Heilsuvernd - 01.12.1955, Síða 19
HEILSUVERND
103
ónusafa og púðursykri eða gulrótarsneiðar, soðnar i
fitu.
ATH., að sojabaunirnar þurfa að liggja í bleyti í 2 sólar-
hringa, en grænar baunir i 1 sólarhring, áður en þær
eru soðnar.
FLATBRAUÐ:
Tveir bollar af heilhveiti, einn bolli af hveitiklíði og
einn bolli af hveitikími. Hrært út í sjóðandi vatni og
hnoðað lint. Flattar út kringlóttar kökur, sem brugðið
er á heita hellu.
RÚGKEX:
Hálft pund af hverju, rúgmjöli, heilhveiti og smjörlíki
og 100 g. af púðursykri, Wi dcl. mjólk, 4 tesk. kúrenur
og 3 tesk. hjartarsalt.
KÓKOSKÖKUR:
300 g. heilhveiti, 200 g. kókosmjöl, 250 g. púðursykur,
300 g. smjörlíki, 1 tesk. hjartarsalt, 200 g. saxaðar rús-
ínur, 2 egg. Hnoðað saman í deig og bakað við meðal-
hita.
SÓSA Á GRÆNT SALAT. (Uppskrift af salatinu i s. hefti):
Skyr er hrært út i súrmjólk og blandað örlitlu af þeytt-
um rjóma og púðursykri. Lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á því, hvað sósan kemur seint.
ASPIRlNIÐ OG MAGINN.
Að því er Manohester Gardian (1. 7. ’55) skrifar þá hafa rann-
sóknir tveggja sérfræðinga, A. Muir og J. A. Cossar, leitt í ljós,
að aspirín hefur mjög ertandi áhrif á magann, og þeim sem
hafa þó ekki sé nerna lítið eitt viðkvæman maga, ráða þeir al-
gerlega frá notkun þess. (Dr. R. B., Wendepunkt).