Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 67

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 67
Svæðisútvarp Austurlands 1987-2010 margvísleg efni annað, þ.á m. er getið um beinar útsendingar úr fjórðungnum.40 Upp úr aldamótunum 2000 bættist fjórða síðdegisútsendingin við og undir lok starfsemi Svæðisútvarpsins var um nokkurra mánaða skeið sent út síðdegis alla virka daga, en þá höfðu Svæðisútvörp Austurlands og Norðurlands verið sameinuð. Svæðisbundnar útsendingar byggðust jafnan á fréttum, viðtölum og auglýsingum, en hlutföll milli þessara dagskrárliða tóku breytingum innan tímabilsins. Inga Rósa Þórðardóttir segir að á sínum starfstíma (frá 1987-1999) hafi fréttir jafnan verið um 20-25% útsendingartímans, viðtöl um 60-65% og auglýsingar um 15%.41 Ágúst Olafsson og Ásgrímur Ingi Amgrímsson gefa upp svipaðar tölur, en telja að hlutfall frétta hafi verið hærra (35%) og viðtala lægra (50%).42 Svar Jóhanns Haukssonar sker sig dálítið frá hinum en hann segir hlutfall frétta og viðtala hafa verið nokkuð jafnt.43 Þess ber þó að geta að þessi hlutföll gátu verið breytileg, bæði vegna áherslna forstöðumanna, tilfallandi viðburða og sveiflna í magni auglýsinga, t.d. fyrir jól. Viðtökur Austfirðinga við Svæðisútvarpinu voru góðar og mældist hlustun mjög mikil íyrstu árin.44 Árið 1998 kemur fram í fundargerð útvarpsráðs að hlustun á Svæðisútvarpið sé stöðug á bilinu 30-35%.45 Á fundi útvarpsráðs tveimur árum áður vom fundarmenn sammála um mikilvægi svæðisstöðvanna, bæði fyrir svæðin og íyrir landsrásir RUV. Jafnframt kom fram að þrýstingur væri frá þeim landshlutum þar 40 Ríkisútvarpið - skjalasafn. Ársskýrsla RÚV 1990, s. 17-18; Ársskýrsla RÚV 1991, s. 22-23; Ársskýrsla RÚV 1992, s. 23-24; Ársskýrsla RÚV 1993, s. 18-19; Ársskýrsla RÚV 1994, s. 19. 41 Spumingakönnun. Svar: Inga Rósa Þórðardóttir, 29. september 2013. 42 Spumingakönnun. Svar: Ágúst Olafsson, 26. september 2013; Ásgrímur Ingi Amgrímsson, 1. október 2013. 43 Spumingakönnun. Svar: Jóhann Hauksson, 1. október 2013. 44 Ríkisútvarpið - skjalasafn. Ársskýrsla RÚV 1988, s. 24. 45 Ríkisútvarpið- skjalasafn. 3393. fundur útvarpsráðs, 13. október 1998. sem ekki væri svæðisútvarp um að fá slíkt. Útvarpsstjóri lýsti ánægju með mikla hlustun á svæðisstöðvamar. Sá áhugi sem starf þeirra vekti væri styrkur fyrir Ríkisútvarpið sem heild.46 Þróun starfseminnar og breytt hlutverk Frá byrjun vann Svæðisútvarpið efni íyrir Rás 1 og Rás 2. Það jókst smám saman fyrstu árin og varð föst þáttagerð fýrir landsrásirnar varanlegurhluti af starfseminni. í því sambandi má t.d. nefna viðtalsþáttinn Laufskálann (sem síðar nefndist Okkar á milli) og Auðlindina, fréttaþátt um sjávarútvegsmál, sem Haraldur Bjarnason hafði umsjón með um árabil. Einnig var nokkuð um þáttagerð, bæði af hálfu starfsmanna Svæðisútvarpsins en líka af hálfu fólks sem ekki var fastir starfsmenn og má í því sambandi nefna Amdísi Þorvaldsdóttur og Vilhjálm Einarsson. Þessu til viðbótar tíðkaðist það að dagskrárgerðarmenn Ríkis- útvarpsins, sem allajafna voru staðsettir í Reykjavík, kæmu austur og sendu sína þætti út þaðan öðra hvora. Eftir því sem tíminn leið varð ffamleiðsla Svæðisútvarpsins á efni fyrir landsrásimar umfangsmeiri og var svo komið síðustu árin að sá þáttur var orðinn mun stærri en svæðisútsendingamar. Þar breytti mestu þegar farið var að vinna fréttir og innslög fyrir sjónvarp. Haraldur Bjamason, sem starfaði fyrir Svæðisútvarpið í 18 ár (1988-2006), lýsir þessu svo: Eftir að Jóhann Hauksson tók við forstöðumannsstarfi 1999, bættust sjónvarpsfréttir við og þá jukust umsvif stöðvarinnar mjög sem var til hins betra því ferðir fyrir sjónvarp nýttust yfirleitt fyrir útvarp líka. Við vorum líka íyrstu fréttamennimir hjá RÚV til að vinna fyrir báðar fréttastofur en þá voru fréttastofur 46 Ríkisútvarpið - skjalasafh. 3302. flmdur útvarpsráðs, 15. maí 1996. 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.