Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 22

Fréttablaðið - 27.11.2021, Page 22
Sif Sigmarsdóttir n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Mín skoðun Þetta er ekki stefna nýrrar íslenskrar ríkis- stjórnar. Því miður. Ranglæti er ítrekað réttlætt með efna- hagsreikn- ingi. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Eftir nokkrar vikur minnumst við Íslend- ingar þess að áratugur er liðinn frá sögu- legum atburði sem hækkaði þjóðarpúlsinn um allnokkur slög og skildi víða eftir óbragð í munni. Í janúar árið 2012 komst upp að Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefði í þret- tán ár selt helstu matvælaframleiðendum landsins iðnaðarsalt í afurðir sína. Málið gat af sér eina stærstu ráðgátu síðari tíma. Þótt saltið væri ekki ætlað til manneldis heimilaði Matvælastofnun Ölgerðinni að klára að selja birgðir sínar af saltinu í matargerð. Áherslur Matvælastofnunar voru í deiglunni á ný í vikunni þegar hulunni var svipt af hrottalegri meðferð á svo kölluðum blóðmerum hér á landi. Blóðmeri er hryssa sem hefur þann eina tilgang að ganga með folöld svo hægt sé að taka úr henni blóð á meðan hún er fylfull. Úr blóðinu er unnið hormón í lyf sem nota má til að sæða gyltur svínabúa örar og auka þannig framleiðslu- getu. Matvælastofnun hefur eftirlit með blóð- merahaldi. „Það er auðvitað hægt að klippa saman vond augnablik,“ sagði yfirdýralæknir í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun um heimildarmynd svissnesku dýraverndunar- samtakanna sem ljóstruðu upp um málið en Matvælastofnun rannsakar nú myndskeiðin. Velferð eða verðmætasköpun? Árið 1833 var þrælahald afnumið víðast hvar í Breska heimsveldinu. Í kjölfarið samþykktu stjórnvöld að greiða fórnarlömbunum háar fébætur. Bótaþegarnir voru þó ekki þrælarnir heldur eigendur þeirra. Nýverið kom upp á yfirborðið að greiðslum bresks almennings vegna bóta til þeirra sem höfðu hagsmuni af þrælahaldi lauk ekki fyrr en árið 2015. Fyrr á þessu ári lagði Inga Sæland, formað- ur Flokks fólksins, fram frumvarp til Alþingis um breytingu á lögum um dýravelferð sem bannaði blóð töku úr fyl fullum merum. Þeir fóru hörðum orðum um frumvarpið sem létu sig málið varða. Framkvæmdastjóri Ísteka, fyrirtækisins sem framleiðir lyf úr merarblóðinu, sagði í umsögn til Alþingis að verðmætasköpun fyrirtækisins væri mikil, afurðir þess væru fluttar úr landi og sköpuðu gjaldeyristekjur sem námu 1,7 milljörðum króna árið 2020. Í umsögn dýralæknis var staðhæft að blóðmerahald væri orðið mikilvægur tekjustofn bænda sem tryggði að sveitir landsins héldust í byggð. Blóðmerahald er aðeins stundað í fjórum öðrum löndum: Kína, Argentínu, Úrúgvæ og Þýskalandi. Evrópuþingið vill stöðva blóð- merahald. Fæstir Íslendingar höfðu heyrt um blóðmerabúskap fyrr en í þessari viku. Þeim fjölgar hratt sem kalla eftir því að hann verði bannaður. Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að hlutverk stofnunarinnar sé að vernda „heilsu manna, dýra og plantna“ og auka „velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar“. En hvað gerist þegar velferð og verðmætasköpun fara ekki saman? Ein helstu rök gegn afnámi þrælahalds voru efnahagsleg. Atvinnurekendur börðust gegn afnámi þrælahalds á þeim forsendum að það myndi valda starfsemi þeirra stórtjóni. Matvælastofnun lagðist gegn frumvarpi Ingu Sæland. Þrælahald. Iðnaðarsalt. Blóðmera- búskapur. Ranglæti er ítrekað réttlætt með efnahagsreikningi. En íslenskur almenningur á ekki að þurfa að borða iðnaðarsalt aðeins vegna þess að einhver flutti það inn. Athæfi sem dýraréttarlögfræðingur kallaði dýraníð í vikunni á ekki að viðgangast bara af því að einhver fann leið til að hagnast á því. Það réttlætir ekki glórulausar blóðsúthellingar að halda sveitum í byggð. Þrælar Breska heimsveldisins sem öðluðust frelsi árið 1833 fengu aldrei bætur. Þar lauk þó ekki óréttlætinu. Afkomendur þeirra greiddu skuld við þrælahaldarana með sköttum sínum til ársins 2015. Hvað er rétt, hvað er rangt? Stundum liggur það í augum uppi. n Efnahagsreikningar, blóðsúthellingar Nýja þriggja f lokka ríkisstjórnin ætlar sér að hrinda af stað framfaramálum í þágu lands og þjóðar. Forkólfar hennar hafa spurt sig í aðdraganda samstarfs- ins hvort bæta megi samfélagið og hvar þá helst. Og svarið er á einn veg; samfélagið er ekki nógu sterkt, styrkjum það. Því er lagt af stað með ellefu áherslumál, en þar rís einna hæst aukinn jöfnuður og rétt- læti, jafnt 25 prósenta launahækkun til verst launuðu stétta landsins og stórauknar kjara- bætur til öryrkja og aldraðra í landinu, hvoru tveggja sakir þess að ójöfnuður skapar átök í samfélaginu og dregur úr krafti þess. Og nýja stjórnin ætlar að gera svo miklu meira. Í loftslags- og umhverfismálum ætlar hún sér að taka forystu í heiminum, hætt verði að nota jarðefni til húshitunar fyrir árið 2030, átta árum fyrr en áður var fyrirhugað – og svo mjög verði dregið úr útblæstri mengandi efna fyrir árið 2045 að náttúran hafi þá betur. Þá verði veðjað á stafrænar lausnir á öllum sviðum atvinnu- og félagslífs, en stefnt verði að því að þjóðin leiði fjórðu iðnbyltinguna, ella verði hún undir í keppni við aðrar þjóðir í lífsgæðum. Fimmti liðurinn í stjórnarsáttmálanum varðar stórfellt átak í húsbyggingum um allt land svo stemma megi stigu við hækkandi íbúðaverði, en réttur fólks til þess að geta leigt eða eignast húsnæði á hóflegu verði sé mann- réttindamál. Stjórnin ætlar einnig að skipta um kúrs í innflytjendamálum með mannúð að leiðar- ljósi, en bæta þurfi aðstöðu og kjör nýrra íbúa landsins. Eins mun stjórnin huga betur að málefnum ungs fólks, færa kosningaaldur í 16 ár, enda hafi yngstu kynslóðirnar meira að segja en áður og eigi að hafa meiri áhrif við landstjórnina. Og stjórnin nýja vill lögleiða kannabis, en notkun þess sé skárri en áfengisdrykkja og tóbaksreykingar og skipti miklu máli í lækn- ingaskyni. Loks er það slegið í gadda að engir skattar hækki á kjörtímabilinu, tekið verði fyrir útgjaldahækkun hins opinbera, skuldir ekki auknar þótt ríkið geti tekið lán á neikvæðum vöxtum – og að endingu, hámarkshraði á þjóðbrautum verði ekki lækkaður, því það eigi að treysta fólki. Þetta er ekki stefna nýrrar íslenskrar ríkis- stjórnar. Því miður. Þetta er stefna nýrrar þýskrar stjórnar frjálslyndra, jafnaðarmanna og græningja – fyrir fólkið í landinu. n Stefna stjórnar jackandjones.is Skyrtur verð frá 7.990 krPeysur verð frá 5.990 kr SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 27. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.