur Hólmar Helgason og fjölskylda
Kolbrún Sigfúsdóttir Guðmundur Árnason
Linda Bára Finnbogadóttir
Elfa Dögg Finnbogadóttir Stefán Þór Björnsson
Steinunn Sigvaldadóttir Ófeigur H. Jóhannesson
Ástkær móðir okkar,
Hólmfríður Gestsdóttir
Sunnubraut 8, Kópavogi,
andaðist í Sunnuhlíð 15. október.
Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju mánudaginn
1. nóvember klukkan 15.00.
Gestur Jónsson
Helga Jónsdóttir
Skafti Jónsson
Gunnar Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og sonur,
Vignir Einar Thoroddsen
Lundi 5,
lést á Landspítalanum 20. október
síðastliðinn. Útför hefur farið fram í
kyrrþey. Við þökkum auðsýnda vináttu
og samúð og líknarþjónustunni Heru fyrir
ómetanlegan stuðning á erfiðum tímum.
Kristín Guðmundsdóttir
Hanna Kristín Thoroddsen Brynjar Darri Jónasson
Erla Thoroddsen
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Jósteinsdóttir
Núpalind 6, Kópavogi,
sem lést 9. október, verður jarðsungin
frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn
6. nóvember klukkan 13.
Ingibjörg Björgvinsdóttir Hörður Ingi Jóhannsson
Brynja Björgvinsdóttir Vilbergur Magni Óskarsson
Svandís B. Björgvinsdóttir Þórir Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Óla Jörundssonar
frá Miðhrauni,
lengst til heimilis á Sólvöllum 11, Selfossi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Kumbaravogs og
Ljósheima fyrir hlýja og góða umönnun.
Kristbjörg Óladóttir Gestur Haraldsson
María Óladóttir Svanur Ingvarsson
afabörn og langafabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
afi, vinur og bróðir,
Örn Kristinsson
mjólkurfræðingur,
Hjallalundi 20, Akureyri,
lést að heimili sínu 21. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Andri H. Arnarson Drífa S. Sveinsdóttir
Hafþór Ingi Lind Marija Lind
Jóakim Lind, Elísa Anna Lind
Ragnheiður Tryggvadóttir
Árni, Þórdís, Kristinn, Svanur og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Birna Sesselja
Frímannsdóttir
áður kennari á Hvolsvelli
og í Hveragerði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 23. október sl.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
3. nóvember kl. 13.00.
Matthías, Ragnheiður, Málfríður Klara og Kolbrún
Kristiansen, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
Guðmundar S.
Ingimundarsonar
blikksmíðameistara,
Guðrún Þorbjörnsdóttir
Stefanía Guðmundsdóttir Pálmi Þór Þorvaldsson
Björn Guðmundsson Íris Ragnarsdóttir
Bjarki Guðmundsson Halla Helga Jóhannesdóttir
afabörn
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jónas Scheving Arnfinnsson
múrarameistari,
áður Vesturgötu 155, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða laugardaginn 23. október.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
4. nóvember kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða.
Athöfninni verður einnig streymt af vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Ingunn Hjördís Jónasdóttir
Magnea Sigríður Jónasdóttir
Ragnheiður Jónasdóttir Eiríkur Þór Eiríksson
Ingunn Dögg Eiríksdóttir Jón Ingi Þórðarson
Jónas Kári Eiríksson Rakel Rósa Þorsteinsdóttir
Ilmur, Eldon og Ragnheiður Marey
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Jóhannsson
bifvélavirki,
frá Möðruvöllum í Eyjafirði,
andaðist á dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Hlíð mánudaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 12. nóvember kl. 13 og verður streymt.
Gunnar Gunnarsson Norðfjörð Gréta Matthíasdóttir
Jón Norðfjörð Ragnheiður Svavarsdóttir
Jóhann V. Norðfjörð Linda Björk Rögnvaldsd.
barnabörn og langafabörn.
42 Tímamót 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ