Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 111

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 111
Æskuminningar standbergin gengu fram í hyljina fyrir framan þau? Jú þetta var þjóðráð. Nú setti ég mér að að fara aldrei yfír um ána heldur reyna að komast úr einum hvamminum í annan alla leiðina niður eftir á þann hátt að klifra fyrir framan öll berg. En þetta var fíflaskapur mesti því að bergin voru brött og alls staðar hyljir í ánni framan við þau. En samt var að reyna og en þó umfram allt að láta það takast. Svo var lagt af stað og ég tók að klifra. það gekk vel en dálítið var ég nervös er ég leit niður í hyldýpið fyrir framan. Nú var ég næstum kominn heim, næstum þar til að gilið opnaðist og áin féll fram á eyrar hins flata lands. En eftir var alversta bergið einmitt gilkjafturinn sjálfur, þröngur og ægilegur eins og oft vill verða. Eg reyndi nú og fór í bergið, en áður en mig varði sat ég fastur komst hvorki aftur né áfram, hvemig sem ég reyndi. Eg komst ekki áfram. Þar var hvorki fótfesta né handfesta, þar var ekkert nema slútandi veggur fyrir framan sléttur eins og nýafpússaður steinveggur. En grængolandi hylur fyrir neðan. Nú vom góð ráð dýr og nú dugði ekki að hugfallast. Ég tók það til bragðs að klæða mig úr hverri spjör þarna í kuldanum og snjónum og henti fötunum yfír ána og yfír hylinn. Síðan spymti ég fótunum fast í bergsnösina sem ég stóð á og kastaði mér skáhalt fram yfír hylinn, þannig að ég yrði ofan á straumkastinu sem kastaðist ffá berginu og til landsins sunnan megin utan við bergið. Þetta heppnaðist ágætlega. Ég flaug sem fleygur, léttur og nakinn í byr straumkastsins yfír hylinn og að landi og með svo mikilli ferð að ég meiddi mig dálítið við landtökuna. Ég greip í skyndi í steinnýpu við lendingu og hafði útséð mér hana áður. Oð ég svo yfír ána niðri á eyrunum og sótti fötin. Ég get getið þess að þetta áform var bundið því skilyrði að ég fyndi ekki kindina, ella hefði ég orðið að fara upp úr gilinu. Þó man ég að ég var að hugsa um að skilja hana eftir til þess að framfylgja planinu. Landlýsingin Þá held ég áfram með landlýsinguna. Inn og upp frá bænum gengur þessi heiðardalur er ég nefndi. Við áttum helming dalsins öðru megin og féll Þverá eftir dalnum í gljúfrinu þama. En uppi yfír dalnum gnæfðu brattir tindar Smjörfjallanna. Og þar á milli fjalladalir. Víða eru djúp gil og eru erfíð yfír ferðar. En þama var þó afrétturinn og þama átti ég fyrmm mörg spor. Gaman var að komast upp á tindana og horfa yfír. Þá sá maður svo glöggt ijöllin hinum megin við Vopnaijörð norðan megin, maður sá Dimmaijallgarð, Herðubreið og Snæfell, Fljótsdals-, Jökuldalsijöll og Haug. Víðáttan endalaus blasti við. Dásamlegt útsýni yfir heiðar Múlasýslu, Jökuldal, Tunguheiði og víðar. Svo sá maður Hágangana, hnúkaröðina sem gengur frá Dimmaijallgarði og út á Langanesströnd þeir liggja svo dásamlega í beinni röð að maður trúði því í bemsku að þetta væm stiklur sem tröllin í Dimmaijallgarði stikluðu eftir þegar þau fæm til sjávar að sækja sér í soðið. Þetta víðsýni heiðanna hafði djúp áhrif á hug minn. Mér varð síður hætt við að bindast þröngum stefnum og flokkum eða taka harðvítug ósanngjöm sjónarmið. Maður lærði að láta hugann reika víðar og bíta sig ekki í kreddur. Dásamlegt var líka að horfa heiman að inn í heiðardalina, Þverdalinn, blómríkan og grösugan og sjá alla leið inn á Smjörvatnsheiði sem liggur milli Vopnaijarðar og Fljótsdals- héraðs og var það 9 klst. lestagangur. Eitt sinn horfði ég um kl. 2 um óttuskeið á indæla senu frammi í dalnum. Sól var á lofti í norðaustri yfír hafínu og roðaði það og sló sólroðanum inn yfír dalinn og lýsti hann upp, lýsti upp hamrana, gilið, fossana og hóf tindana upp í æðri tign. Þessi tignarlega náttúra sýndi manni margar myndir, hún er bæði hrikaleg og þó um leið mild og ljósfögur. Fegurð hennar jók mjög þrá mína eftir öllu sem er fagurt, en þó um leið traust og mikilúðlegt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.